Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
Morgunblaðið/Sverrir
Davíð Oddsson, borgarstjóri, klippir á borðann í Domus, og opnar þar með hina nýju verslunarmiðstöð
á formlegan hátt.
Ný verslunarmiðstöð opnuð
Ný verslunar- og þjónustumið-
stöð, Domus, var formlega opnuð
í Reykjavík á föstudaginn. Do-
mus er til húsa að Laugavegi 91,
og þar eru átta verslanir undir
sama þaki.
Það var Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, sem opnaði Domus formlega,
en eftir að hann hafði klippt á borð-
ann var boðið upp á veitingar og
skemmtiatriði. Haldin var tískusýn-
ing og hárgreiðslusýning, jóla-
sveinn kom í heimsókn, og sýnt var
beint frá opnunarhátíðinni á Stöð 2.
Verslanimar sem eru til húsa í
Domus em: Barcelona (spænskur
og franskur tískufatnaður), Evrópa
(hársnyrtistofa), Kafé Madrid (kaff-
itería), Litla Glasgow (leikföng,
skart, fatnaður, töskur o.fl.), Ný-
borg (húsgögn), Rafeind (sjónvörp,
hljómtæki, símtæki o.fl.), Rýabúðin
(hannyrðavörur), Taka tvö (herra
og dömu tískufatnaður, ítalskur
skófatnaður), og Þóra (handunnar
gjafavörur og myndir).
Náttsöng-
ur í Hall-
grímskirkju
NÁTTSÖNGUR verður haldinn í
Hallgrímskirkju í kvöld, 16. des-
ember, kl. 21.00. Þar koma fram
Dómkórinn í Reykjavík undir
stjóm Marteins H. Friðrikssonar
dómorganista og Sigrún Þor-
geirsdóttir sem syngur einsöng.
Að loknum söng kórsins verður
tíðagjörð, náttsöngur að fornum
hætti.
Dómkórinn syngur jólalög eftir
ýmsa höfunda, en það er orðin föst
venja að kórinn syngi í náttsöng í
Hallgrímskirkju á aðventunni. Sl.
miðvikudag var fjölmenni er Skagf-
irska söngsveitin í Reykjavík flutti
Jólasveinninn skemmti yngstu borgumnum.
Félag raftækjasala:
Raftæki áfram
hátollavara
FÉLAG raftækjasala innan
Kaupmannasamtaka íslands hef-
ur sent bréf til fjárhags- og
viðskiptanefnda Alþingis þar
sem vakin er athygli á nokkmm
afleiðingum tolla- og vörugjalds-
breytingarinnar sem fyrirhuguð
er um áramót. I bréfinu er talað
um að verið sé að taka raftæki
út úr og ráðast sérstaklega á þau
með því að láta þau áfram vera
hátollávöru.
I bréfinu segir að eingöngu sé
verið að búa til aukalegan toll á
innflutt raftæki og að hæsti tollur
verði ekki 30%, eins og oft sé talað
um, heldur í raun 55—61%, þegar
litið sé á einstök dæmi. „Við getum
alls ekki sætt okkur við að þetta
þýði að verið sé að jafna út gjöldum
og álögum. Á sama tíma eru glys-
og glingurvörur teknar úr 80% tolli
og 30% vönagjaldi og settar í 0%
tol| og 0% vörugjald. 140—155%
tolla- og vörugjaldsálögur ei-u strik-
aðar út og engar álögur settar á
þessar vörur á meðan raftæki eru
hækkuð og álögur á þau auknar.
Svona vinnubrögð ganga einfald-
lega ekki upp í okkar huga,“ segir
í bréfinu.
Kristmann Magnússon vara-
formaður Félags raftækjasala sagði
í samtali við Morgunblaðið að með
því að reyna að telja fólki trú um
að með breytingunni sé verið að
innleiða Glasgow-verð hér á landi
væru menn að falsa staðreyndir
hvað raftækin varðaði. Allir vissu
að þetta væru vörur sem fólk flytti
mikið með sér inn í landið af því
þær væru ódýrari erlendis. Enn
væru álögurnar hér svo miklar að
verðið yrði 45—83% hærra en í
Evrópu.
jólatónlist við náttsöng. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Sunnudaginn 20. desember syng-
ur barnakór Austurbæjarskólans í
guðsþjónustu kl. 11.00 undir stjórn
Péturs Hafþórs Jónssonar.
Grein um ísland í New York Times:
Ljósadýrð og hagstæð jólainn-
kaup í myrkustu höfuðborg heims
Getum við selt ferðamönnum skammdegið?
í NÝLEGU ferðablaði banda-
ríska stórblaðsins The New
York Times er fjallað um jóla-
hald víða um heim, og er þar
að finna grein um jólahald á
íslandi eftir Pamelu Sanders,
fyrrverandi sendiherrafrú,
sem sérstaklega er ætluð ferða-
mönnum.
