Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1900, Page 99
99
angrgapi, at svara fólsku tiginna manna örendum, „sem
Guð láti eigi vera hér í dag; þat er framkvæmd sem
hans er vili til, en öllum gegndi bezt. ““ Þá stóð Þor-
gils upp og segir: „Þat er mönnum kunnigt, at ek
hefi stefnt fund þenna. En þat er fyrir þá sök, at ek
em skyldaðr til í dag at reka konungs örendi. Man hér
lesit vera konungs bréf. Bið ek at menn gefi hér til
gott hljóð, ok hyggi síðan at svörum." Þórður Hítnes-
ingur var með brjefið og sýndi innsiglið, og bað Þorioif
Þórðarson í Görðum látá lesa það, en Þorleifur neitaði
því. Kvað bann marga vera fúsa til hjeraðs þessa, og
mál þetta mætti bíða þess, að við væri Hrafn og Sturla,
og þeir gætu allir gjört saman ráð fyrir svörum. „Vitu
vér, at þér er skipat hérað þetta af konungi; ok er þat
örendi hans í dag; en margir mæla þat, at hann eigi ekki
í. Em ek eigi aríi Snorra Sturlusonar, þótt ek hafa hér
nökkura forsjá með ráði Þórðar. Em ek eigi fyrir svör-
um um þetta mál meirr enaðrir." Þetta hið síðasta var
eigi rjett, því Þorleifur var þá höfðingi yflr Borgarfirði,
en hann sagði þetta af þvi að hann var maður deigur og
vildi eigi taka á sig ábyrgðina gagnvart Þorgilsi. Margir
studdu þetta með Porleifi, og þótti konungur eigi mak-
legur að hafa nokkur forræði á erfð Snorra Sturlusonar.
En Þorgils var harður og ódeigur í svörum og mælti:
„Vita skulu þér Þorleifr, at ek ætla at láta lesa hér í dag
konungsbréf, tvau eðr þrjú, opinberlega svo at þér heyrit;
ok skal ek eigi myrða þetta konungsbréflt, þóttú hafir
myrt þau konungsbréf, er til þín hafa send verit; ok má
vera, at þú eigir því hér at svara í dag, og þurflr eigi til
annarra svörum at vikja“. Þorleifur drap þá niður höfði
og svaraði engu. Hann hafði eigi hlýtt þeim konungs
brjefum, er hann hafði fengið, og það kallaði Þorgils að
myrða þau. Porgils Ijet þá Þórð Hítnesing lesa brjef
konungs, og urðu menn eigi skjótir til svara. Pá mælti