Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
49
Stuttar þingfréttir
Júlíus og Svavar gegn
hækkun launaskatts
Frumvarp um breytingar á
lögum um launaskatt var sam-
þykkt við aðra umræðu í efri
deild í gær. Meirihluti fjárhags-
og viðskiptanefndar lagði til að
frumvarpið yrði samþykkt, en
minnihlutinn, þeir
Júlíus Sólnes (B/Rn) og Svav-
ar Gestsson (Abl/Rvk) lögðust
gegn hækkun skatta á útflutn-
ingsatvinnuvegina eins og þeir-
segja að ráð sé gert fyrir í frum-
varpinu.
Sérstakur skattur
á verslunar- og
skrif stofuhúsnæði
Frumvarp um sérstakan
skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði var afgreitt við
aðra umræðu í efri deild í gær.
Meirihluti fjárhags- og við-
skiptanefndar lagði til að
frumvarpið yrði samþykkt
óbreytt, en Júlíus Sólnes
(B/Rn) skilaði séráliti og sagð-
ist ekki geta fallist á sérstakan
skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði frekar en annað
atvinnuhúsnæði og lagði því til
að frumvarpið yrði fellt.
Svavar Gestsson (Abl/Rvk)
sagðist samþykkja frumvarpið
með þeim fyrirvara að skattur-
inn yrði tvöfaldaður.
Gildistaka stað-
greiðslunnar
Frumvarp um gildistöku laga
um staðgreiðslu opinberra
gjalda var samþykkt við aðra
og þriðju umræðu í neðri deild
í gær án breytinga frá fjár-
hags- og viðskiptanefnd.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Atkvæðagreiðsla í sameinuðu þingi í gær um breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið.
Önnur umræða fjárlaga í sameinuðu þingi
Allar tillögnr stjómarandstöðu
felldar eða dregnar til baka
ÖNNUR umræða var í gær i
sameinuðu þingi um fjárlög
íslenska ríkisins fyrir árið 1988.
Breytingartillögur meirihluta
fjárveitinganefndar varðandi
aukningu á útgjaldahlið um
einn milljarð voru samþykktar
samhljóða, en tillögur stjórnar-
andstöðunnar voru ýmist felld-
ar eða dregnar til baka fyrir
þriðju umræðu. Umræðan stóð
í tæplega fjóra tíma.
Sextán sinnum þurfti að greiða
atkvæði með nafnakalli. Tillaga
Ragnars Arnalds og fleiri þing-
manna um aukið framlag til
tónlistarfræðslu var fellt með at-
kvæðum allra stjórnarliða nema
Friðjóns Þórðarsonar, sem greiddi
henni atkvæði sitt. Tillögur um
aukið framlag í íþróttasjóð vóru
felldar með atkvæðum stjórnar-
Önnur umræða fjárlaga:
Dagblöðin fá 26 millj-
óna króna ríkisstyrk
STYRKUR ríkisins til dagblað-
anna og kaup þess á blöðum kom
til sérstakrar atkvæðagreiðslu
og nafnakalls í sameinuðu þingi
í gær. Tillögur fjárlagafrum-
varpsins um 26 milljóna styrk,
svo og kaup á blöðum, voru sam-
þykktar með yfirgnæfandi
meirihluta.
Halldór Blöndal (S/Ne) krafðist
sérstakrar atkvæðagreiðslu um
þessi mál, en auk hans greiddu eft-
irfarandi þingmenn atkvæði gegn
blaðastyrknum: Birgir ísleifur
Gunnarsson (S/Rvík), Eggert
Haukdal (S/Sl), Eyjólfur Konráð
Jónsson (S/Rvík), Geir H. Haarde
(S/Rvík), Guðmundur H. Garðars-
son (S/Rvík), Kristín Halldórsdóttir
(K/Rn), Matthías Bjamason (S/Vf),
Ragnhildur Helgadóttir (S/Rvík) og
Þórhildur Þorleifsdóttir (K/Rvík).
Friðrik Sophusson (S/Rvík), Kristín
Einarsdóttir (K/Rvík), Danfríður
Skarphéðinsdóttir (K/Vl) og Óli Þ.