í grein Pamelu, sem er eigin-
kona Marshalls Brements, fyrr-
verandi sendiherra Bandaríkjanna
á Islandi, segir að hvergi sé hald-.
ið upp á jólin með meiri fyrirhöfn
og innileika en í „Reykjavík;
minnstu, myrkustu og nyrstu höf-
uðborg heims.“ Sagt er að
skammdegið auki á hátíðleika jól-
anna þar sem íslendingar lýsi upp
tilveruna með marglitum ljósaper-
um á svölum og í gluggum,
upplýstum, innfluttum jólatijám,
og kertum á hveiju heimili.
Greinin er skrifuð með hugsan-
lega ferðamenn til íslands í huga,
og segir að jólainnkaupin í
Reykjavík komi þægilega á óvart.
Þar sé að finna kurteist sölufólk,
hjálpsama leigubílstjóra, og góðar
vörur á sanngjömu verði sem eigi
vel við árstímann: ullarvörur,
gærur og gæsadúnn. Pamela
nefnir verð á þessum og öðrum
vörum, auk þess sem í greininni
er að finna upplýsingar um flug
til íslands, hótel, veitingahús og
veðurfar.
Mönnum er bent á að vera til-
búnir með bílaleigubíl og ferðaá-
ætlun þegar verslun og þjónusta
leggst svo til alveg niður í tvo
sólarhringa um jólin á meðan inn-
fæddir horfa á lútherska sjón-
varpsmessu, og snæða ijúpu,
„sem hefur verið hengd upp þar
til hún er orðin svört og seig eins
og gamalt stígvél, en síðan soðin
í mjólk þar til hún er orðin purp-
uralit, og borin fram _vel krydduð
með skothöglum." Á meðan á
þessu stendur sé tilvalið að bregða
sér upp í Hvalfjörð, til Þingvalla,
til Gullfoss og Geysis, eða að fá
sér sundsprett í Bláa lóninu.
Reykjavík lifnar síðan aftur við
að kvöldi 26. desember, segir í
greininni, og þá er hægt að bregða
sér á skemmtistaði sem séu troð-
fullir af „aðgangshörðum víking-
um“ og „sláandi ljóshærðum
konum", sem séu vís með að bjóða
gestinum upp í dans og síðan
heim til sín. Þegar líða fer að lok-
um jólaheimsóknarinnar ættu
ferðalangar að heimsækja eitt-
hvert hinna stórgóðu safna í
höfuðborginni, fara í útsýnisflug
yfir Vestmannaeyjar og suður-
ströndina, bregða sér á skíði í
Blátjöllum eða á skauta innanum
kjagandi svani á Tjöminni í mið-
borginni. Ef menn vilja hins vegar
reyna sig við sanna víkingsþraut,
þá er rétt að slást í hóp með inn-
fæddum við Lækinn bak við Hótel
Loftleiðir. „Til að standast prófið
þarf viðkomandi að fara úr fötun-
um, stjákla yfir hraungrýti og
stinga sér ofan í næsta poll, og
þar getur hann baðað sig í heitu
vatni og lofi hlédrægari samferða-
manna sinna, eftir að hafa hætt
á lungnabólgú, skorna fætur, og
að misbjóða siðferðiskennd við-
staddra."
RB gerir til-
boð í alkalí-
verkefni
í Banda-
ríkjunum
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins, RB, hyggst bjóða í
rannsóknarverkefni sem banda-
ríska vegagerðin býður út um
rannsóknir á alkalí í steypu. Verk-
efnið á að taka fimm ár og er
kostnaður áætlaður 2 milljónir
bandaríkjadala eða um 72 milljón-
ir íslenskra króna.
Hákon Ólafsson forstjóri rann-
sóknarstofnunar byggingariðnaðar-
ins sagði að danskir og bandarískir
aðilar stæðu að tilboðinu með íslend-
ingum en þeim á að skila fyrir 19.
desember. Verkefnið felur í sér að
finna fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
alkalí í steypu, viðgerðir á skemmd-
um, og aðferðir til að prófa hvernig
tryggja má rétta niðurstöðu. „Við
höfum gert ýmislegt sem fellur að
þessu verkefni," sagði Hákon. „Bæði
höfum við reynt að blanda ýmis efni
við sement til að hindra alkalí-
skemmdir, til dæmis kísilryki og við
höfum reynt nýjar aðferðir sem aðrir
hafa ekki, til að stöðva alkalí-
skemmdir sem þegar eru orðnar í
steypu."
Væntanlega fæst úr því skorið í
janúar hvaða tilboði verður tekið.