Tímarit lögfræðinga - 01.12.2000, Blaðsíða 40
laga nr. 11/1986, en samningur heldur gildi sínu að öðru leyti. Sjá til athugunar
um það efni H 1993 2328 (Gilsdómur).
1.6 Nánar um réttarstöðuna við aðför
Enda þótt skilyrði hafi verið fyrir hendi til þess að fá skuldara dæmdan til að
efna kröfu eftir aðalefni hennar og kröfuhafi hafi fengið dóm, er ekki þar með
sagt, að dómhafi geti fengið dómi fullnægt beinlínis eftir aðalefni hans við aðför.
Hér er rétt að greina á milli dóma, er skylda til greiðslu peninga, og dóma um
aðrar greiðslur.
1.6.1 Dómar um greiðslu peninga
Dómi um greiðslu peninga ber að fullnægja eftir efni dómsins, sbr. nánar
ákvæði 6. kafla aðfararlaga nr. 90/1989. Samkvæmt 1. mgr. 36. gr. aðfl. má gera
fjárnám til fullnustu peningakröfu í eignum, sem nægja til greiðslu hennar, sbr.
2. mgr. 1. gr., og tilheyra gerðarþola eða öðrum, sem býður þær fram til fjámáms.
Merkir fjámám hér aðfarargerð, sem fram fer til að fá tryggingu fyrir peninga-
kröfu eða greiðslu hennar með reiðufé. Gerðarþoli á samkvæmt 2. mgr. 39. gr.
aðfl. ekki rétt til að vama því, að peningar verði teknir fjámámi, nema þeir verði
undanþegnir fjámámi samkvæmt reglum 41. gr. I þessu felst, að gerðarbeiðandi
má hafna ábendingu gerðarþola, ef hann bendir á annað en fyrirliggjandi
peningaeign, hvort sem hún nægir fyrir kröfunni allri eða einungis hluta hennar.
Með peningaeign er ekki einungis átt við peningaseðla eða aðra innlenda eða
erlenda gjaldgenga mynt, heldur einnig sambærileg verðmæti, t.d. óinnleysta
tékka, innstæðu á bankareikningi o.fl.
Ef peningaeign er tekin fjárnámi, felst almennt greiðsla í þeirri aðgerð, þar
sem meginregla 55. gr. aðfl. kveður á um, að peningar skuli þegar afhentir
gerðarbeiðanda í því skyni. Ef þannig tekst til, fæst fullnægja skyldu gerðarþola
við fjámámsgerð, og er þá ekki þörf frekari ráðstafana í því skyni.
Ef peningar finnast ekki hjá skuldara (gerðarþola) við fjárnám, er gert fjámám
í einhverju verðmæti gerðarþola og það síðan selt við nauðungarsölu, sbr. ákvæði
1. tl. 6. gr. laga nr. 90/1991, um nauðungarsölu. Samkvæmt því ákvæði má
krefjast nauðungarsölu til fullnustu gjaldfallinni peningakröfu á grundvelli fjár-
náms í eigninni.
1.6.2 Dómar um annars konar greiðslur en peningagreiðslur
í 11. kafla aðfl. er að finna reglur um aðför til fullnustu kröfu um annað en
peningagreiðslu. Ef aðfararheimild kveður á um skyldu gerðarþola til að víkja af
fasteign eða til að láta gerðarbeiðanda í té umráð hennar að einhverju leyti eða
öllu, skal sýslumaður fullnægja rétti gerðarbeiðanda með útburði gerðarþola eða
þeirra hluta, sem fjarlægðir verða, og eftir atvikum með innsetningu gerðar-
beiðanda, sbr. 72. gr. aðfl.
296