Íslenzk tunga - 01.01.1964, Blaðsíða 19
GÖMUL HLJÓÐDVÖL í UNGUM RÍMUM
17
Nítjánda skal Bifurs bát
burt úr skorðum leiða,
af því fljóðin fögur og kát
fara mig þess að beiða.
Jöfnu vísuor'ðin 184 eru óstýfð og síðasta ris allra langt.
Meðal ójöfnu vísuorðanna, sem annars eru öll stýfð, eru 6 sem
hafa stoðhljóðsorð að síðasta braglið, og 4 þessara orða hafa stutta
stofnsamstöfu.
20. ríma: Stikluvik þríhent: 97 erindi.
Róms af sandi rennur hér
Rögnirs ferjan veika,
full af blandi Óma er,
óðs frá landi flýtir sér.
Óstýfð vísuorð eru 97, öll með síðasta risi löngu.
2., 3. og 4. vísuorð eru jafnan stýfð.
21. ríma: Samhent: 73 erindi.
Tuttugusta og fyrsta fley
fram skal renna geðs úr þey,
Sifjar blóms ef svarðar ey
segir ei mínum orðum nei.
Öll 292 visuorð eru stýfð, nema ef frá eru skilin þau sem enda á
stoðhljóðsorðum, en þau eru 16 alls, og í fjórum þessara orða er
stofnsamstafa stutt.
22. ríma: Urkast skothent: 89 erindi.
Yggjar fundur tærist títt
úr tryggðar hlíðum,
Boðnar bindur brigðu lítt
þó blómgist tiðum.
Jöfnu vísuorðin 178 eru óstýfð að fjórum undanskildum. Ef vísu-
orð með stoðhljóðsorð að síðasta braglið eru einnig dregin frá, en
þau eru 8 talsins, öll með langri stofnsamstöfu, verða eftir 166 jöfn
vísuorð óstýfð. Síðasta ris í fjórunt þeirra er stutt, saga : Jclaga 27.
er., spaka : taka 57. er.
Ójöfnu vísuorðin eru yfirleitt stýfð, en í hópi þeirra eru þó 14
óstýfð, öll með síðasta risi löngu, og kemst þá tala óstýfðra vísuorða
ÍSLENZK TUNCA 2