Úrval - 01.04.1968, Blaðsíða 104
102
ÚRVAL
ORÐ
OG
ORÐASAMBÖND
Hér fara á eftir 20 orð og orðasambönd með réttri og rangri merkingu.
Prófaðu kunnáttu þína í íslenzkri tungu og auk þú við orðaforða þinn með
því að finna rétta merkingu. Gæt þess, að stundum getur verið um fleiri
en eina rétta merkingu að ræða.
Til gamans getur lesandi gefið sjálfum sér einkunn og metið þannig getu
sína, þ.e. 0,5 fyrir hvert algerlega rétt svar. Ef þú finnur rétta merkingu
19—20 orða, eru að líkindum mjög fróður, en fróður, ef þú færð 17—18 orð
rátt. Ef þú þekkir færri en 10, ertu fáfróður.
1. hrönn: hjarn, ís, runa, alda, dyngja, hrúgald, kona, jörð, þyrping.
2. að moltna: að leysast sundur, að mygla, að úldna, að verða hrumur, að
verða meyr, að hlýna, að þorna, að þiðna.
3. slyndrulaust: einlægt, öruggt, óvisst, heppilegt, linnulaust,, án áfalla,
umsvifalaust, letilegt.
4. slöttungur: stráksláni, hvaltegund, fiskur, spendýr, talsvert magn, ógrynni,
ögn, heystabbi, áhald, ílát.
5. brkri: óðinshani, hrossagaukur, fýlupoki, hrútur, högni, tarfur, geit-
hafur, ofstopamaður, ábreiða.
6. sifjaður: tengdur, svefnþurfi, skyldur, slunginn, aðfinnslusamur, þving-
aður, ástleitinn, vinsæll, frægur.
7. það er ekki krjálegt: það er ekki efnilegt, það er ekki lítilfjörlegt, það
er sóðalegt útlits, það er ekki æskilegt, það er ekki einkennilegt, það er
ekki furða.
8. kókn: kuldi, ögn, fannkyngi, dauði, gustur, smámunir, hóstakjöldur, ung-
barn.
9. að taka e-n i karphúsið: að veita e-m aðstoð, að skjóta skjólshúsi yfir
e-n, að taka i lurginn á e-m, að setja e-n í fangelsi, að rökræða við e-n.
10 kafald: ósjór, slagviðri, ofsarok, snjókoma, rifrildi, vafstur, óvissa.
11. ótyrmi: óþokki, ótemja, húðarjálkur, lamb, sem illa tímgast, kýr, sem
mjólkar iítið, höst meri, kvilli.
12. hvinnskur: lævís, kvensamur, skrýtinn, andstyggilegur, sljór, þjófóttur,
hvikull, hrekkjóttur.
13. jarteikn: náttúruhamfarir, skartgripur, sannindamerki, fyrirboði, spá,
kennileiti, jarðrask, fjársjóður, sem er faiinn í jörðu. •
14. að kákla í e-n: að tala ilia um e-n, að hrinda e-m, að káfa á e-m, að gera
e-m óleik, að hafa gætur á e-m, að berja e-n, að sýna e-m afskiptasemi.
15. ósvinnur: ókurteis, óviss, ótryggur, óhygginn, dapur, óhræddur, ófús.
16. sífrunarsamur: síkvartandi, nöldrunarsamur, kvensamur, gamansamur,
nízkur, sérhlífinn, viljugur.
17. óþyrmingur: óróaseggur, forljótur maður, nöldurskjóða, sá, sem fer illa
með e-ð, sá, sem fer vel með e-ð, flækingur, liðleskja.
18. krytur: mögl, eigur, sjúkleiki, orðrómur, ósamlyndi, ýkjur, pár.
19. druntur: hávraði, þrjótur, dóni, afturendi, bikkja, ólund, slór.
20. nói: iítill askur, kælistokkur, lítill krókur, útbúnaður í reiða, áhald, steðji.
■a