Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
Fréttabréf frá Kaupmannahöfn:
Stjórnarskipti í félagi
íslenzkra námsmanna
Nýr Hafnarpóstur tekur við af Þórhildi
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
FÉLAG íslenzkra námsmanna í Kaupmannahöfn hélt nýlega
aðalfund og gerði fráfarandi formaður, Birna Baldursdóttir,
grein fyrir störfum þess. Félagar eru nú um 300. Aðeins tveir
stjórnarmenn sitja áfram, þau Aðalbjörg Jónsdóttir, sem nú er
formaður og Orn Þór Halldórsson, sem er spjaldskrárritari.
Aðrir í stjórn eru: Hlín Þorsteinsdóttir gjaldkeri, Sveinn Markús-
son ritari, Edda Rós Karlsdóttir, Aðalbjörg Karlsdóttir og Birna
K. Baldursdóttir meðstjórnendur. Nýr fulltrúi í húsnefnd Jóns-
húss er Þóra Leósdóttir, til vara Sveinn Markússon og nýir menn
\ félagsheimilisnefnd eru Ólafur Hjálmarsson og Vilhjálmur
Asgeirsson.
Útrás og
Nýr Hafnarpóstur
Fjölmiðlafundur var haldinn í
haust og rædd málefni Útrásar,
íslenska útvarpsins hér í borg, og
Nýs Hafnarpósts, sem íslenzku
félögin tvö gefa út. Útrás sendir
einu sinni í viku vetrarmánuðina,
þ.e. á laugardagskvöldum frá kl.
20—21. Utsendingar hafa tekizt
vel og aukið skilning og frétta-
streymi manna á meðal. Nú hefur
Ögmundur Jónasson fréttamaður,
fulltrúi íslenska sjónvarpsins hér,
haldið námskeið fyrir fjölmiðla-
fólkið og þótti það takast prýði-
lega. Þau, sem starfa við Útrás,
eru 15 talsins og skiptast í hópa
og eru tengiliðir hópanna: Helena
Ragnarsdóttir, Kristrún Leifs-
dóttir og Amar Ingólfsson.
Nýr Hafnarpóstur tók við af
blaðinu Þórhildi sem málgagn fé-
laganna. Hafa duglegir sjálfboða-
liðar unnið að því eins og öðmm
félagsstörfum og er aðalumsjón-
armaður þess nú Helena Mjöll
Jóhannsdóttir. Nú eru send út
stutt fréttabréf með tilkynningum
milli þess sem sjálfur Hafnarpóst-
urinn kemur út.
Erindi um skurðað-
gerð
Dr. med. Jón G. Hallgrímsson,
sem dvalið hefur í fræðimannsí-
búðinni í Jónshúsi undanfama
mánuði ásamt eiginkonu sinni,
Þórdísi Þorvaldsdóttur borgar-
bókaverði, flutti erindi í félags-
heimilinu 20. nóvember sl. að
beiðni námsmannafélagsins.
Nefndi hann erindi sitt „Að gang-
ast undir skurðaðgerð". Fjallaði
hann um upphaf og þróun skurð-
lækninga og greindi frá sérfræð-
inámi í skurðlækningum á Islandi.
Að lokum lýsti hann undirbúningi
sjúklings fyrir skurðaðgerð, fjall-
aði um skurðaðgerðina sjálfa,
tilgang hennar, markmið og af-
leiðingar. Urðu ijörugar umræður
að erindinu loknu.
Dr. Jón G. Hallgrímsson starf-
aði í mörg ár í Svíþjóð, m.a. í
Lundi óg Helsingborg, og síðan á
Landspítalanum í 13 ár, en vinnur
nú mest við vísindarannsóknir.
Hér hefur hann unnið að rann-
sóknarverkefni um carciroid-æxli
á íslandi tímabilið 1955—1984.
1. des. hátíðahöld
námsmannaf élagsins
Fullveldisdagsins var minnzt
hér í Jónshúsi með samkomu
FÍNK laugardaginn 28. nóvem-
ber. Ögmundur Jónasson frétta-
maður hélt hátíðarræðuna, séra
Ágúst Sigurðsson flutti frásögu-
þátt, Hans Unnþór Ólason las ljóð
og félagar úr hljómsveitinni Skrið-
jöklum sungu. Þá léku systkinin
Þorleikur og Hildur Jóhannesar-
böm á trompet og píanó. Um
kvöldið var fjörugur 1. des. dans-
leikur við Bispetorv, þar sem
hljómsveitin Skriðjöklar frá Akur-
eyrj lék við mikinn fögnuð gesta.
Á þriðjudagskvöld, 1. desem-
ber, efndi námsmannafélagið
aftur til samkomu og hélt Ólafur
Einarsson píanóleikari þar tón-
leika við hrifningu áheyrenda.
