Goðasteinn - 01.09.1965, Qupperneq 102
endur venjast því frá barnsaldri að afla sér hvers kyns fróðleiks og
hagnýta sér handbækur á réttan hátt. I sambandi við bókasöfnin
v^oru víða kvikmvnda- og skuggamyndasöfn, hljómplötu- og hljóm-
bandasöfn og fleira til hagræðis og fróðleiks fyrir kennara og
nemendur.
Varðandi starfstilhögun í bandarískum skólum gazt mér sérstak-
lega vel að því, að hver kennslugrein hefur sína ákveðnu kennslu-
stofu búna öllum þeim tækjum, er að gagni mega koma í við-
komandi grein. Fagkennari er því ávalt á sama stað og með kennslu-
tæki sín við höndina, en nemendur færa sig milli stofa samkvæmt
stundaskrá. Skapar þetta miklu meiri festu í starfi kennarans, auð-
veldar notkun kennslutækja og stuðlar að betri umgengni. Ekki skal
út í það farið að lýsa þessum vel búnu kennslustofum og þeim
aragrúa tækja, er þar blöstu við, en það var stórfenglegt að kynnast
þessu og sjá t. d. hin margvíslegu tilraunatæki í eðlis- og efna-
fræðistofum, kort, hnattlíkön, skuggamyndir, línurit og fleira í sögu
og landafræðistofum, segulbandstæki með heyrnartækjum á hverju
borði í kennslustofum fyrir tungumál, svo að ekki sé minnzt á sér-
kennslustofur fyrir tónlist, verklega kennslu, íþróttakennslu og jafn-
vel ökukennslu. Þá þykir skóli ekki vel búinn, nema hann hafi sitt
eigið leikhús með fullkomnum sviðsútbúnaði.
f viðbót við þetta hefur sérhver skóli eigin heilbrigðisþjónustu,
sálgæslu og sérstaka stofnun til leiðbeiningar í náms- og starfsvali
nemenda. Hefur verksvið þeirra stofnana aukizt og margfaldazt
hin síðustu árin, eins og svo margt annað í bandarísku skólakerfi.
Ég nefndi áðan, hversu mér virtust nemendur í skólum vestan
hafs frjálsmannlegir og kurteisir í framkomu. Þcssu unga fólki
virtist slík framkoma fullkomlega eðlileg og sjálfsögð. Við nánari
athugun komst ég líka að því, að skólamenn þar vestra hugsa ckki
aðeins um að búa skólana fullkomnum tækjum og sem beztri náms-
aðstöðu. Skólar þar gera ekki aðeins miklar kröfur til nemenda
sinna í námi, heldur ætlast líka til mikils af þeim um framkomu
cg alla umgengni. Mér virtist raunar að víða miðaði drjúgur hluti
nlmsins að því að venja hið unga fólk á fagrar og eðiilegar um-
gengnisvenjur, og var hvarvetna lögð á það hin mesta áherzla.
Öllum þeim skólamönnum, sern ég ræddi við þar vestra um þessi
100
Gjðasteinn