Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 88
j 'ALHLIÐA PÉNTÞJÓNUSTA
S GuðjónÚLhf.
/ 91-27233
JlltfgllllfclllfrÍfe
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Þingfundir milli
jóla og nýárs?
TAKIST ekki að afgreiða þau frumvörp fyrir jólaleyfi Alþingis, sem
"ríkissijórnin leggur áherslu á að verði samþykkt fyrir áramót, munu
verða haldnir þingfundir þá virku daga, sem eru á milli jóla og
nýárs. Þetta segir Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins og tekur Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins undir þetta.
Mikið annríki hefur verið undan-
fama daga á Alþingi. Þingfundir
voru á laugardag og nefndarstörf
á sunnudag. Á mánudag voru fund-
ir í Sameinuðu þingi, þar sem fram
fór önnur umræða fjárlaga, sem
stóð til þrjú um nóttina. í gær hóf-
ust svo nefndarstörf árla morguns,
eftir hádegi var atkvæðagreiðsla
flárlagafrumvarps til þriðju um-
ræðu og eftir það fundir í deildum.
Enn á eftir að afgreiða mörg
frumvörp ríkisstjómarinnar og eru
sum þeirra enn í nefndum, flest í
þeirri efri. Næstu daga eru fyrirsjá-
anlegir kvöld- og næturfundir, auk
þess sem búist er við önnum yfír
helgina.
Sjá frásagnir á þingsíðu bls. 49.
Rigningar á Spáni skemma saltvinnslu:
Búist er við tvö-
faldri hækkun á
fob-verði salts
^BÚIST er við næstum tvöfaldri
-*hækkun á fob-verði salts vegna
saltskorts sem stafar af því að
saltvinnsla á Spáni hefur mis-
farist vegna rigninga og flóða.
Fyrirsjáanleg er einhver verð-
hækkun á saltfiski vegna þessa,
en ekki er ljóst hvað sú hækkun
verður mikil.
Borgarráð:
3,5 milljón-
ir til Líf-
-tæknihúss
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að veita 3,5 milljónir króna í
aukafjárveitingu á þessu ári til
byggingar Líftæknihúss á
Keldnaholti.
Líftæknihúsið er gjöf Reykjavík-
urborgar til Háskóla íslands á 75
ára afmæli skólans, en þá var sam-
þykkt að borgin legði fé til hússins
að hálfu á móti Háskóla íslands.
Að sögn Gunnars Eydal, skrifstofu-
stjóra borgarstjómar, hefur húsinu
verið brej'tt nokkuð frá upphaflegri
áætlun og það stækkað.
Mjög stórar saltnámur em á
Spáni og er saltið unnið á þann
hátt að sjó er hleypt inn í stóra
flekki og síðan sér sólin um að
þurrka upp sjóinn svo saltið verður
eftir. Að sögn Finnboga Kjeld, for-
stjóra Saltsölunnar sf., hafa í sumar
verið rheiri rigningar á Spáni en
undanfarin ár þannig að saltvinnsl-
an hefur brugðist og Spánveijar
hafa því minna af salti til útflutn-
ings. Þetta hefur orðið til þess að
skortur er fyrirsjáanlegur á salti,
en Finnbogi sagði þó að búið væri
að tryggja þeim íslensku aðilum,
sem flytja inn salt, nægar birgðir.
Finnbogi sagði að verðið á saltinu
myndi hækka verulega og fyrirsjá-
anleg væri nánast tvöföld hækkun
á fob-verði, úr um 14 dollurum
tonnið í yfír 20 dollara. Það verð
vægi þó ekki þyngst í útsöluverði
heldur kostnaður vegna flutnings
og ýmislegs annars. Finnbogi sagði
að saltið yrði fengið aðallega frá
Túnis og Frakklandi, en samtals
er ársinnflutningur á salti til Is-
lands um 80 þúsund tonn.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölusambands
íslenskra fiskútflytjenda, sagðist
ekki geta sagt til um hvaða áhrif
þessi verðhækkun á salti hefði á
verð saltfísks, en þau yrðu sjálfsagt
einhver.
"*"Bestu flugvellir Evrópu valdir:
Með blik í augiim og jól í hönd
Börn á dagheimilum Reykjavíkurborgar ferð-
ast þessa dagana um borgina og nágrenni í
boði Hópferða Péturs. Síðasti viðkomustaður-
inn er hjá Skógrækt ríkisins í Fossvogi, þar
sem fá börnin jólagreinar, eins og sjá má á
þessari mynd.
