Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
7
Nýr biskup
kaþólskra
JÓHANNES Páll páfi II hefur
útnefnt dr. Alfred Jolson, S.J.
biskup kaþólsku kirkjunnar á
Islandi.
<
Jolson er fæddur 18. júní 1928
í Bandaríkjunum. Hann hefur kom-
ið nokkrum sinnum til Islands en
afi hans var Islendingur, sem flutt-
ist til Noregs og kvæntist þar
norskri konu. Faðir hans flutti til
Bandaríkjanna og settist þar að.
Dr. Jolson gekk í reglu Jesúíta
árið 1946 og var vígður til prests
14. júní 1958. Hann lauk licenciats-
prófí í guðfræði, doktorsprófi í
heimspeki og félagsfræði við Greg-
oriana-háskólann í Róm og MA-
prófi í viðskiptafræðum við
Harward-háskóla í Bandaríkjunum.
Hann hefur síðan starfað sem
háskólakennari í Bagdad, Salisbury
í Ródesíu, en þó lengst af í Banda-
ríkjunum við University of St. Josef,
Philadelphia, Boston College of
Business og starfar nú sem fram-
kvæmdastjóri Wheeling College í
Véstur-Virginíu.
TÓMAS DAVÍÐSSON
Tungumál
fuglanna
íslensk spennusaga.
„Tungumál fuglanna er lipurlega samin,
... Sú spurning, sem er rauði þráöur í bók-
inni, hvort fjölmiðlamenn séu að láta fólk úti
í bæ, þar á meðal valdagráðuga stjórnmála-
menn, misnota sig, hefur verið og er ofar-
lega í hugum þeirra sem fjölmiðlum stjórna“.
Elías Snæland Jónsson Dagblaðinu.
^vort á fivítu
3
Hætt að
nota sím-
strengmn
milli Is-
lands og
Færeyja
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni,
fréttarítara Morgunblaðsins.
EKKI verður gert við sæsíma-
strenginn milli íslands og
Færeyja, sem slitnaði fyrir tæp-
um mánuði, enda var notagildi
hans orðið takmarkað og við-
gerð dýr.
Talið er að viðgerð á strengnum
borgi sig ekki, en leiga á viðgerð-
arskipi er um 600 þúsund íslen-
skar krónur á dag og alls mun
það kosta um sex milljónir króna
að gera við sæstrenginn.
Símstrengurinn, sem hefur 36
línur, var lagður árið 1962. Frá
árinu 1981 hefur hann aðeins
verið notaður sem varastrengur
fyrir símstrenginn milli Islands og
Hjaltlandseyja. Sá strengur hefur
480 línur og er aðeins helmingur
þeirra nýttur.
Lokið var við smíði móttöku-
stöðvar fyrir gervihnattasending-
ar í nágrenni Þórshafnar sl.
sumar, og á hún að komast í gagn-
ið fljótlega. Þá verður ekki lengur
þörf fyrir gamla strenginn milli
Islands og Færeyja, en það mun
líka hafa verið ákveðið fyrir
nokkru að strengurinn yrði tekinn
úr notkun um næstu áramót
Móttökustöðin mun til að bytja
með geta tekið við 120 línum, en
síðar á að stækka hana upp í allt
að 540 línur. Þetta kerfi á að
geta náð allt til Grænlands og til
olíuborpalla í Norðursjó.
Að sögn Þorvárðar Jónssonar,
framkvæmdastjóra tæknideildar
Pósts og síma, mun eyðilegging
sæstrengsins hafa sáralítil áhrif.
Sú þjónusta sem hann annaði var
færð yfir á línur í jarðstöðinni
Skyggni þegar strengurinn slitn-
aði, og með tilkomu-Litla Skyggn-
is væru til línur til vara, þannig
að sæstrengurinn hefði lokið sínu
hlutverki.
PELSINN
Opiðkl. 13-18 éviikumdögum Sérverslun-Kiájuhvoli-Sími91-M60 Greiðslukjör viðárahæB