í slendingaf élagið
í Kaupmannahöfn
Á aðalfundi íslendingafélagsins
flutti formaður þess, Bergþóra
Kristjánsdóttir, skýrslu stjómar
og sagði frá störfum á árinu, sem
vom með hefðbundnum hætti.
Formaður bókasafnsnefndar,
Kristín Oddsdóttir Bonde, greindi
frá málefnum þess, en þar hefur
mikið verið unnið að endurbótum
á árinu, allt í sjálfboðavinnu og
raunar víðar í Húsi Jóns Sigurðs-
sonar.
Félagsheimilisnefnd, sem í em
fulltrúar' beggja íslensku félag-
anna, hefur átt fmmkvæði að
tækjakaupum til heimilisins. Hafa
verið keypt myndsegulband, út-
varp með stuttbylgju til að ná
Útvarp Reykjávík og hljómflutn-
ingstæki. Formaður félagsheimil-
isnefndar er Guðrún Valdimars-
dóttir. Hefur fjöldí gesta aukist
mjög undanfarið.
Félagar íslendingafélagsins em
um 800 talsins. Tveir stjórnar-
menn gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs og er stjórnin nú þann-
ig skipuð: Bergþóra Kristjáns-
dóttir formaður, Guðrún
Valdimarsdóttir varaformaður,
Jón Svavarsson gjaldkeri, Sigrún
J. Bmnhede spjaldskrárritari,
Guðrún Eiríksdóttir, Guðrún Fins-
en og Arnar Ingólfsson meðstjórn-
endur.
— G.L. Ásg.
V atnsendakj úkl-
ingnr — Hollusta
eftir Ingimund
Bergmann
í Morgunblaðinu 13. desember á
bls. 2 er frétt með fyrirsögninni
„Kjúklingar auglýstir þrátt fyrir
sölubann". Þar eð frétt þessi snert-
ir undirritaðan talsvert og ekki síður
vegna þess, að blaðið hafði ekki
fyrir því að hafa samband við mig
áiður en hún var birt, þá sé ég mig
tilknúinn að gera nokkrar athuga-
semdir við hana. Blaðið hefur áður
flutt fréttir af máli þessu, en aldrei
kynnt sér það frá báðum hliðum.
Hélt ég þó að það væri grundvallar-
regla góðs fréttamiðils að flytja
fréttir þannig að þær væm ekki
einhliða og að sem flest sjónarmið
kæmu fram. Rétt er að taka fram
að Mbl. er ekki eitt undir þessa sök
selt, fréttastofa Ríkisútvarpsins
hefur viðhaft sömu vinnubrögð í
máli þessu og er það að mínu máti
jafn ámælisvert.
í fréttinni er haft eftir Halldóri
Runólfssyni að ég verði kærður ef
ég sendi frá mér kjúklinga á mark-
að. Mér sýnist af þessu að Halldór
muni hafa nóg að gera á næst-
unni, því fulltrúi Hollustuvemdar
kennir það í Hótel- og veitingaskól-
anum að 50% af kjúklingum á
markaðnum séu með salmonellu.
Nú er það þannig að Vatnsenda-
kjúklingur hefur ekki verið á
markaði að undanfömu, og þó svo
hefði verið þá er langt frá að fram-
leiðsla á honum komist nálægt því
að vera fyrmefnd 50% af heildar-
framleiðslu kjúklinga í landinu. En
„Ef menn sjást á ferli
í Reykjavík með gas-
grímu fyrir andlitinu,
þá er svo sem hægt að
geta sér til um hverjir
þar séu á ferð.“
spurningin er, yfir hvað er Halldór
og félagar í Hollustuvernd að
hylma, hvers vegna þessar atvinnu-
ofsóknir gegn okkur og hverjum
er verið að þjóna?
Til upplýsingar fyrir lesendur og
viðskiptavini okkar er rétt að segja
frá því að við rannsóknir á stofn-
fuglum á Vatnsenda (480 fuglar,
rúmlega 300 sýni) tókst ekki að
fínna salmonellu. Ennfremur að
kjúklingum frá Vatnsenda er slátr-
að í öðru af fullkomnustu alifugla-
sláturhúsum landsins, sem stenst
m.a. strangar kröfur Bandaríkja-
manna.
Það er rétt sem segir í frétt
Mbl. að „talið var“ að matarsýking
hefði orðið af kjúklingunum í júlí
síðastliðnum. Hins vegar er löngu
sannað að svo var ekki. Hollustu-
vernd hafði ekkk fyrir því að
rannsaka hvaðan sýkingin var kom-
in. M.ö.o. upphlaup Hollustuvemdar
var ástæðulaust, eins og þeir hefðu
hugsanlega getað sagt sér sjálfir,
þar eð þeir hafa vitað um Salrnon-
ellu Thompson í kjúklingunum
árum saman og engar athuga-
semdir gert.
