Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
Þýskaland:
Sýknaður eftir 16
ára fangelsisdvöl
Hamborg, Reuter.
VESTUR-ÞÝSKUR karlmaður, sem hafði verið í fangelsi í 16 ár
fyrir barnsmorð, var sýknaður í gær eftir að fram höfðu komið ný
gögn sem sýndu að hann hefði verið hjá tannlækni og hjá rakara
þegar morðið var framið.
Holger Gensmer var dæmdur í
lífstíðarfangelsi árið 1971 fyrir að
hafa misnotað sex ára gamla stúlku
kynferðislega og kyrkt hana síðan
í skógi í Hamborg. Lögfræðingur
hans fékk því síðan framgengt að
réttað yrði aftur í þessu máli eftir
að hann hafði fundið gögn í skjala-
safni lögreglunnar sem sýndu að
Gensmer hefði verið hjá tannlækni
og rakara þegar morðið var framið.
Dómarinn sem sýknaði Gensmer
ákvað að hann fengi ekki bætur
vegna fangelsisdvalarinnar þar sem
hann hefði játað að hafa framið
morðið, þótt hann hefði seinna
dregið játninguna til baka. Að sögn
dómarans hafði Gensmer sennilega
játað vegna þess að hann þoldi ekki
álagið í yfirheyrslum lögreglunnar.
Veðrahamur vestra
Reuter
Hið versta veður er nú viða í Bandaríkjunum, ekki síst í Miðvest-
urríkjunum þar sem snjónum hefur kyngft niður síðustu tvo daga.
Þessi mynd var tekin í St. Louis í fyrradag en þar hefur hriðin
verið hvað áköfust.
Gríska olíuskipið Ariadne skömmu eftir sprenginguna.
Persaflói:
Reuter
Irönsk freigáta ræðst
á grískt risaolíuskip
Dubai, Reuter.
ÍRÖNSK freigáta skaut á grískt
oliuskip í Persaflóa í gær eftir
að skipið hafði ekki svarað við-
vörunarköllum. Mikil sprenging
varð í skipinu og þurftu skip-
verjar því að yfirgefa skipið.
Hvarf suður-kóresku þotunnar:
Grunsamlega konan
framseld til S-Kóreu
Yfirvöld í Bahrain sögðu sannað að parið hefði grandað þotunni
Seoul. Reuter.
Yfirheyrslur hófust í gær í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, yfir
konunni dularfullu, sem talin er hafa átt aðild að hvarfi suður-
kóreskrar farþegaþotu með 115 manns innanborðs 29. nóvember
síðastliðinn. Konunni var flogið til Suður-Kóreu ásamt líki fylgdar-
manns hennar í fyrrinótt. Yfirvöld í Bahrain framseldu hana á
þeirri forsendu að suður-kóresk yfirvöld hefðu lagt fram „gögn, sem
sönnuðu að parið hefði grandað kóresku þotunni að fyrirmælum
[yfirvalda í] Norður-Kóreu,“ eins og sagði í yfirlýsingu stjórnarinnar
í Manama.
í gær fannst brak úr flugvélinni
fljótandi á hafi úti 210 mílur suð-
austur af Rangoon í Burma. Meðal
þess var hluti af björgunarbát og á
honum var merki KAL, kóreska
flugfélagsins. Fundurinn styður
fullyrðingar yfirvalda í Suður-
Kóreu þess efnis að hryðjuverka-
menn, sem verið hefðu útsendarar
Norður-Kóreumanna, hefðu
sprengt þotuna í loft upp.
Konan grunsamlega var veik-
burða að sjá og kjökrandi þegar
hún var leidd niður landgang breið-
þotu, sem send var eftir henni til
Bahrain, og inn í sjúkrabíl. Hafði
hún verið kefluð til þess að hindra
sjálfsmorðstilraun. Virtist hún grát-
andi. Suður-kóresk blöð sögðu í gær
að konan hefði við yfirheyrslur í
Bahrain sagst vera fædd í héraðinu
Heilongjiang í norðausturhluta
Kína og heita Bai Huahui. Sagðist
hún hafa á sínum tíma farið til
Macao þar sem hinn látni fylgdar-
maður hennar hefði ráðið sig sem
eldabusku sína og fylgdarkonu.
Norður-kóresk yfirvöld mót-
mæltu framsali konunnar harðlega
í gær og sögðu það stangast á við
alþjóðareglur. Harðneituðu þau að
hafa átt aðild að hvarfi þotunnar,
eins og stjórnvöld í Bahrain hefðu
fullyrt.
Parið ferðaðist á fölsuðum jap-
önskum vegabréfum en ekki hefur
Að sögn heimildarmanna hafði
freigátan varað skipstjóra
Ariadne, sem er 102.088 tonna
olíuskip, þrisvar sinnum við og
hótað skotárás ef skipið svaraði
ekki. Freigátan hefði síðan skot-
ið eftir að ekkert svar hefði
borist og þilfar olíuskipsins hefði
tæst upp í mikilli sprengingu.
