Úrval - 01.04.1968, Blaðsíða 44
42
ÚRVAL
í Indlandi eru engar höggmynd-
ir né aðrar stórar styttur af kon-
ungum, furstum, hershöfðingjum
eða stjórnmálamönnum, né heldur
af stórviðburðum, bardögum og því
um líku, sem hvarvetna gefur að
líta í Evrópu. Þetta er vottur þess
að indversk myndlist er eingöngu
trúarlegs eðlis, hve furðulegt og
framandi sem það kann að koma
okkur á Vesturlöndum fyrir sjónir.
Indverjar eru sagðir vera for-
lagatrúar. Það er bæði satt og ekki
satt. Indverjar trúa því að hver
maður sé háður afleiðingum breytni
sinnar, góðrar eða illrar. En sam-
kvæmt trú þeirra er gott og illt ekki
aðskilið, heldur tvær hliðar á hinu
sama. Illt í einfaldri, sérlegri merk-
ingu er ekki til. Jafnvel í hinu
versta er guðdómsneisti falinn, því
Brahma er allt í öllu.
Sjö ára snáði skrifaði eitt sinn stil um jólin og minntist þar á
nokkra gamla, enska siði. Honum varð m.a. svo að orði: „Til hátíða-
brigða hjuggu þeir stundum hausinn af mestu leiðindaskjóðunni (,,bore“)
og báru hann um á fati."
(Þessi saga þarfnast skýringar vegna hins enska orðaleiks. Litli
snáðinn ætlaði að skrifa ,,boar“ (göltur), en skrifaði ávart „bore“
(Leiðindaskjóða). þýð.)
Þegar vísindamenn lýstu yfir því, að engir gestir utan úr geimnum
hefðu nokkru sinni lent á jörðu vorri, varð blaðamanni einum að
orði: „Eiga þeir við, að allir þessir furðufuglar og beatnikkar séiu frá
okkur?“
Ýmsir hafa sett auglýsingu í The Times þess efnis, að þeir ætli
sér ekki að senda nein jólakort það árið. I jólamánuðinum hefur
m.a. getið að líta eftirfarandi auglýsingar, og má segja, að þar sé
um að ræða „tilbrigði við stef“:
Auglýsing frá gamanleikaranum og háðfuglinum Jimmy Edwards:
„Jimmy Edwards hefur ekki sent nein jólakort þetta árið, vegna þess
að jólin komu fyrr en hann hafði búizt við.“
Hér er önnur: „Bill Jarvis í Witnesham biður vini sína og ættingja að
gæta þess, að senda honum ekki kort, sem brotin eru lárétt, þar eð
þau detta alltaf af arinhillunni, þar sem hann stillir þeim upp.“
Og hér er ein enn: „Hr. og frú Frank Muir munu ekki birta neina
tilkynningu í The Times þetta árið. Þess í stað munu Þau senda vin-
um sínum jólakort."
Tónlistargagnrýni í þýzku dagblaði: „1 gær lék frú Carreno í fyrsta
skipti annan concerto þriðja eiginmanns síns á fjórðu fílharmonisku
tónleikunum."
Harold, Schonberg.