Guðbjartsson (B/Sl) sátu hjá, en
Málmfríður Sigurðardóttir (K/Ne),
Sighvatur Björgvinsson (Afl/Vf) og
Stefán Valgeirsson (Sjf/Ne) vom
fjarverandi. Allir aðrir þingmenn
samþykktu blaðastyrkinn og fjórir
til viðbótar samþykktu síðan kaup
stjómarráðsins á blöðum.
Allir þingmenn Borgaraflokksins
að Óla undanskildum samþykktu
styrkinn, en þess má geta að í
síðasta fjárlagafrumvarpi sínu lagði
Albert Guðmundsson, fyrmm fjár-
málaráðherra, til að styrkurinn yrði
afnurpinn, sem ekki varð úr.
liða. Tillaga Inga Björns Alberts-
sonar (B/Vl) um meira en
tvöföldun á framlagi til Ung-
mennafélags íslands var felld, en
margir stjórnarliðar höfðu fyrir-
vara á sínu atkvæði. Níels Arni
Lund (F/Rn), Ólafur Þ. Þórðarson
(F/Vf) og Alexander Stefánsson
(F/Vl) sögðust ekki greiða tillög-
unni atkvæði sitt, í trausti þess
að Ijárveitinganefnd hækkaði
framlagið á milli annarrar og
þriðju umræðu. Egill Jónsson gerði
einnig þann fyrirvara á atkvæði
sínu, að enn ætti eftir að afgreiða
málefni ÍSÍ og JJMFÍ frá fjárveit-
inganefnd. í atkvæðagreiðslu
um aukið framlag til Þróunarsam-
vinnustofnunar, sem Steingrímur
J. Sigfússon (Abl/Ne) lagði til,
gerði Árni Gunnarsson (Afl/Ne)
grein fyrir atkvæði sínu. Taldi
hann óviðunandi hversu framlag
íslenska ríkisins væri lágt, þrátt
fyrir ályktanir þingsins. Sat hann
hjá í atkvæðagreiðslu.
Eiður Guðnason:
Borgara-
flokkur með
málþóf
EIÐUR Guðnason, formað-
ur þingflokks Alþýðu-
flokksins, ásakaði í gær á
fundi efri deildar Júlíus
Sólnes, formann þing-
flokks Borgaraflokksins,
um málþóf og brot á sam-
komulagi formanna þing-
flokka um afgreiðslu mála
í þinginu.
Eftir fjárlagaumræðuna í
sameinuðu þingi voru fundir í
báðum deildum þingsins. Hó-
fust fundir klukkan 18 og
afráðið að ljúka þeim 19.30. I
efri deild var gengið frá stjórn-
arfrumvörpum vegna skatts á
verslunar- og skrifstofuhús-
næði og launaskatts til neðri
deildar, en rúmlega 18.30 hófst
fyrsta umræða um húsnæðis-
frumvarpið og átti að afgreiða
það til nefndar og annarrar
umræðu. Það tókst þó ekki þar
eð Júlíus Sólnes talaði í nær
klukkustund um frumvarp
Borgaraflokksins að nýju hús-
næðislánakerfí og um hús-
banka. Stöðvaði þingforseti,
Karl Steinar Guðnason (Afl/
Rn) Júlíus í miðri ræðu kl.
19.30 og frestaði fundi. Eiður
Guðnason kvaddi sér þá hljóðs
um þingsköp og gagnrýndi
Júlíus harkalega fyrir að tala
um mál í klukkustund, sem
ekki væri til umræðu og bijóta
það samkomulag þingflokk-
anna að afgreiða húsnæðis-
frumvarpið £il nefndar það
kvöldið.
AIMACI
Þingflokksformenn Sjálfstæöis-
og Framsóknarflokks:
Gæti komið til þing-
funda milli hátíða
Páll
Ólafur
AÐ SÖGN Páls Péturssonar,
formanns þingflokks Fram-
sóknarflokksins, er hugsanlegt
að Alþingi verði að starfa dag-
ana á milli jóla og nýárs.
„Takist ekki að afgreiða þau
mál fyrir jól, sem ríkisstjórnin
leggur áherslu á að fá sam-
þykkt fyrir áramót er ekki
nokkur spurning um það að
þingið verður að starfa þá
virku daga sem eru á milli jóla
og nýárs,“ sagði Páll. Ólafur
G. Einarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, tók
í sama streng; þennan mögu-
leika yrði að hafa opinn.
