Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
23
Mislitt mannlíf
Békmenntir
Sigurður HaukurGuðjónsson
Mislitt mannlíf, ungling-a- og fjöl-
skyldusaga. Höfundur: Guð-
mundur L. Friðfinnsson. Setning,
umbrot og filmur: Filmur og
prent. Prentun: Prentstofa G.
Benediktssonar. Bókband: Am-
arfell. Útgefandi: Bókaútgáfan
Orn og Orlygur.
Af tilviljun er hún þessi saga í
mínum höndum og bqost mitt fyllt-
ist fögnuði við lesturinn: Hvílík
saga. Hér fer allt saman, efni sem
snertir fleiri og fleiri, frásagnar-
snilld höfundar og svo frábær
frágangur kiljunnar. Aftur Og aftur
kom mér í hug vísa eftir Örn Amar-
son við lesturinn:
Herðir frost og byljablök.
Ber mig vetur ráðum.
Ævi mín er vöm í vök.
Vökina leggur bráðum.
Því olli sjálfsagt að sagan er um
dreng, ekki mikinn bóg, heldur að-
eins svona venjulegan dreng sem
lífíð hellir yfir myrkri og kulda.
Fyrst kynnist hann hinum lamandi
ótta þeirrar martraðar er börn
skynja, þegar ást foreldra þeirra
er brunnin til ösku; síðan skilnaðin-
um sjálfum; og að lokum því er
móðirin reynir að venja hann undir
aga nýs föður. Söknuðurinn, mis-
kunnarleysi félaga, heift og reiði
hins aðkrenkta, breyta kolli drengs-
ins í orrustuvöll svo að hann ræður
ekki gjörðum sínum lengur. Utar
og utar af leið heilbrigðis er honum
ýtt og þar kemur, eftir misheppnað
rán, sem hann var af „félögum"
neyddur til, að móðirin er svipt
yfirráðarétti, drengurinn sendur í
sveit til betrunar.
En hver getur flúið sjálfan sig?
Drengurinn þolir ekki tortryggni
hinna strákanna í bænum. Alúð
húsmóðurinnar og vinátta úr aug-
um hundsins koma ekki í veg fyrir
flótta hans. En aftur: Hver getur
flúið sjálfan sig? Ur þeirri tilraun
kemur drengurinn nakinn:
„Brátt yfírvinnur lambið eðlis-
læga tortryggni skepnunnar og
kemur, reyndar hikandi í fyrstu og
Guðmundur L. Friðfinnsson
með varúð í augunum. En fyrr en
varir er hann farinn að totta putta
drengsins og dindillinn gengur ótt
og títt. Augun verða lygn og yfir
þau færist mild slikja.
Feldur lambsins er mjúkur og
hlýr. Ósjálfrátt minnir þetta á loð-
inn bangsa sem einu sinni beið
þolinmóður í litlu, blámáluðu rúmi,
þar sem ævinlega var öryggi og
skjól.
Öryggi og skjól.
Drengurinn tekur utan um lamb-
ið, hallar því að vanga sér. Sólin
skín og svörður vallarins kemur
sjálfkrafa með einhveija ólýsanlega
ró. Heimurinn er allt í einu góður
og býður upp á hvíld. Eins og hendi
sé veifað er drengurinn fallinn í
værð — sofnaður.
Heimalningurinn jórtrar, fuglar
kvaka, og rólegur andardráttur
drengsins fellur áreynslulaust inn í
sónötu morgunsins."
Já, höfundur kann að halda á
penna og skrifar af þrá til þess að
verða ungum að liði, stfllinn er tær
og undrafagur, minnir á vorblæinn
sjálfan.
1986 stendur á titilsíðu. Því veld-
ur að bókin var unnin þá en á
söluborðum fyrst 1987.
Þetta er meistaraleg saga, höf-
undi og útgáfu til mikils sóma því
að alúðin og vandvirknin skína af
hverri síðu.
-
speed
stick
DtODORANI
liyMINNSN
RfGUlAR
HAFÐU ALLT A
HREINU
FÁÐU ÞÉR
OTDK
frá MENNEN
SKÚLAGÖTU 32-34 - SlMI: 2 25 55 - PÓSTHÓLF 834 - 121 REYKJAVlK
SIMAHAPPDRÆTTI
STYRKTARFÉLAGS LAMAÐRA OG
MIÐI NR.: 999999 FATLAÐRA1987
Þin NÚMER
VERÐ KR.
300.00
Vinningar: 11 BIFREIÐAR SAMTALS AÐ VERÐMÆTI 5 MiLLJÓNIR KRÓNA
1. vinningur VOLVO 244
2. -6. vinningur NISSAN SU.NNY SEDAN MF
7.-11. vinningur NISSAN MARCH GL.
DREGIÐ 24. DESEMBER 1987
UPPLÝSINGAR í SÍMA 686690 OG Á SKRIFSTOFU FÉLAGSINS í SÍMA 84999
DRÆTTI HEFUR ALDREI VERIÐ FRESTAÐ
ODDI HF.