Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 32
32
\
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
Áhrifamikil verk
— seg-ir gagnrýnandi The Scotsman um sýningu Sigríðar Ásgeirsdóttur
Eins og frá var greint í Morgun-
blaðinu á dögunum stendur nú
yfír sýning á verkum Sigríðar
Asgeirsdóttur myndlistarmanns í
Vaughan Gallery í St. Andrews í
Skotlandi. Miðvikudaginn 18.
nóvember ritaði John di Folco
listagagnrýnandi mjög lofsamlega
um sýninguna í dagblaðið The
Scotsman, sem gefið er út í Edin-
borg. Fer grein hans hér á eftir:
„Listamaðurinn Sigríður Ás-
geirsdóttir er enginn nýgræðingur
í Skotlandi. Hún stundaði nám við
Listaháskólann í Edinborg árin
1979—1984, vann samkeppni um
steindan glugga í kapellu Comton
Vale, kvennafangelisins í Stirling,
auk þess sem hún hefur tvívegis
áður átt verk á sýningum hérlend-
is. _
Á sýningu hennar í Vaughan
Gallery í St. Andrews eru saman
komin mjög íjölbreytt verk og um
leið eru endumýjuð tengsl sýning-
arsalarins við Island, en hann hóf
starfsemi undir heitinu The
Nordic Gallery.
Sigríður sýnir nú í fyrsta sinn
fimm verk þar sem notuð er blönd-
uð tækni. Þau eru með afbrigðum
Sigríður
Ásgeirsdóttir
fragments
' plate gUss
bwk. fÆate
■*\t - -
w scoUand
aísa--as ag.**asís gpiSíS
““■íWssar&s
•ther a
■ — weli
I IcelandJc
i which thia
I thename
«SímtSS&,X " ** “Wly-ait
wlde ranee’ i predaioa ■Mntt Stjength there ls a cleer
*" 'n,gm‘Uc ^tor 1
____John di Folc
Glasgowc Three Slsters
sHSSSS á,p.aTAus
and
I ate
áhrifamikil. Þessi verk eru máluð
með hrjúfum blýdufts- og kola-
strokum og tryllingslegum
rauðum og hvítum akrílflekkjum.
Þau sýna skrímsli aftan úr fom-
eskju, gædd mannlegum tilfinn-
ingum, betjast og eðla sig með
ofsafengnum árásum, og vekja
hugboð um skuggalegt tilgangs-
leysi lífsaflanna.
Þama em líka mikilfengleg og
stílhrein verk úr steindu gleri,
„Fimm systur" og „Skógur". Þau
ijóma af agaðri nákvæmni. Lista-
maðurinn hefur fulla stjóm á
formi þessara mynda og það verð-'
ur máttugt og brothætt í senn.
Þær eru settar saman úr máluðum
glersneiðum sem límdar em á
gagnsæjar glerplötur. Þar renna
dökk laufótt mynstur og ljósir
dílar fagurlega saman í eitt. Því
miður er dregið ofurlítið úr myrku
gagnsæi þessara verka og þar
með úr heildaráhrifum þeirra, með
ónógri baklýsingu og fremur
óskipulegri uppstillingu.
í öllum þessum stóm verkum
og hinum nýskornu tréskúlptúr-
um, „Tumum styrkleikans",
kemur greinilega fram vaxandi
öryggi í meðferðinni á hreinu
formi, sem skilar sér ekki alveg
nógu vel í hinum tólf dularfullu
blekteikningum hennar.
TOLLALÆKKUNI Armúla 17!
KENWOOD GEISIÆPIIÆI
w DP-460
NÝ VERSLUN - NYTT VERÐ
Við bfðum ekki til áramóta. Höfum nú þegar lækkað verðið á geislaspilurum í það verð sem
verður við tollalækkun eftir áramót.
ATH.: 10% afsláttur af geislaplötum í eitt ár til
þeirra sem kaupa geislaspilara hjá okkur.
Goodmans
NAD
FALKANS
SÍMAR 688840 - 83176
POSTKROFUSIMI 685149 ALLAN SOLARHRINGINN