Úrval - 01.04.1968, Qupperneq 67
SAGA EFNANNA
65
hrærigrautur, var í rauninni eins
konar smækkuð mynd af samsetn-
ingu alheimsins. Þau eiga ýmsa eig-
inleika og hlutföll sameiginleg. Ef
unnt verður að byggja þannig í
framtíðinni að eitt velti á öðru eins
og að framan var sagt, verður ef
til vill hægt að nýta þær upplýs-
ingar sem þá fást til viðgerða á
líffærum og vonandi á mannlegu
samfélagi líka. En fyrr ekki.
í nýafstöðnum aukakosningum kom velþekktur -kjósandi á kjörstað
án konu sinnar. Þegar hann var spurður að því, hvers vegna konan
hans hefði ekki einnig komið, svaraði hann: „Við höfum ekki sömu
stjórnmálaskoðanir, svo að ég kýs í einum kosningum, og hún kýs svo
í þeirn næstu. Þannig eyðileggjum við ekki atkvæði hvors annars.
Röðin var komin að mér núna.“
V.T.
Ég vinn í kvenfatadeiid í stórri verzlun. Rétt fyrir jólin fer ég alltaf
að búast við uppáhaldsviðskiptamanni minum. Það er lágvaxinn, virðu-
legur herra um sjötugt. Hann skoðar vandlega alla kjóla á þeirri stöng,
sem merkt er með stærð 14, velur þar einn kjól, gengur svo að stöng-
inni, sem merkt er með stærð 18 og velur þar annan nákvæmlega
sams konar kjól. É-g pakka svo kjól nr. 14 i jólapappír og geymi kjól
nr. 1S þangað til nokkrum dögum eftir jói, þegar konan hans kemur
til þess að skipta.
E.H.
Símstöðin í bænum Sitka i Alaska hefur látið búa til sérstakan
þjónustuverðlaunagrip handa framúrskarandi starfsmönnum. Er þar
um að ræða símtæki með skringilegri skífu. Þar eru ekki venju-
legar tölur, heldur ýmis dýr úr útskornu fílabeini. Fæstir Kaguyak-
eskimóarnir á svæði því, sem símstöðin þjónar, geta lesið tölustafi, og
því geta þessi sérstöku símatæki kannske haft einhverja hagnýta þýð-
ingu í framtíðinni, þar sem þau auðvelda Eskimóunum að velja síma-
númer. En þett.a gæti samt leitt til þess, að margt furðulegt kæmi fyr-
ir langlínustúlkurnar, t.d. eitthvað í líkingu við þetta: „Halló, miðsöð,
náið í Sitka í Alaska fyrir mig. Svæðisnúmerið er fiskur, refur, hval-
ur. Númerið er mörgæs, selur, selur, rostungur, refur, björn, selur."
Crossbar News.