Íslenzk tunga - 01.01.1964, Blaðsíða 23
GÖMUL HLJÓÐDVÖL í UNGUM RÍMUM 21
með stoðhljóðsorð að síðasta braglið; stofnsamstöfur tveggja þess-
ara orða eru stuttar.
35. ríma: Baksneitt: 90 erindi.
Óðs í nausti ei má lengur inni dvelja
Suðrar skeið, ef seima þilja
segist þetta heyra vilja.
011 270 vísuorð eru óstýfð, en 264 ef sleppt er 6 vísuorðum sem
enda á stoðhljóðsorðuin. Síðasta ris allra vísuorða er langt. (í 11.
er. eru rímorðin fyrri : kœri : vœri, en þess eru önnur dæmi að
skáldið rímar saman orð með stuttu og löngu r, sbr. 17. og 38. rímu.)
36. ríma: Gagaraljóð: 83 erindi.
Siglu hindin Suðra skal
sveima geyst um raddar bý;
mér þó leitt sé mærðar tal,
má eg ei þreytast enn á því.
Öll 332 vísuorð eru stýfð.
37. ríma: Braghent valhent og hringhent: 96 erindi.
Dverga fley fær dvölina ei í drauma landi;
hyrjar þey það verður vandi,
Viðris mey þó drykkinn blandi.
Öll 288 vísuorð eru óstýfð; í 15 þeirra er síðasta ris stutt, haga :
naga : baga 30. er., smalinn : kvalinn : falinn 38. er., haga : baga :
naga 46. er., saga : baga : klaga 51. er., haga : naga : baga 95. er.
38. ríma: Urkast með skáhendri hendingaskipan, oddhent innan
um: 91 erindi.
Gaman mun enn að gleðja menn
og göfugan svanna,
ljóðin sein þó launi ei nein
mér lauka Nanna.
Jöfnu vísuorðin 182 eru óstýfð, en 178 ef undan eru tekin 4 vísu-
orð með stoðhljóðsorð að síðara braglið, viður : riður 60. er.,
kveður : feður (þgf. et.) 72. er. Síðasta risv5 annarra vísuorða er
stutt, baga : klaga 16. er., gefa : sefa 46. er., lera (: herra) 76. er.
(lera, sem er síðari hluti orðsins œttarleri, er stafsett lerra).