Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2000, Page 72

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2000, Page 72
Það er skilyrði, að umrædd atvik valdi því, að greiðsla geti ekki farið fram. Atvikin verða því að vera hindrun fyrir greiðslu. Að auki koma fram þau skilyrði, að kaupandi geti ekki haft stjórn á umræddum atvikum og að hann geti ekki sigrast á þeim. Um skýringu svipaðra hugtaka má vísa til þess, sem áður segir um 1. mgr. 27. gr. kpl.69 6.3.2 Réttur til afpöntunar hluta, sem sérstaklega eru útbúnir fyrir kaupanda I 2. mgr. 52. gr. er um það fjallað, þegar kaupandi afpantar hlut, sem sér- staklega skal útbúinn fyrir hann. Getur seljandi þá ekki haldið fast við kaupin með því að halda gerð hlutarins áfram eða gert aðrar ráðstafanir til afhend- ingar ásamt því að krefjast greiðslu, nema því aðeins að stöðvun hafi í för með sér verulegt óhagræði fyrir hann eða hættu á því að hann fái ekki bætt það tjón, sem afpöntun hefur í för með sér. Ef seljandi getur ekki haldið fast við kaupin, skal ákveða skaðabætur fyrir það tjón, sem afpöntunin veldur, samkvæmt reglum X. kafla kpl. Regla 2. mgr. 52. gr. felur í raun í sér undantekningu frá meginreglu 1. mgr. um rétt seljanda til að krefjast efnda.70 Segja má, að ákvæðið byggist á samspili tveggja aðalsjónarmiða. Fyrra sjónarmiðið er það, að gerða samninga beri að halda. Hitt sjónarmiðið er, að það stríði gegn samfélagslegum hagsmunum að láta verðmæti fara for- görðum. Regla laganna er á því byggð, að síðara sjónarmiðið eigi að gilda að því er varðar pöntunarkaup, en seljandi getur hins vegar átt rétt á skaða- bótum. Frá þessu er þó sú undantekning gerð, að hafi stöðvun í för með sér verulegt óhagræði fyrir seljanda, eða hættu á því að hann fái ekki bætt það tap, sem afpöntun hefur í för með sér, getur seljandinn haldið fast við kaupin. Afpöntun hefur svipuð áhrif og riftun að því leyti til, að seljandi getur ekki haldið áfram efndum samningsins. Skilyrði riftunar og afpöntunar eru hins vegar ekki hin sömu, sem m.a. kemur fram í því, að unnt er að beita afpöntun þótt ekki sé um neinar vanefndir af hálfu seljanda að ræða. Akvæði 2. mgr. á aðeins við um kaup á hlut, sem er sérstaklega útbúinn fyrir kaupanda. Hafi kaupandi afpantað hlutinn, getur seljandi samkvæmt ákvæðinu ekki haldið fast við kaupin í þrenns konar skilningi. í fyrsta lagi getur hann ekki haldið áfram gerð hlutarins. í öðru lagi getur hann ekki gert aðrar ráðstafanir til afhendingar hans, t.d. pantað flutning á honum. í þriðja lagi getur seljandi ekki krafist greiðslu. Rétturinn til afpöntunar getur verið áhættusamur fyrir seljanda, þar sem hann situr e.t.v. uppi með hlut, sem hvorki hann sjálfur né aðrir geta nýtt. Af þeim sökum gerir ákvæðið ráð fyrir því, að hann geti haldið fast við kaupin í vissum tilvikum, sem nánari grein er gerð fyrir síðar. 69 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 129. 70 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 129. Hvorki eldri lög né Sþ-samningurinn hafa að geyma sam- bærilegt ákvæði og fram kemur í 2. mgr. um rétt til þess að afpanta hlut á tímabilinu frá því að kaup gerðust og þar til afhending fer fram. 328
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.