Úrval - 01.11.1970, Page 69
UMFERÐARSLYS ...
67
að koma í veg fyrir, að hann verði,
eða
Þegar. árekstur verður með því að
auka líkur á því, að áreksturinn sé
ekki lífshættulegur, eða
Þegar árekstur er or'ðinn með því
að auka líkurnar á því, að unnt sé
að bjarga alvarlega særðu fólki, út
úr flakinu og tryggja því skjóta
læknishjálp.
Þetta þriggja stiga kerfi má út-
færa frekar með því að taka inn í
það, að í hverju stigi eru þrír þættir:
maðurinn, ökutækið og umhverfið.
Og hvern þessara þátta má kljúfa
niður í smærri einingar. Þátt
mannsins má til dæmis kljúfa niður
í bílstjóra, farþega, fótgangandi og
hjólreiðamann. Þáttur ökutœkisins
gæti skipzt eftir gerð þess, hraða og
staðsetningu. í þátt umhverjisins
mætti taka gerð vega og um hvaða
svæði þeir liggja.
Út úr því heildardæmi, sem yrði
myndað, af innbyrðis tengslum allra
þeirra þátta og stiga, sem hér hefur
verið greint frá, mætti fá mjög ógn-
vekjandi niðurstöður, eftir því að
hverju athyglin beindist.
Unnt er að brjóta hverja einstaka
einingu dæmisins niður í smærri
brot, eins og: tilviljanaráðstafanir,
kostnaður við gagnráðstafanirnar
o.s.frv. Út úr öllu þessu yrði mögu-
legt að flokka tapið, sem beint eða
óbeint er í tengslum við tilviljana-
kenndu ástæðurnar, væntanlegan
hagnað af viðkomandi gagnráðstöf-
unum, þau svið þar sem aðgerðir og
ábyrgð stjórnvalda skipta einhverju,
hvar settar reglur hafa gildi, þekk-
inguna á hverjum tíma og þau svið,
þar sem frekari rannsókna er þörf.
TILLAGAN
Engin þjóð hefur skilning á öllum
brotum og brotabrotum þessa heild-
ardæmis. Þó hafa einstakar þjóðir
einnig ólík hjá hinum ýmsu þjóðum.
meiri þekkingu á sérgreindum þátt-
um þess en aðrar. Tjóntilvikin eru
Til dæmis eru dauðaslys fótgang-
andi vegfarenda vegna bifreiða-
slysa tvisvar sinnum fleiri í Japan
og Þýzkalandi heldirr en í Banda-
ríkjunum. Á hinn bóginn má líta til
þess, að eftirlit rneð ölvun við akst-
ur er alveg í molum í Bandaríkjun-
um í samanburði við ýmis önnur
lönd.
Það er þess vegna mjög líklegt, að
þegar reynsla og þekking hvers að-
ila •— á hvaða þætti dæmisins sem
er — er lögð saman við reynslu og
þekkingu annarra aðila, verði færri
gloppur í dæminu. Aðili, sem skortir
þekkingu á einum þætti, getur feng-
ið upplýsingar um hann frá öðrum.
Og slík skilgreining á þekkingu er
nauðsynleg til að geta afmarkað
ákveðin rannsóknarsvið.
Endanlegt takmark tillögunnar og
framkvæmdar á henni væri að safna
skipulega saman öllum upplýsingum
frá aðildarþjóðunum um hvern ein-
stakan þátt dæmisins. Þær upplýs-
ingar um umferðaröryggisreglur og
mismunandi gagnráðstafanir mundu
mjög auðvelda aðildarþjóðunum að
efla umferðaröryggi sitt.
Það er ómetanlegt að geta ráðizt
til atlögu á þessu sviði eftir sam-
ræmdu heildarkerfi, því að fram að