Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 86
86
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
HANDKNATTLEIKUR
Hilmar hefur valið Belgíu-
og Lúxemborgarfarana
- Landsliðið leikurfjóra landsleiki íferðinni
Hilmar Björnsson, fyrrum
landsliðsþjálfari f handknatt-
leik, hefur valið. fímmtán manna
landsliðshóp, sem hefur til Belgíu
á morgun. Landsliðið mun taka þar
þátt í fjögurra landsliðs móti um
næstu helgi. Landsliðið mun leika
upphitunarleik í Lúxemborg annað
kvöld.
Mótið í Belgíu hefst á föstudaginn.
Landslið frá Belgíu, Alsír, Frakkl-
andi og íslandi taka þátt í mótinu.
Landsliðshópur Hilmars Bjömsson-
ar er skipaður þessum leikmönnum:
Markverðir Sigmar Þór Óskarsson,
Stjömunni, Hrafn Margeirsson, ÍR
og Guðmundur A. Jónsson, Fram.
Aðrir leikmenn: Hans Guðmunds-
son, Breiðablik, Gylfi Birgirsson,
Stjömunni, Birgir Sigurðsson,
Fra^m, Guðmundur Albertsson KR,
Bjöm Jónsson, Breiðablik, Óskar-
Ármannsson, FH, Skúli Gunn-
steinsson, Stjömunni, Hermann
Bjömsson, Fram, Ólafur Gylfason,
ÍR, Frosti Guðlaugsson, ÍR, Einar
Einarsson, Stjömunni' og Aðal-
steinn Jónsson, Breiðablik.
Morgunblaðið/Bjarni
Skúll Qunnstalnsson á fullri ferð. Hann er rétt kominn heim frá HM U-21
í Júgóslavíu og fer á morgun til Lúxemborgar og Belgfu með landsliðinu.
HANDBOLTI KV.
Öruggt hjá
Fram gegn
Haukum í
bikamum
Fram vann Hauka 26:17 í bikar-
keppni kvenna í handknattleik
í fyrrakvöld og var sigurinn aldrei
í hættu. í hálfleik var staðan 13:5
■^■■■1 °S var þá Ijóst hvert
Katrín stefndi. Haukaliðið
Fríðríksen Var dapurt, Margret
ríkrífar Theódórsdóttir
þjálfari sú eina, sem
spilaði af eðlilegri getu. Framstúlk-
umar vom frískar, nýttu sér
klaufaleg mistök Haukanna og
skomðu oft eftir hraðaupphlaup.
Mörk Fram: Guðriður Guðjónsdóttir 8, Oddný
Sigsteinsdóttir 6, Hafdis Gudjónsdóttir 5, Ama
Steinsen 3, Jóhanna Halldórsdóttir 2, Margrét
Blöndal 2.
Mörk Hauka: Margrét Theódórsdóttir 10,
Steinunn Þorsteinsdóttir 2, Halldóra Mathies-
en 2, Hrafnhildur Pálsdóttir 1, Elva Guð-
mundsdóttir 1, Ragnhildur Júliusdóttir 1.
BORÐTENNIS
Albrecht
sigraði
Albrecht Ehmann, Stjömunni,
sigraði félaga sinn Bjama
Kristjánsson 2:1 í úrslitum meist-
araflokks karla í punktamóti
Stjömunnar I borðtennis, sem fram
fór í íþróttahúsinu Ásgarði í
Garðabæ fyrir skömmu. 84 kepp-
endur tóku þátt í þremur karla-
flokkum og tveimur kvennaflokk-
um.
Albrecht vann Kjartan Briem, KR,
í undanúrslitum, en Bjami sigraði
far Jóhannes Hauksson, KR.
meistaraflokki kvenna sigraði Elfn
Eva Grímsdóttir, KR, Anna Sigur-
bjömsdóttir, Stjömunni, hafnaði í
2. sæti og Vilborg Aðalsteinsdóttir,
Stjömunni, varð þriðja.
Berglind Siguijónsdóttir, KR, sigr-
aði í 1. flokki kvenna, Trausti
Kristjánsson, Víkingi, í 1. flokki
karla og Sigurður Bollason, KR, í
2. flokki karla.
KNATTSPYRNA
Innanhúss-
mót að Varmá
umjólin
w
Iþróttafélagið Afturelding í Mos-
fellssveit gengst fyrir innan-
hússmóti í knattspymu í íþróttahús-
inu að Varmá dagana 26. og 27.
desember fyrir meistaraflokka
fþróttafélaganna. Sérhvert félag
getur sent þijú lið. Þátttaka þarf
að tilkynnast fyrir sunnudaginn 20.
desember (s. 666768 eftir kl. 19).
Þátttökugjald er fimm þúsund
krónur og verða verðlaun veitt
þremur efstu liðunum.