Tímarit Máls og menningar - 01.10.1976, Page 58
Jannis Ritsos
Samtal við blóm
Alpafjóla mín, mín
alpafjóla mín,
þú sem vex út úr bergi,
hvaðan kom þér litur þinn,
hvaðan kom þér stilkurinn,
sem vaggar þér?
— ÍJr berginu kom mér litur minn,
úr berginu kom mér stilkurinn
sem vaggar mér.
Ég drekk úr því hvern dropa,
hvern blóðlitan dropa,
spann úr þessu rósalín,
spann úr þessu blómin mín.
Og svo fékk ég sólina að launum.
Kvæði þetta er eitt af 16 kvæðum sem griska skáldið Jannis Ritsos orti 16. sept.
1968 í fangabúðunum á hinni alræmdu Leroseyju við Grikkland og tileinkaði þau
tónskáldinu Mikis Þeodorakis, sem gerði lög við þau. Jannis Ritsos er talinn mesta
núlifandi skáld Grikkja. „Mesta skáld samtímans," segir Louis Aragon.
MálfríSur Einarsdóttir.
[Kvæði þetta var birt í Tímaritinu 1965, en þar féllu niður þrjár línur.]
260