Heimildarmennirnirj sem höfðu
sagt fyrr í vikunni að Iranir notuðu
ný íkveikjuvopn gegn olíuskipum,
sögðu að freigátan hefði elt olíu-
skipið í 7 klukkustundir áður en
árásin hefði hafist. Hún hefði hafið
eltingarleikinn eftir að hraðbátar
hefðu gert skyndiárás á skipið
stuttu eftir dögun. Eldur hefði kom-
ið upp í skipinu eftir þá árás en
skipveijamir hefðu getað slökkt
hann sjálfir.
Heimildarmennirnir segja enn-
fremur að bandaríski tundurspillir-
inn Chandler hafi verið innan við
hálfa sjómílu frá olíuskipinu þegar
sprengingin varð. Tundurspillirinn
hafi ekki gripið til neinna aðgerða
því reglur banni honum að vemda
skip sem ekki séu bandarísk. Öllum
skipveijum var bjargað.
Við berum ekki einir
ábyrgð á blóðbaðinu í Róm
segir Ibrahim Khaled, sakaður um hryðjuverk
Róm, Reuter.
Réttarhöld hó-
fust í Róm i
gær yfir þrem
ur hryðju-
verkamönnum.
Ibra- him Mah-
mood Khaled
er sakaður um
að hafa staðið
fyrir árás á
flugvöll í RÓm
þann 27. des-
ember árið
1985. Hann
sagði við upphaf réttarhaldanna
að ísraelsk öryggislögregla bæri
Ibrahim Mah-
mood Khaled.
líka ábyrgð á dauða 16 manna í
árásinni.
Khaled og þrír félagar hans myrtu
13 manns í árásinni á afgreiðsluborð
Bandaríkjamanna og ísraelsmanna
á flugvellinum í Rom. Khaled særð-
ist alvarlega í skothríð sem fylgdi
árásinni og félagar hans féllu fyrir
byssukúlum ísraelskra öryggisvarða.
„Við áttum ekki einir hlutdeild að
blóðbaðinu. Ég viðurkenni að við
erum sekir. En hinir eru líka sekir.
ísraelsmennimir skutu 72 tveimur
skotum til að reyna að drepa fjóra
menn,“ sagði Khaled á góðri ítölsku.
„Mér þykir leitt að blóðbaðið skyldi
enda á þennan veg. Ég hafði þetta
ekki í huga og ekki félagar mínir
né þeir sem skipulögðu árásina,"
bætti Khaled við en hann er einung-
is tvítugur að aldri.
Abu Nidal sem er palestínskur
skæruliðaleiðtogi og aðstoðarmaður
hans Rashid A1 Hamieda eru ákærð-
ir í fjarveru sinni fyrir hryðjuverk.
Að sögn saksóknara í Róm stóð
Nidal á bak við hryðjuverkin í Rom
og á flugvelli í Vín á sama tíma en
þar féllu þrír menn.
Réttarhöldin í Róm fara fram í
rammgerðasta fangelsi borgarinnar.
Þyrla lögreglu sveif í gær yfir fang-
elsinu og öryggisverðir standa vörð
umhvei'fís fangelsið af ótta við árás-
ir hryðjuverkamanna.
Reuter
Lögreglumynd af konunni grun-
samlegu
tekizt að færa sönnur á uppruna
þess. Yfírvöld í Japan hafa sagt að
hugsanlega hefði karlinn fullorðni
verið norður-kóreskur stjórnarer-
indreki, sem starfaði í Kuala
Lumpur um skeið.
Tugþúsundir manna söfnuðust
saman í Seoul, höfuðborg Suður-
Kóreu, og hrópuðu „Leggjum
Norður-Kóreu í rúst“ og „Kálum
Kim Il-sung“ vegna meintrar aðild-
ar Norðanmanna að hvarfi suður-
kóreskrar farþegaþotu á leiðinni frá
Baghdad í írak til Seoul.
Efnt hefur verið til hvers mót-
mælafundarins af öðrum í Suður-
Kóreu í framhaldi af hvarfi
þotunnar. Talið er að fullorðinn
karl og ung kona, sem nú hefur
verið framseld til Suður-Kóreu, hafi
komið tímasprengju fyrir í þotunni
en þau voru handtekin í Bahrain
og gleyptu þá bæði sjálsmorðspillu.
Konan lifði af en yfirheyrslur yfir
henni í Bahrain báru lítinn árang-
ur, að sögn heimildamanna.
Spánn:
ETA lýsir
yfir ábyrgð
á sprengju-
tilræðinu
Bilbao, Reuter.
Aðskilnaðarsamtök Baska,
ETA, lýstu seint á mánudag yfir
ábyrgð á sprengjutilræðinu í
Sarragossa á föstudag þar sem
11 manns létu lífið, þar af 4 börn,
og 34 særðust.
í yfirlýsingu ETA segir að sam-
tökin séu ánægð með „raunverulega
eyðileggingu“ búða þjóðvarðliða í
Sarragossa og með fjölda þjóðvarð-
liðanna sem létust. Samtökin harmi
hins vegar að fjölskyldumeðlimir
þeirra skyldu látast.
ETA-samtökin lýstu einnig yfir
ábyrgð á tveimur öðrum árásum á
föstudag. í annarri þeirra var lið-
þjálfi í sveit þjóðvarðliða skotinn til
dauða og í hinni særði bréfsprengja
lögreglumann í Basauri.