Dálítíð er það merkilegt að Hall-
dór skuli þá fyrst uppgötva skað-
semi Vatnsendakjúklinga er hann
hefur látið þjóðina eta mörg hundr-
uð þúsund máltíðir af þeim, og það
án þess að sú sérstæða tilrauna-
starfsemi bæri nokkurn árangur.
Þ.e. að saklausir neytendur fengju
af þeim matarsýkingu, því ekki er
vitað um eitt einasta tilfelli af mat-
arsýkingu, sem rekja má til
Vatnsendakjúklinga. Reyndar er
það svo, að ég tel flest benda til
að neytendur hafi mun meiri þekk-
ingu á þessum hlutum en þeir
hollustuverndarmenn. Og heldur er
nú farið að harðna á dalnum hjá
þeim Halldóri og félögum þegar
nýjustu fréttir frá Bandaríkjunum
ljóstra því upp, að salmonellur finn-
ist m.a.s. í loftinu sem við öndum
a<T okkur. Ef menn sjást á ferli í
Reykjavík með gasgrímu fyrir and-
litinu, þá er svo sem hægt að geta
sér til um hverjir þar séu á ferð.
Ég hef orð yfirdýralæknis fyrir
því að kjúklingana eigi að selja, og
skyldi engan undra þó að hann leggi
ekki til að gæðavöru eins og þess-
ari verði hent á haugana. Það get
ég upplýst að til þess manns ber
ég margfalt meira traust en þeirra
hollustuvemdarmanna allra saman-
lagt.
Þeir fjölmörgu sem bíða eftir
afgreiðslu pantana mega eiga von
á að þær verði afgreiddar á næstu
dögum, hvað sem líður jóla-tauga-
titringi Halldórs. Við munum
kappkosta að þjóna viðskiptavinum
sem best við getum hér eftir sem
hingað til. Ég vil að endingu þakka
þeim þá tryggð og það traust sem
þeir hafa sýnt okkur allan þann
tíma sem mál þetta hefur staðið
yfir.
Höfundur erkjúklingabóndi.
Vel heppnuð mat-
reiðslubók fyrir böm
_________Bækur________________
Sigrún Davíðsdóttir
Ánægjustundir í eldhúsinu.
Umsjónarmenn Anna Gísladóttir
og Bryndís Steinþórsdóttir hús-
stjórnarkennarar. ísafold 1987.
í tilefni af 110 ára afmæli ísa-
foldarprentsmiðju var auglýst í
ísafold eftir uppskriftum frá böm-
um, 10 ára og eldri. Úr þeim hafa
svo verið valdar uppskriftir, nokkr-
um bætt við og gefin út þessi
matreiðslubók bamanna með 110
uppskriftum.
Uppskriftirnar skiptast í nokkra
kafla, Drykkir, Kaldir réttir og
grænmetisréttir, Heitir réttir,
Avaxtasalöt og ábætisréttir og
Bakstur og sælgæti. Auk þeirra em
fræðandi kaflar um innkaup, góð
ráð, hollustuþankar, ábendingar um
mál og vog, kaflar um garðveislu,
nesti og síðan en ekki síst um ör-
yggi og slysahættur. Bókin ber það
því með sér að hún er vel hugsuð
og útfærð, meira heldur en bara
uppskriftasamtíningur, og það gef-
ur henni aukið gildi. Varla spurning
um að hún er hentugur inngangur
í matargerðina fyrir áhugasöm
börn.
Uppskriftirnar bera það margar
hveijar með sér fyrír hvaða aldurs-
hóp þær eru ætlaðar, en það er þó
snöggtum meira þama heldur en
bara svaladrykkir, pylsuréttir og
sætmeti úr morgunverðarkorni.
Þarna er meira að segja framsækin
og vel útfærð uppskrift af fíflasal-
ati, girnilegt kryddbrauð og lysti-
legt ávaxatahlaup úr góðum safa
og ávöxtum. Gott úrval af græn-
metissalötum er þarna. líka.
Bókin er vel frágengin, lipur í
höndum því hún er á gormi, upp-
setningin skýr og skipuleg, í fljótu
bragði sá ég ekki nema eitt atriði
sem kynni að vera villa: skyldi Coco
pops ekki egia að vera Coco puffs?
Reyndar er þessi matartegund og
aðrar skyldar ekki skemmtilegt hrá-
efni, en það þýðir lítt að argast út
í slíkt, því þetta virðist falla í bragð-
lauka æskunnar. En líka ágætt að
þarna er ekki yfírþyrmandi mikið
af þessari vafasömu hollustu, að
því er margir álíta. Myndirnar virð-
ast aðlaðandi fyrir þau böm, sem
hafa skoðað bókina hjá mér. Og
uppskriftimar höfðuðu mjög til
þeirra, ekki bara sætmetið heldur
líka hitt.
Það virðist því vera óhætt að
mæla með bókinni.
Hún ætti að geta lokkað börnin
til að feta sig inn á óravegu matar-
gerðarinnar.
ALrr
ÁHREINU
MEÐ
&TPK