Íslenzk tunga - 01.01.1964, Blaðsíða 17
GÖMUL HLJÓÐDVÖL í UNGUM RÍMUM 15
ur með stoðhljóðinu u; 4 önnur ójöfn vísuorð hafa stoðhljóðsorð
að síðasta braglið, 2 þeirra eru með síðasta risi stuttu.
11. ríma: Stafhent oddhent: 72 erindi.
Lóðins öl fær litla dvöl,
leysast verður Þundar böl,
af því þjóð um blíðu bjóð
biður mig að þylja óð.
011 288 vísuorð eru stýfð, nema ef frá eru talin vísuorð með stoð-
hljóðsorðum að síðasta braglið, setn eru 4 alls, öll með síðasta risi
löngu.
12. ríma: Samhent: 83 erindi.
Mér vill leiðast ljóða stag,
leita eg við það nótt sem dag
að skemmta þjóð og skipta um lag,
skálda mun eg þó ongvan slag.
Öll 332 vísuorð eru stýfð, nema ef fró eru talin vísuorð með stoð-
hljóðsorð að síðasta hraglið, sem eru 16 alls og 4 þeirra með síðasta
risi stuttu.
13. ríma: Stuðlafall: 98 erindi.
Farkost dverga fram eg hreyta skyldi,
hefði ei Suptung Ilvítbjörg fyr
hneppt í lás og varðað dyr.
98 vísuorð eru óstýfð og síðasta ris þeirra allra langt. 2. og 3.
vísuorð hvers erindis eru stýfð.
14. ríma: Baksneitt (braghent og fráhent innan um): 87 erindi.
Fjórtándi skal Frosta lögur úr fræða veldi
renna saman við Rögnis gildi,
rekka sveit ef hlýða vildi.
011 vísuorð, 261 að tölu, eru óstýfð; þó eru notuð sem síðasti
bragliður alls 12 orð með stoðhljóðinu u, 7 þeirra með stuttri stofn-
samstöfu, glaður : maður 48. er., semur : kemur 52. er., glaður :
maður 58. er., biður 62. er. Ef þessi 12 vísuorð eru skilin frá, verða
eftir 249 óstýfð vísuorð, og síðasta ris allra þeirra er langt.
15. ríma: Ferskeytt oddhent: 96 erindi.
Vaki eg þrátt um vintranátt
Viðris öl að brugga,