Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
13
Þjóðin hafði ekki hugmynd um,
að von væri á þessum sköttum
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson í þingræðu
Hér fer á eftir mestur hluti
ræðu, sem Eyjólfur Konráð Jóns-
son flutti á Alþingi hinn 10.
desember sl.:
Ég kemst ekki hjá að leiðrétta
það, sem fjármálaráðherra sagði
hér, að á liðnu sumri hefði öllum
mátt vera kunnugt að þeir skattar,
sem nú er rætt um að leggja á þjóð-
ina, mundu verða á hana lagðir.
Mér var ekki kunnugt um það og
engum í Sjálfstæðisflokknum held
ég, og ég held að almenningi hafi
ekki verið kunnugt um það. Þannig
vildi nefnilega til að þegar stjó#nar-
myndunarviðræður þeirra þriggja
flokka, sem nú eru í ríkisstjórn,
voru strandaðar vegna kröfu for-
manns Alþýðuflokksins og flokksins
alls um svokallaðar fyrstu aðgerðir,
þ.e. neysluskatta strax, sem tekið
var undir af formanni Framsóknar-
flokksins þegar þessar umræður
voru strandaðar vegna þessarar
kröfu, af þvi að við sjálfstæðismenn
neituðum öllum nýjum sköttum kom
það í minn hlut að flytja um það
tillögu í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins að við sættum okkur við
að leggja á um það bil 1 inilljarð í
sköttum til að hægt væri að halda
stjórnarmyndunarviðræðunum
áfram. Ég man að ég sagði á þeim
fundi að það kæmi þá vel á vondan
að ég flytti þessa tillögu því að all-
ir vissu að ég væri andvígur þeirri
stefnu og á móti þeirri skattlagn-
ingarstefnu, sem hefði verið stun-
duð, en það væri þó skárra að
leggja þennan skatt á, þennan 1
milljarð, en landið yrði stjórnlaust
og upplausn ríkti, en allir voru sam-
mála um að engin leið hefði verið
til stjórnarmyndunar annarrar en
þeirrar sem raunin varð á. Ég ber
ábyrgð á þeim sköttum þess vegna,
ekki kannski hvéijum einstökum
þeirra, af því að í ýmsum tilvikum
hefði ég viljað haga því öðruvísi,
en á þeirri upphæð ber ég ábyrgð
og henni hærri en 1 milljarði á ári,
væntanlega eitthvað á þriðja millj-
arð á ári úr því að það var 1
milljarður á tæplega hálfu ári. Á
öðru ber ég ekki ábyrgð.
Nú er talað um að leggja á
töluvert hærri skatta en þetta. Það
vita allir og er engin ástæða til að
draga fjöður yfir það, að rétt fyrir
þingsetningu voru tekin upp þau
fjárlög sem þingflokkarnir höfðu
samþykkt í meginatriðum. Ég hygg
að það hafi m.a.s. verið búið að
prenta fjárlögin eða langt komið
að prenta þau. Og ég vissi ekki
fyrr en daginn fyrir þingsetningu,
þ.e. 9. október, að það ætti að koll-
varpa þeim fjárlögum og leggja á
mun meiri skatta. Það þýðir ekkert
að draga Qöður yfir þetta. Þetta
eru staðreyndir. Þjóðin öll vissi
þetta ekki fyrr en um þá helgi að
það væri von á nýjum fjárlögum
og fjárlagafrv. mundi ekki sjá dags-
ins ljós á setningardegi þingsins.
Þetta gerðist vegna þess og með
þeim rökstuðningi að komin væri
ný þjóðhagsspá frá Þjóðhagsstofn-
un allt öðruvísi en hún hefði verið
nokkrum mánuðum áður og allt
væri að farast í þessu þjóðfélagi.
Ég trúði því ekki heldur að allt
væri að farast í þessu þjóðfélagi.
En ég ætla ekki að fara lengra út
í þessa sálma núna. Staðreyndir eru
staðreyndir og rétt er rétt og þess
vegna verður að leiðrétta það að
þjóðin öll hafi vitað á miðju sumri
að von væri á þessum sköttum. Hún
hafði ekki hugmynd um það. Ef
einhveijir hafa vitað það hafa þeir
farið mjög dult með að þetta ætti
að gerast eða þetta ætti að reyna.
En það sem mig langar að gera
og þess vegna fór ég í pontu hér
er áð spyija fjármálaráðherra hve-
nær von sé á skýrslu .svokallaðrar
hallanefndar. Þeir kalla hana það
sjálfir nefndarmenn. Það mun vera
nefnd fjögurra eða fimm manna frá
Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Þjóð-
hagsstofnun, Seðlabanka og
Háskóla íslands; menntaðir hag-
fræðingar allir saman, það hygg
ég að þeir séu. Hvenær mun vera
von á þeirri skýrslu? Mun hún koma
á morgun, laugardag, sunnudag eða
mánudag? En frestur sá sem for-
maður nefndarinnar sagði opin-
berlega að yrði á þessu núna fyrir
tæpum þremur vikum, hygg ég að
það sé, er þá að renna út. Hann
sagði að skýrslan mundi sjá dagsins
ljós eftir tvær eða þijár vikur á
þeim tíma, þ.e. um þetta leyti. Og
ég bar þessa spurningu upp við
hæstv. ráðherra í gær í einkavið-
ræðum, hvort hann vildi grennslast
fyrir um þetta. Ef hann ekki hefur
gert það sætti ég mig alveg við að
fá ekki svar í kvöld, en ég vil sem
sagt fá að sjá þessa skýrslu áður
en ég tek afstöðu til afgreiðslu
þeirra mála sem hér eru til umræðu.
