Úrval - 01.04.1968, Blaðsíða 19
Allir kannast við þann eiginleika, sem sumt fólk hefur til
þess að skapa hlýju og vellíðan í kringum sig. Er hægt að
þróa þennan eiginleilca með sjálfum sér?
HVAÐ ERU
PERSÓNUTÖFRAR?
kgia Persónutöfrar eru sterk-
ratgSJh ari nokkru vopni, og
EjsfflySf það aðdráttarafl, sem fá-
rfHry ir geta staðizt. Ef þú
hefur þá, þarftu hvorki
peninga, fegurð eða göfugt ætterni.
Persónutöfrar eru Guðs gjöf, gefn-
ir til þess eins, að þeim sé miðlað
til annarra — og því meira, sem af
þeim er miðlað, því meira virðist
vera af þeim. Þeim má helzt líkja
við eilífa sumarveðráttu, sem mæl-
ist á loftvoginni í hlutfalli við þá
smekkvísi og háttsemi, sem sýnd er.
Sannir persónutöfrar eru eins og
ósýnilegur hjúpur umhverfis per-
sónuna; ef þeir eru sýnilegir, hefðu
þeir ekki lengur áhrif. Persónutöfr-
ar eru iðandi lífsþróttur, sem ekki
er hægt að slökkva eða tendra eftir
vild. Fyrir þeim er engin uppskrift
fáanleg. Margir leyndardómar fara
í pottinn, en töfrarnir sem úr hon-
um koma eru óblandaðir — það er
ekki hægt að vera „nærri því“ eða
að „einhverju leyti“ töfraður.
Hjá konum koma persónutöfrar
yfirleitt fram í fleiri myndum held-
ur en hjá karlmönnum. Þeir geta
lýst sér í ljóma á andlitinu, ánægju
yfir félagsskap þínum, og söknuði
á skilnaðarstund, án málskrúðs eða
yfirdrifinnar tilfinningasemi. Konu,
sem hefur persónutöfra til að bera,
finnst enginn karlmaður leiðinleg-
ur; og svo virðist vissulega sem í
nærveru hennar verði hann ekki að-
eins sem annar maður — heldur sá
maður, sem hann vill helzt vera.
Slík kona gerir hann fullvissan um
það, sem hann hefur hingað til
grunað undir niðri — sem sagt það,
að hann sé „konungur“.
Þegar ég hugsa til þeirra kvenna,
sem mest hafa töfrað mig, eru mér
minnisstæðust augu þeirra og radd-
ir. Raddir þeirra voru tilfinninga-
ríkar, og augun — spegill sálarinn-
17