Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
35
Líkan af væntanlegri ráðhúsbyggingu við Tjömina.
upp húsi í íslenska stílnum í Pollinum
sínum. Norðlenskt lítillæti hlýtur að
ráða því að þeir hafa bara Ráðhús-
torg en ekkert ráðhús.
En hvers vegna er stíll hússins
séríslenskur? Skýringin liggur í aug-
um uppi; hið fýrirhugaða ráðhús
sameinar allt það sem íslenskt má
teljast í húsbyggingum, í senn það
sem flutt hefur verið inn erlendis frá
og öðlast hefur þegnrétt og það sem
sprottið er upp úr íslenskum jarð-
vegi. Auk þess dregur húsið dám af
náttúru landsins.
Afkomandi hins eiginlega moldar-
kofa, hinn íslenski burstabær, er
grunnhugmyndin. Danska báru-
jámshúsið sem er íslenskt að
þegnrétti kemur fram í háum hliðar-
veggjum. Og hvolflaga þakið, sem á
sér nærtækasta fyrirmynd í her-
mannabröggum stríðsáranna, hefur
sömuleiðis öðlast íslenskan þegnrétt,
enda ófáar skemmumar víðsvegar
um landið með þessu lagi. Tjömin
sjálf er svo fulltrúi náttúrunnar,
ásamt neðanjarðarbílastæðinu, sem
túlkar hella landsins, gjótur þess og
gíga. En brúin yfir Tjömina er hins-
vegar skírskotun til sigra mannsins
á straumþungum fallvötnum íslands
og ef til vill einskonar óður til hinnar
tilkomumiklu brúar yfir Ölfusá sem
var mikið afrek á sínum tíma.
Því er við að bæta að kenningin
er bresk og Bretar byggðu bragg-
ana; því er ósköp eðlilegt að þeir
vilji eiga einhvetja hlutdeild í hinum
íslenska stfl um leið og þeir þvo hend-
ur sínar af bröggunum. Þessi sérís-
lenski skemmustíll er þannig ekki
nýr, en hann hefur aldrei fyrr hlotið
viðurkenningu erlendra manna. Og
var þó mál til komið.
Á hitt má benda til fróðleiks að
þegar öllu er á botninn hvolft, kemur
hinn íslenski skemmustíll ótvírætt
fram á síðustu öld, þannig að ofan-
greind tilraun til skilgreiningar er
með öllu óþörf. Ráðhústeikningin ber
nefnilega sterkan svip af bænum á
Hriflu í Þingeyjarsýslu árið 1896,
sem mynd er af í Lesbók Morgun-
blaðsins, laugardaginn 31. október
síðastliðinn. Þannig hefur borgar-
stjóm fundið minningu Jónasar
Jónssonar frá Hriflu endanlegan stað
í höfuðborg landsins verði smíðað
hús eftir verðlaunateikningunni. Og
sætir því engum undrum að madd-
ama framsóknar í borgarstjóminni
er teikningunni fylgispök, en í ljósi
sögunnar hlýtur ákafi fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í þessu máli að vera
með ólíkindum. Næsta skrefið verður
sjálfsagt að flytja bijóstmynd af Jón-
asi, sem sett var niður við Sölvhóls-
götu fyrir tveimur ámm, niður að
Tjörn og koma henni fyrir á hlaðinu
úti fyrir húsinu.
Höfundur er prófstjóri viðHá■
skóla íslands.
Glæsileg jólaföt
Dökk, röndótt, tvíhneppt föt.
Vönduð efni, terylene/ull.
Frábærtískusniö.
Verð aðeins kr. 8900,00.
Andrés, SkólavörðustflJ 22, sími 18250.
Góðar gjafabækur
FÓLKIÐ í FIRÐINUM
Tvö bindi 400 bls. í stóru broti.
Myndir og æviágrip 460 Hafnfirðinga.
Vandaðar bækur, fróðleg heimildarit.
Ennþá fáanlegar á gamla verðinu.
Sölustaður: Austurgötu 10, Hafnarfirði.
Sími: 50764. Póstsendum ef óskað er.
Útgefandi.
5 línan
,ASpecial Edition"
7. og2.vinningur í
HHf