Morgunblaðið - 16.12.1987, Síða 2

Morgunblaðið - 16.12.1987, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987 Islendingasögur Svarts á hvítu: 14 þús- und eintök seldátveim- ur árum BÓKAÚTGÁFAN Svart á hvítu hefur nú selt 14 þúsund eintök af heildarútgáfu sinni á íslend- ingasögunum. Útgáfan, sem er með nútíma stafsetningu, kom út á árunum*1985 og 1986. Þá hefur forlagið gefið út skólaút- gáfu i tveimur bindum með nokkrum sögum og þáttum og sérstakri skýringabók, þar sem er að finna almennar skýringar, ættartölur og kort af sögustöð- um. Skólaútgáfan er nú notuð við kennslu í flestum framhalds- skólum landsins, að sögn Björns Jónassonar, framkvæmdastjóra Svarts á hvitu. Að sögn Bjöms er ekkert lát á eftirspurn eftir íslendingasögunum og er salan jöfn og stöðug. Þegar hafa verið gerðar fimm prentanir af sögunum. Bækumar voru fyrst gefnar út í tveimur bindum, en síðastliðið sumar var sögunum skipt í þijú bindi, þar sem sú stærð bók- anna þótti hentugri en hin stærri. Jafnframt sendi útgáfan frá sér Sögukort, íslandskort, þar sem, í stað venjulegra ömefna á slíkum kortum, er lögð áhersla á ömefni er snerta íslendingasögumar. Bjöm segir að útgáfa Svarts á hvítu sé stærsta heildarútgáfa íslendinga- sagna, sem út hefur komið með nútíma stafsetningu . Verð á rit- safninu er um það bil 12-13 þúsund krónur. > Fyrsta bindi skólaútgáfu Svarts á hvítu á Islendingasögum kom út á síðasta ári og eru nú komin út tvö bindi. Sérstakar skýringabækur fylgja útgáfunum, þar sem, auk almennra skýringa, er að finna ættartölur og kort af sögustöðum. í dag Hvað er í blaðinu? BLAD £' Sinfónían í fimm flokkum Morgunblaðið/Ámi Sæberg Sinfóníuhljómsveit íslands heimsækir þessa dagana 24 stofnanir og sjúkrahús í Reykjavík og nágrenni. Til þess að þetta sé unnt er hljómsveitinni skipt í fimm flokka, tvær strengjasveitir, tvær málmblásarasveitir og eina tréblásarasveit. Þessi mynd var tekin, þegar önnur strengjasveitin lék fyrir fólkið í Tjaldanesi. í gær var spilað á þremur stöðum öðrum, 11 á mánudag og í dag spila flokkamir á sjö stöðum og enda á tveimur stöðum á fimmtudag. Samþykki beggja ráðuneytanna þarf fyrir lántökuheimildinni - segir Ragnhildur Helgadóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra ER TILLAGA Óla Þ. Guðbjartssonar alþingismanns um 6 milljóna króna framlagsaukningu vegna D-álmu sjúkrahússins í Keflavik var borin undir atkvæði á Alþingi í gær, fór Ragnhildur Helgadóttir fram á nafnakall. Er hún gerði grein fyrir atkvæði sínu mótmælti hún umfjöllun Alþýðublaðsins í gær um afgreiðslu hennar, er hún var heilbrigðisráðherra, á umsókn sjúkrahússins í Keflavík til 30 milljóna króna lántökuheimildar tU að flýta fyrir byggingu D-álmu sjúkrahússins. Grein sú sem Ragnhildur mót- mælir er á forsíðu Alþýðublaðsins í gær undir yfirskriftinni: „Sjúkra- hús Keflavíkur sótti um lánsheim- ild. Ragnhildur gaf út „gúmmílof- orð“.“ Ragnhildur Helgadóttir sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að umfjöllun Alþýðublaðsins væri bæði röng og fram úr hófí ósmekkleg. Hún hefði með bréfi til stjómar sjúkrahússins, dagsettu 15. apríl síðastliðinn, heimilað 30 milljóna króna lántöku fyrir sitt leyti. „í því bréfí kom fram afstaða ráðuneytisins og ekki annað og meira," sagði Ragnhildur. „Auðvit- að þurfti líka heimild fjármálaráðu- neytisins. En menn vita það, meðal annars Ólafur Bjömsson, formaður sjúkrahússtjómar, sem er fyrrver- andi alþingismaður, að það þarf samþykki beggja ráðuneytanna fyr- ir slíkri lántöku." Ragnhildur sagði að hún hefði þá verið búin að skrifa fjármála- ráðuneytinu og óska eftir afstöðu þess. Það samþykkti hins vegar ekki lántökuna. Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir fjallaði um málið og taldi að þar sem Alþingi hefði tekið afstöðu á sínum tíma um 3 milljóna króna ^árveitingu og ekki samþykkt sérstaka láns- heimild væri málið afgreitt í bili. „Það var hins vegar mikið lagt upp úr því, bæði af hálfu stjómar sjúkrahússins og þingmanna kjör- dæmisins, að stefna heilbrigðis- ráðuneytisins kæmi fram því stjóm sjúkrahússins taldi sig eiga kost á peningum frá einkaaðilum. Til þess að slíkt gengi betur myndi yfirlýs- ing heilbrigðisráðuneytisins hjálpa þeim. Hún lá fyrir í vor og var ítrek- uð af hálfu eftirmanns míns nýlega. Það hefur því ekkert breyst í þessu máli að öðru leyti en því að þær vonir, sem bundnar vom við að jjármálaráðherra kæmi fram með tillögu um þetta nú við af- greiðslu fjárlaga, hafa ekki ræst ennþá. Ég get ekki betur séð en að fjármálaráðherra hafi nú tæki- færi til að gera það.“ Ragnhildur greiddi atkvæði gegn tillögu Óla Þ. Guðbjartssonar. Sagðist hún hafa gert það í trausti þess að flokksbræður ráðherra á þingi og Alþýðublaðið leiti stuðn- ings við lánsheimild til sjúkrahúss- ins. Tillaga Óla var felld með 39 atkvæðum gegn 19. Sauðfjárbændur fengu ekki greitt fyrir afurðir í gær SÍÐASTA greiðsla fyrir sauð- fjárafurðir ársins barst bændum ekki í gær, 15. desem- ber, eins og lög segja til um. Ólafur Sverrisson, formaður Landssambands sláturleyfis- hafa, segir ástæðuna vera þá að ríkissjóður hafi ekki staðið skil á greiðslum vegna vaxta og geymslugjalds, bæði fyrir þetta ár og fyrir árið 1986. Þá sé sláturleyfishöfum gert að greiða upp afurðalán af göml- um birgðum frá í fyrra. Samtals eigi sláturleyfishafar útistandandi hjá ríkissjóði um 400 milljónir og þeir geti ekki gert upp við bændur fyrr en frá því hafi verið gengið. Um er að ræða síðasta ijórðung greiðslna fyrir sauðfjárafurðir og er Qárhæðin rúmur milljarður sem skiptist á milli 3-4.000 heimila. Jóhannes Kristjánsson, formaður Félags sauðfjárbænda, sagðist í samtali við Morgunblaðið gera ráð fyrir að sauðfjárbændur myndu leita réttar síns af krafti og m.a. Tillaga á þingi um úrsögn úr NATÓ: Þingmenn Borg- araflokks sátu hjá „Samkomulag innan stjórnarand- stöðunnar“ segir Júlíus Sólnes ÞINGMENN Borgaraflokksins sátu hjá í gær í atkvæða- greiðslu við fjárlagaumræðu í sameinuðu þingi um þá tillögu að hætta að greiða aðildargjöld til Atlantshafsbandalagsins. krefjast þess að greiddir yrðu dráttarvextir af þessari skuld því 0 það væri álit lögfræðinga að þess- Skftkl ar afurðagreiðslur lúti sömu lögmálum og almennar greiðslur. Ólafur Sverrisson sagði að rætt hefði verið við landbúnaðarráðu- neytið og ráðherra vegna þessa máls og sagðist hann vonast til þess að það leystist á næstu dög- um. Þetta væri slæmt ástand og bændur treystu væntanlega á að fá þessa peninga nú fyrir jólin. Steingrímur J. Sigfússon formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins kom fram með þá breytingartillögu við fjárlögin á fundi í sameinuðu þingi síðastlið- inn mánudag, við aðra umræðu, að framlag Islands til Atlants- hafsbandalagsins yrði minnkað úr 13,5 milljónum í eittþúsund krónur. Skýrði Steingrímur þessa upphæð sem sendingarkostnað þeirra gagna til Atlantshafs- bandalagsins, sem tilkynntu úrsögn Islands úr bandalaginu. Það vakti nokkra athygli í þingsölum, að við atkvæða- greiðslu um þessa tillögu sátu þingmenn Borgaraflokksins hjá, en tillagan var felld með 36 at- kvæðum gegn 8. Aðspurður sagði Júlíus Sólnes, formaður þing- flokks Borgaraflokksins, að hjáseta þessi þýddi ekki breytta stefnu flokksins gagnvart aðild að Atlantshafsbandalaginu, held- ur hefði þetta verið samkomu- lagsatriði við hina stjómarand- stöðuflokkana. Þröstur á Evrópumót unglinga ÞRÖSTUR Þórhallsson mun keppa fyrir íslands hönd á Evr- ópumóti unglinga í skák sem hefst í Araheim í Hollandi 19. desember næstkomandi. 24 kepp- endur verða á mótinu sem lýkur 2. janúar. Helstu keppinautar Þrastar á mótinu verða væntanlega maðurinn Vasselij Ivantsjuk, er að veija titil sinn frá síé móti, landi hans Boris Gelfam danski alþjóðameistarinn Lar: Hansen. Alls verða tefldar 13 umfen mótinu eftir monradkerfi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.