Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
59
Þrjár „Rauðar ástarsögur“
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafn-
arfirði, hefur gefið út þijár nýjar
bækur í bókaflokknum Rauðu
ástarsögurnar: Góða hirðinn eft-
ir Else-Marie Nohr, Svörtu
augun eftir Erik Nerlöe og Tínu
eftir Evu Steen.
Góði hirðirinn íjallar um konu
sem hverfur og ekkert spurðist til
í fjögur ár. Loks var hún talin af
og álitin dáin, en dag einn birtist
hún í sendiráði í Thailandi, að-
framkomin og þungt haldin af
hitasótt og mundi ekki hvað hún
hét. Með góðri læknishjálp nær hún
sér fljótt, og nokkru seinna er hún
á leið heim. Hún er full af lífsþrótti
og hlakkar til að sjá áftur mann-
inn, sem hún elskar og hafði gifst
stuttu áður en hún varð fyrir áfall-
inu. En ljögur ár er langur tími og
maður hennar hafði fyrir löngu tal-
ið hana af.
Um Svörtu augun segir: „Hin
svörtu augu unga sígaunans vöktu
þrá söguhetjunnar eftir frelsi —
frelsi sem hún hafði lítið kynnst
áður. Og Ijúfir tónar fiðlu hans ollu
því, að hún ákvað að flýja burtu
með honum. En vissi hún hvert hún
var að flýja? Nei, hún var of ung
og reynslulítil til að vita það. Hún
skildi ekki að blind ást hennar leiddi
hana aðeins út í ófyrirsjáanlegar
hættur."
Tína er ung og .fögur, segir í
kynningu útgefanda. Hún hefur
kynnst manni sem hún elskar og
framtíðin blasir við þeim. En ákveð-
Erik Nerlöe
SVÖRTU
AUGUN
ið atvik verður til þess að skilja
þau. Hún sér sig nauðbeygða til að
hverfa úr lífi hans. Með fegurð sinni
og miklum hæfileikum sínum á
listaskautum nær hún langt, en
þegar best gengur uppgötvast að
hún er haldin banvænum sjúkdómi.
Einmitt þá kemur maðurinn sem
hún elskar aftur inn í líf hennar.
Allar bækurnar voiu settar og
prentaðar í Prentbergi. Góði hirðir-
inn var bundin í Bókfelli, en hinar
tvær í Arnarfelli. Skúli Jensson
þýddi allar bækumar.
IVID TRYOGJUM
ÞftR MM SIM
MJYMAST SftlNT
Nýiasta frá Canon. Sá
hraoasti oa nákvæmasti.
Bæði alsjálfvirk, hálf-
sjálfvirk og handvirk.
Toppurinn ! dag.
j^Canon I
r eas |
I
Alsjálfvirk 35 mm
myndavél. Algjört
frelsi frá öllum
stillingum. Ódýr
myndavél fyrir
alla
6 GÓDAR ÁSTÆDUR TIL AÐ
LÁTA DRAUMINPfl RÆTAST.
Einnig mikið úrval af siónaukum, flössum,
myndavélatöskum, þrífótum, myndrömmum,
myndaalbúmum, Ijósmælum, efni og pappír
til framköllunar, Ijósstöndum, Ijóshlífum,
og öllum hlutum til notkunar í myrkvaherbergi.
LJÓSMYNDABÚDIN
Lauaavegi 118
(vio Hlemm)
s. 27744
VILDARK/ÖR
VÍSA
Einstæð og eftirminnileg saga manns
sem leggur allt undir í örvæntingar-
fullri baráttu sinni við óvægin örlög,
bók sem oft hefur verið líkt við fræga
ævisögu Martins Grey, Ég lifi, enda
vekur hún sömu tilfinningar hjá les-
endum.
Mögnuð og átakanleg lýsing á grimmum
og miskunnarlausum örlögum og mann-
legri þjáningu, saga sem grípur lesandann
heljartökum og heldur honum föngnum
frá upphafi til enda. Þetta er saga manns
sem er hrakinn út í ógæfuna af eigin ástríð-
um og örvæntingu, sjúkur á sál og líkama.
Eitt sinn var hann elskaður og dáður um
allan heiminn, en nú er hann flestum
gleymdur. Eftir tuttugu ára bið fær hann
loks eitt einasta tækifæri til að sýna hvað í
honum býr. En er það of seint? Hefur hann
þegar steypt sjálfum sér og öðrum í glötun?
Ógnvekjándi saga sem lýsir skuggahliðum
mannlífsins og örlagaþrungnum atburðum
vægðarlaust en þó af djúpum skilningi og
samkennd. Sá sem hér segir frá hlífir
engum, hvorki sjálfum sér né lesendum,
við afdráttarlausri játningu sinni.