Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1900, Síða 30
30
á hreinum og óhreinum dýrurn, en þann greinarmun
gerir fyrri frásagan ekki. Enn frernur ber frásögum þess-
um ekki sama.n um bve iengi flóðið hafi staðið yfir.
Samkvæmt annari frásögunni hefir það staðið yfir 1 ár
og 10 daga, eða frá 17. degi hins 2. mánaðar á 000.
æfiári Nóah (sbr. 7, 11) til hins 27. dags hins sama
mánaðar á 601. æfiári hans (sbr. 8, 13. 14). Samkvæmt
hinni frásögunni hefir flóðið staðið yfir miklu skemur eða
í mesta lagi 101 dag (sbr. 7, 10. 12; 8, 2 b. 3 a [40 dagar];
8, 6 [40 dagar]; 8, 8. 10. 12—13 b [7 + 7 -j- 7 dagar])1.
Virðum vér því næst fyrir oss hverja frásöguna út af
fyrir sig, leynir það sór eigi, að sú frásagan, sem brúkar
guðs-nafnið Elóhím [frásaga B] ber á sér öll sömu ein-
kennin, hvað orðaval, framsetningu o. þvíumh snertir,
sem vér finnum hjá höfundi fyrri sköpunarfrásögunnar
(1. Mós. 1, 1—2, 3). í hinni frásögunni þar á móti, sem
brúkar guðs-nafnið Jahve [frásaga A.] finnum vér hins
vegar alt það, sem vér áður höfum talið einkennilegt
fyrir höfund sköpunarfi ásögunnar síðari (1. Mós. 2, 5—22).
Á einstöku stað i frásögunni um flóðið rnikla hefir end-
ursemjandi eða safnandi ritanna skotið inn frá eigin
brjósti einstökum greinum, til þess að ná sem beztu sam-
ræmi milli frásagnanna.
í patríarka-sögunni sjáum vér hvað eftir annað sagt
tvívegis frá sama viðburðinum og þó sitt með hverju
móti í hvort skifti. Þannig er tvívegis sagt frá því, er
Abraham fær fyrirheit um, að Sara muni eignast son.
í 1. Mós. 17. er sagt frá þessu í sambandi við frásöguna
um það, er guð skipar fyrir umskurnina. Þar er þess
getið, að Ábraham hafi hlegið, er hann heyrði fyrirheitið,
þar sem bæði hann og kona hans væru orðin háöldruð,
1 Sumir telja, að það hafi að eins staðið 61 dag, en þá er
álitið að þeir 40 dagar, sem i 8, 6 er talað um, séu dagarnir
sem rigningiu stenduryfir. Hvort réttara sé, verður ekki ákveðið.