Inntakið í þeirri bráðabirgða-
skýrslu hygg ég að sé að tekjuaf-
gangur ríkissjóðs á árunum
1980—1985, ef rétt væri reiknað,
hafi verið að meðaltali þetta 6—8
milljarðar kr. miðað við núgildandi
verðlag og spár um landsfram-
leiðslu á næsta ári. Ég endurtek
að þessar tölur eru þannig, þær
bráðabrigðatölur sem mér voru
gefnar upp fyrir nokkrum vikum,
að á árunum 1980—1985, öllum
árunum, hefði með eðlilegu upp-
gjöri á ríkisfjármálunum verið þetta
mikill, nokkurra milljarða, tekjuaf-
gangur í staðinn fyrir tekjuhalla.
Þetta felst ósköp einfaldlega í því
Eyjólfur Konráð Jónsson
að ekki eru taldir til eigna þeir sjóð-
ir, sem eru hluti af ríkissjóði en
færðir til gjalda á hveijum fjárlög-
um, — þ.e. svokölluð framlög til
húsnæðismálastjórnar, sem er ein
skúffa í ríkiskassanum að sjálf-
sögðu, til Byggðastofnunar sem er
önnur skúffa, til Lánasjóðs ísl.
námsmanna sem er líka fullverð-
tryggður sjóður þó hann sé vaxta-
laus eða vaxtalítill, og nokkurra
smærri sjóða, — sem eingöngu
ríkissjóður sjálfur á. Alltaf er látið
færa til gjalda milljarða á milljarða
ofan og telja það útgjöld þegar ver-
ið er að lána fé til húsbyggjenda,
t.d. á fullri verðtryggingu og jafn-
vel þó að það séu ekki nema 3*/2%
vextir, sem eru mjög háir. Að raun-
vextir í fasteignaviðskiptum séu
hærri en 3'/2% þekkist ekki, þeir
eru kannski 4,5, og 6% í nágranna-
löndunum sumum þar sem þeir eru
hæstir jafnvel, en þar ríkir alltaf
2—3% verðbólga þannig að þeir eru
lægri en vextimir hér. Rétt upp
gert ætti ekki að færa til gjalda
allt það sem ríkissjóður er að færa
upp úr einni skúffu í aðra hjá sjálf-
um sér. Þá er ekki talið allt
bankakerfið, ekki Seðlabankinn,
sem auðvitað er deild í ríkissjóði,
ekki allir atvinnuvegasjóðir, ekkert
af þessu, bara ríkissjóður sjálfur.
Hann bókfærir allt að það séu gjöld
sem hann er að færa úr einni skúffu
í aðra. Það eru ekki gjöld.
Af því að ég sé Guðmund H.
Garðarsson hér: Hvað mundu menn
segja ef sjóður hans félags, verslun-
armannasjóðurinn, sem er álíka stór
og húsnæðissjóður ríkisins, hygg
ég, 12—14 milljarðar eða hvað það
nú er, segði um áramótin: Ja, ég
er kominn á hausinn. Ég er búinn
að lána allt féð út. Að vísu á fullum
verðtryggingum og vöxtum. Nei,
ég varð að færa það allt til gjalda.
— Það gerir ríkissjóður. Ef menn
ekki skilja þetta einfalda dæmi
skilja menn ekki neitt. Ég vil fá að
sjá þessar tölur áður en ijárlögin
verða héðan afgreidd. Ég vonast
til að það verði innan tveggja eða
þriggja daga. Því var lofað og Al-
þingi á heimtingu á að fá að sjá
þessar tölur. Og einn í þessari
nefnd, dr. Tor Einarsson prófessor
í Háskólanum, birti í maímánuði sl.
upplýsingar einmitt um starf þess-
arar nefndar, þar sem hann fullyrðir
að beinar fjármálalegar kröfur
ríkissjóðs á borgarana, okkur hér,
séu a.m.k. 6 milljörðum hærri en
allar kröfur íslenskra borgara á
ríkið, þ.e. öll skuldabréfalánin og
allt það er 6—7 milljörðum lægra
en kröfurnar sem ríkið á á okkur,
fýrst og fremst auðvitað út af hús-
næðisstjórnarlánunum. Þessu er
öllu snúið við og sagt að ríkið sé
svo stórskuldugt að næsta kynslóð
þurfí að borga þessi lifandis skelf-
ingar ósköp. Þess vegna eru menn
á móti því að ríkissjóður afli sér
einhvers hluta af því fé, sem hann-
þarf til síns rekstrar eða fram-
kvæmda, að láni. Nei, nei, það er
alveg þveröfugt. Ofan á allt það fé,
sem ríkissjóður þarf til síns rekstr-
ar, verða líka hirtir af okkur til
viðbótar nokkrir milljarðar. Þetta
hefur verið svona að undanförnu.
