Úrval - 01.04.1968, Blaðsíða 22
Ötrúleg
björgun
Eftir ALLEN RANKIN.
Að morgni þess 7. sept-
ember 1966 var norska
ferjan Skagerak, á leið
frá Kristiansand til
Hirtshals í Danmörku
en þangað fór skipið daglega
í fastar áætlunarferðir. Veður
var slæmt, ofsarok og stórsjór.
Skyndilega gekk mikill brot-
sjór yfir skipið, sem reif með sér
hurðirnar frá bílageymslunni. Sjór-
inn fossaði inn og þeytti bílunum
fram og aftur um geymsluna. Brátt
fylltist vélarúmið og innan stundar
var Skagerak að því komið að
sökkva. Um borð í skipinu voru
Otrúleg en sönn frásögn
um það, hvernig 144 mönnum
var bjargað úr greipum Ægis,
er ferjan Skagerak sökk
undan strönd Danmerkur.
yfir hundrað og fjörutíu manns, þar
af 32 börn.
Alit útlit var fyrir, að um meiri
háttar slys yrði þarna að ræða. Svo
varð þó ekki, því hér var unnið
eitt mesta bj örgunarafrek úr lofti,
er tekizt hefur, björgun, sem var
svo ótrúleg, að hún var nefnd björg-
unin, sem alls ekki gat gerzt.
Þegar brotsjórinn gekk yfir skip-
ið, þaut skipstjórinn, Anstein
Dvergnes, út úr klefa sínum og
virti fyrir sér eyðilegginguna, sem
hann olli. Hafði hann því næst sam-
band við skipshöfnina og hóf að
skipuleggja björgunarstörf. Hjálp-
arbeiðni, ásamt nákvæmri staðar-
ákvörðun, var send út, en skipið
var statt 37 mílur norðvestur af
Hirtshals. Þegar það fór að hallast
ískyggilega mikið, skipaði Dverg-
nes öllum að koma upp á efsta þil-
far, þar sem skipshöfnin hjálpaði
farþegunum í björgunarvesti. Þá
tókst að setja á flot þrjá björgunar-
báta og þrjátíu og tvo gúmbjörgun-
arbáta.
Enn sem komið var hafði allt
gengið að óskum og farið skipulega
fram. En nú ríkti algjör ringulreið,
gúmbátunum hvolfdi og fólkið féll
útbyrðis. Margir reyndu að skreið-
ast upp í bátana, en tókst ekki og
féllu því aftur í sjóinn. í ringulreið-
inni urðu eiginmenn og konur við-
skila, og börn týndu foreldrum sin-
um.
Meðal farþega var kennslukonan
Ellen Thorndahl, ásamt 28 nemend-
um sínum á aldrinum 13 til 14 ára,
og er hún stökk frá borði og hvarf
í öldurnar hugsaði hún til þess með
skelfingu, hvað orðið hefði af þeim.
Neyðarkall Skageraks hafði
heyrzt, og brátt var ein af björg-
unarþyrlum danska flughersins
komin á slysstaðinn. Flugherinn
átti fimm slíkar þyrlur, sem ávallt