Mörg mál eru enn óafgreidd,
sem ríkisstjómin leggur áherslu á
að verði afgreidd fyrir áramót;
má þar helst nefna húsnæðisfrum-
varpið, kvótafrumvarpið, frum-
vörp um söluskatts-, tolla- og
vörugjaldsbreytingar, fjárlaga-
frumvarpið, staðgreiðslu skatta,
tekju- og eignaskattslög og fleira.
Eru þetta ýmist frumvörp, hverra
gildistöku þarf að miða við ára-
mót eða frumvörp, sem ráðherrar
leggja áherslu á að hljóti sam-
þykki fyrir áramót.
Vinna gengur ágætlega í flest-
um málum, en það sem Páll er
einna óhressastur með, er hversu
lengi sum mál hafa verið í nefnd
í efri deild, sem enn á eftir að
afgreiða í þeirri neðri, sem að
sögn Páls vantar verkefni. „Það
ríkir mjög góður andi í þinginu
og á stjómarandstaðan heiður
skilið fyrir málflutning sinn og
er ekki unnt að segja að þeir hafí
haldið uppi nokkm er jafna megi
til málþófs."
Páll sagði að þétt dagskrá væri
framundan í þinginu; kvöldfundir
og helgar. „Eg er ekki að gera
því skóna að þingstörf verði þessa
virku daga sem eru á milli jóla
og nýárs, enda er þingmönnum
jafnt sem starfsfólki mikið í mun
að til þess þurfí ekki að koma.
Verði þess hins vegar þörf verður
sú leið valin," sagði Páll.
Ekki hefur verið rætt um þenn-
an möguleika á formlegum
fundum formanna þingflokka og
þingforseta.
Breytingartillögur
stjórnarandstöðunnar við fjárlög:
Rúmlega tveggja millj-
arða aukin útgjöld
ÞINGFLOKKAR og einstakir
þingmenn stjórnarandstöðunnar
lögðu til breytingartillögur við
fjárlögin, sem samtals nema
rúmlega tveimur milljörðum.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
er eini þingflokkurinn, sem legg-
ur til aukna skattheimtu á móti,
en aðrir þingflokkar telja tillög-
ur sínar rúmast innan ramma
tekjuhliðar fjárlaganna.
f heildina nema tiillögur stjómar-
andstöðunnar rúmlega tveimur og
hálfum milljarði, en þegar frá eru
dregnar tillögur sumra þingmanna,
sem eru lægri eða jafnháar tillögum
annarra, er upphæðin rúmlega tveir
milljarðar.
Þingflokkur og einstakir þing-
menn Alþýðubandalagsins leggja til
breytingartillögur, sem nema tæp-
lega einum og hálfum milljarði í
aukin útgjöld. Á móti koma hins
vegar tillögur flokksins til aukinnar
skattheimtu, sem nema svipaðri
upphæð. Er þar um að ræða tillög-
ur til hækkunar tekjuskatts og
éignaskatts, auk sérstaks stór-
eignaskatts. Auk þess leggja
Alþýðubandalagsmenn einir þing-
flokka til lækkun útgjalda að því
er varðar gjöld til Atlantshafs-
bandalagsins og kostnað vegna
rekstrar ratsjárstöðva.
Þingflokkur Kvennalistans legg-
ur til hækkun útgjalda, sem nemur
tæplega 912 milljónum. Þingmenn
Borgaraflokksins leggja til aukin
útgjöld er nema 234 milljónum og
Samtök um jafnrétti og félags-
hyggju (Stefán Valgeirsson) leggja
til 35,6 milljónir í aukin útgjöld, auk
þess að styðja margar tillögur ann-
arra stjórnarandstöðuflokka.
í annarri umræðu um fjárlögin
lét Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra þau ummæli falla, að
þessar tillögur stjómarandstöðunn-
ar lýstu algeru ábyrgðarleysi og
sýndu að málflutningur þeirra væri
marklaus. Annars vegar væri lögð
til stóraukin skattheimta af þeim
flokki sem léti hvað hæst um met
núverandi ríkisstjórnar í skatt-
heimtu og hins vegar virtust stjóm-
arandstöðuþingmenn kæra sig
kollótta um það, hvort halli væri á
fjárlögum eða ekki.