Álafoss hf.:
Hækkar ullarvör-
umar um 20-40%
Mest verður hækkunin innanlands
NÝJA ullariðnaðarfyrirtækið Álafoss hf., sem tók formlega til starfa
þann 1. desember sl., hyggst hækka verð á mörkuðum sinum allt frá
20% og upp í 40%. Mest verður hækkunin að öllum líkindum á ferða-
mannamarkaðinum hér heima, að sögn Jóns Sigurðarsonar, forstjóra
nýja fyrirtækisins.
Jón sagði að forráðamenn ýmissa
pijóna- og saumastofa á landinu
hefðu verið uggandi um framtíð fyr-
irtækja sinna eftir að sameiningin
átti sér stað, þar sem þau hefðu
hingað til átt í veigamiklum viðskipt-
um við Álafoss hf. í Mosfellsbæ.
Álafoss hefði útvegað fyrirtækjun-
um verkefni á meðan að ullariðnað-
ardeild SÍS hefði að mestu leyti setið
að eigin framleiðslu. „Þessi fyrirtæki
hafa skiljanlega af því áhyggjur
hvort nýja fyrirtækið ætli að auka
afkastagetuna á Akureyri og drepa
öll önnur fyrirtæki niður. Eg hef
svarað þessu neitandi. Við ætlum
að leggja okkar meginkraft í að selja
sem mest og á hærra verði því sá
er vandinn í greininni. Við ætlum
hinsvegar ekki að fjárfesta í aukinni
afkastagetu. Verðið er meðal annars
lágt vegna þess að allir þeir 50 út-
flytjendur ullarvara, sem eru á
íslandi, hafa háð verðstríð á erlend-
um mörkuðum. Fyrirtækin hafa ekki
keppt á neinn annan hátt, til dæmis
verið með betri vöru en keppinautur-
inn, heldur er hér eingöngu um
verðsamkeppni að ræða.“
Fundur var haldinn með pijóna-
og saumastofum á Norðurlandi
vestra í fyrradag þar sem forsvars-
menn Álafoss hf. skýrðu frá
markmiðum sínum og verðstefnum.
Jón sagði að honum hefði þótt rétt
að skýra fyrirtækjunum frá áætlun-
um stærsta ullariðnaðarfyrirtækis
landsins enda væri þýðingarmest í
þessu sambandi að ullariðnaðarfyrir-
tækin ynnu saman í stað þess að
sundra hvert öðru. Hinsvegar væri
ekkert hægt að segja til um áfram-
haldandi samvinnu við fyrirtækin
fyrr en samið hefði verið við Sovét-
menn. Þá fyrst væri hægt að ræða
aukið samstarf við ptjóna- og
saumastofur á landinu.
Sjá nánar viðtal við Jón Sigurð-
arson á Akureyrarsíðu.
Leifsstöð í öðru sæti
af minni flughöfnunum
LEIFSSTÖÐ á Kenavíkurflugvelli er, samkvæmt sænska tímaritinu
Veckans AffSrer, önnur besta flughöfn Evrópu, sem þjónar minna en
6 milljónum farþega á ári. Flughöfnin í Mílanó er þar í efsta sæti eins
og á síðasta ári en þá var Keflavík ekki á blaði. Kastrupflugvöllur
er talinn besti flugvöllur Evrópu í flokki þeirra sem þjóna meira en
6 milljónum farþega árlega.
Þessi úttekt, sem gerð var af
Citipro Airport Test, fór fram mán-
uðina ágnist til nóvember í haust.
Ferðuðust 12 manns milli 28 flug-
"^Valla í Evrópu og auk þess voru
fleiri farþegar spurðir um hug þeirra
til flughafnanna. Áherslan var lögð
á eftirfarandi 12 atriði: 1. Hvort
auðvelt væri að rata um flugstöðv-
amar. 2. Vinnubrögð við afgreiðslu
og bókanir. 3. Vinnubrögð við mót-
töku komu- og biðfarþega, þar á
meðal farangursafgreiðsla og toll-
skoðun. 4. Vegabréfaskoðun og
öryggiseftirlit. 5. Vegalengd til flug-
vallar. 6. Almenningssamgöngur við
flugvöllinn. 7. Hvort auðvelt væri
að rata á flugvöllinn. 8. Fríhafnir.
9. Veitingahús. 10. Aðrar verslanir.
11. Önnur þjónusta og afþreying.
12. Umhverfí.
Kastrup-flugviíllur i Kaupmanna-
höfn er samkvæmt þessari könnun
besti flugvöllur Evrópu og í flokki
flugvalla sem þjóna yfír 6 milljónum
farþega árlega fékk hann 82 stig
af 92,5 mögulegum. Kastrup var í
3. sæti í sambærilegri könnun á
síðasta ári. I öðru sæti var Schiphol-
flugvöllur í Amsterdam með 81 stig.
Frankfurt-flugvöllur var í 3. sæti
með 78,5 stig.