Íslenzk tunga - 01.01.1964, Blaðsíða 18
16
STEFÁN KARLSSON
næsta smátt þó góms úr gátt
gangi ljóða dugga.
Jöfnu vísuorðin 192 eru öll óstýfð og síðasta ris allra þeirra langt.
011 ójöfnu vísuorðin eru stýfð, nema ef frá eru talin vísuorð með
stoðhljóðsorð að síðasta braglið, en þau eru 12 alls; 4 af þessum
orðum eru með stuttri stofnsamstöfu.
16. ríma: Ferskeytt framalhent í 1. og 3. vísuorði og framsniðhent
innan um: 86 erindi.
Talin Fjalars ferjan ein
fljóta úr höfnum skyldi,
þýð og blíð ef þoma rein
þulunni hlýða vildi.
Jöfnu vísuorðin 172 eru öll óstýfð og siðasta ris allra langt.
Meðal ójöfnu vísuorðanna, sem annars eru öll stýfð, eru 10 vísu-
orð með stoðhljóðsorð að síðasta braglið, og 8 af þessum orðum
hafa stutta stofnsamstöfu.
17. ríma: Braghent valhent, valhent og hringhent innan um: 83
erindi.
Gínars fley úr Gríðar þey eg gjöri að leiða
út á Litars æginn breiða,
enn því svanninn þess vill beiða.
Öll 249 vísuorð eru óstýfð, en 246 ef frá eru skilin 3 visuorð sem
hafa stoðhljóðsorð að síðasta braglið, biður : miður : viður 74. er.
Auk þessara þriggja vísuorða eru 8 vísuorð með síðasta risi stuttu,
(herra :) bera : þvera (lo. þvcr, skr. þverra) 11. er., skrafa : vafa :
hafa 29. er., sniðum : griðum : hliðum 40. er.
18. ríma: Afhent: 112erindi.
Átjándi skal Durins drykkur Dvals af gjaldi
dreifast Sóns úr dreggjar tjaldi.
Öll 224 vísuorð eru óstýfð, en 220 ef frá eru skilin þau 4 vísuorð
sem hafa stoðhljóðsorð að síðasta braglið, ekur : tekur 56. er., bið-
ur : niður 109. er. Auk þessara fjegra vísuorða eru 2 með síðasta
risi stuttu, liði : miði 93. er.
19. ríma: Ferskeytt: 92 erindi.