Og nú bíð ég eftir að fá að sjá
þessa skýrslu og ég veit að þið hv.
þm. takið nú undir með mér um
að það líði ekki margir dagar þang-
að til við fáum staðreyndirnar á
borðið.
Morgunbladið/Bjarni
Elín Egilsdóttir, Sigþór Guðbrandsson og Kristján Pálsson bæjarstjóri, formaður Afmælisnefndar,
afhenda Vigdísi Flnnbogadóttur, forseta íslands fyrsta eintakið af Sögu Ólafsvikur. Aðrir í Af-
mælisnefnd voru Sigurður Brandsson, Helgi Kristjánsson og Margrét Jónasdóttir.
Saga Ólafsvíkur:
Forsetanum afhent fyrsta eintakið
Ólafsvík.
VIGDÍSI Finnbogadóttur for-
seta íslands var í gær afhent
fyrsta eintakið af sögu Ól-
afsvíkur, fyrra bindi, sem nú
er að koma út. Gísli Ágúst
Gunnlaugsson sagnfræðingur
skráði söguna í tilefni af 300
ára verslunarafmæli Ólafsvík-
ur. Fyrra bindi nær frá land-
námi til ársins 1911 en seinna
bindi er væntanlegt í kjölfarið.
Ástæða þess að forsetanum var
afhent fyrsta eintakið er ekki síst
sú að Ólafsvíkingum er enn í
fersku minni hin ánægjulega og
velheppnaða heimsókn forsetans
til Ólafsvíkur þegar verslunaraf-
mælisins var minnst, 15. og 16.
ágúst í sumar. Það voru fulltrúar
úr Afmælisnefnd Ólafsvíkur sem
færðu Vigdísi bókina á skrifstofu
hennar í Reykjavík í gær.
— Helgi
Einars saga Þorgilssonar
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá,
Hafnarfirði, hefur gefið út
bókina Hafnarfjarðarjarlinn
— Einar saga Þorgilssonar,
sem Ásgeir Jakobsson skráði.
Ásgeir Jakobsson hefur meðal
annarra bóka ritað Einars
sögu Guðfinnssonar og
Tryggva sögu Ófeigssonar,
sem Skuggsjá gaf einnig út á
sínum tíma.
Hafnarfjarðaijarlinn er ævisaga
Einars Þorgilssonar og segir frá
foreldrum Einars, æsku hans í
þurrabúð í Garðahverfi, og síðan
frá Einari sem formanni og út-
vegsbónda á árabátatímanum,
kútteraútgerðarmanni á kútteratí-
manum og útgerðarmanni fyrsta
íslenzka togarans. Bókin er einnig
100 ára útgerðarsaga Einars
Þorgilssonar og þess fyrirtækis,
sem lifði eftir hans dag og er elzta
starfandi útgerð í landinu, rekin
samfellt í heila öld og byijuð önn-
ur öldin.
Hafnarfjarðaijarlinn er 86 ára
saga verzlúnar Einars Þorgilsson-
ar, sem er elzta starfandi einka-
verzlun í landinu, rekin samfellt í
heila öld og byijuð önnur öldin.
Hafnarfjarðaijarlinn er 100 ára
Iíafnarfjarðarsaga. Einar Þorgils-
son var einn af „feðrum“ bæjarins,
ásamt því að vera stór atvinnurek-
andi var hann hreppstjóri Garða-
hrepps þegar hreppnum var skipt.
Einar varð sem bæjarfulltrúi í
flestum þeim nefndum bæjarins,
sem lögðu grunninn að bænum.
Einar var 1. þingmaður Gull-
A S G t I_R_I A K Q B S S O N
HlfXlIf
MlRDiUI
JAKUJXX
i;ixAits s.uí.1
IHHNiUSSOX.Ul
S K II G G S J Á
bringu- og Kjósarsýslu um skeið,
og flutti fyrstur manna frumvarp
um Hafnarfjörð sem sér kjördæmi.
Hafnarljarðaijarlinn er Coots-
saga fyrsta íslenzka togarans,
sögð eftir heimildum, sem ekki
voru áður kunnar. Bókin er al-
menn sjávarútvegssaga í 100 ár,
sögð um leið og einkasaga Einars
Þorgilssonar.
Hafnarfjarðatjarlinn er 317
blaðsíðuf. Bókin var sett og prent-
uð í Prisma, Hafnarfirði, og bundin
í Bókfelli. Kápu gerði Auglýsinga-
stofa Þóru Dal, Hafnarfirði.
(Fréttatilkynning.)