Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Staðgreiðslukerf i skatta
Hér fara á eftir spurningar
lesenda Morgunblaðsins um
staðgreiðslu opinberra gjalda
og svör embættis ríkisskatt-
stjóra við þeim.
Gréta Halldórsdóttir spyr:
Get ég nýtt mér persónuaf-
slátt móður minnar sem er
ellilífeyrirsþegi og býr hjá mér.
Hún nýtir persónuafslátt sinn
aðeins að hluta?
Svar: Neí, persónuafslátt má
eingöngu færa milli hjóna eða
samskattaðra sambúðaraðila.
Guðrún Guðmundsdóttir
spyr:
Hversu háar eru húsnæðis-
bætur og hvenær verða þær
greiddar? Eru þær miðaðar við
einstakling eða hjón?
Svar: Nú liggur fyrir stjórn-
arfrumvarp á Alþingi þar sem
gert er ráð fyrir að húsnæðis-
bætur hækki í kr. 42.484 og
að sú fjárhæð gildi fyrir hvern
mann. Frumvarpið hefur þó
ekki varið afgreitt. Gert er ráð
fyrir að menn sæki um hús-
næðisbætur með fyrsta framtali
eftir að réttur til þeirra stofn-
ast. Fjármálaráðherra mun
setja reglur um útborgun hús-
næðisbóta í reglugerð.
Rannveig Guðmundsdóttir
. spyr:
Við hjónin erum með tvö
börn, 17 og 18 ára, sem eru í
skóla og nýta þar af leiðandi
ekki persónuafslátt sinn. Getum
við nýtt okkur hann?
Svar: Um þetta vísast til
svars við spurningu Grétu
Halldórsdóttur. Svar við spurn-
ingu yðar er því neitandi.
Jóhanna Jóhannsdóttir spyr:
Hvert eiga dagmæður að
skila sínu skattkorti?
Svar: Dagmæður teljast sjálf-
stæðir rekstraraðilar. Þær
halda skattkorti sínu sjálfar og
skila mánaðarlega staðgreiðslu
af reiknuðu endurgjaldi. Mögu-
legt mun verða að þeir sem
hafa reiknuð laun undir tilteknu
lágmarki sem ríkisskattstjóri
ákveður geri skil einu sinni á
ári. Hver sá sem stundar sjálf-
stæðan atvinnurekstur er
skyldugur að tilkynna sig á lau-
nagreiðendaskrá staðgreiðslu á
þar til gerðu eyðublaði.
Sigríður Jónsdóttir spyr:
Hvernig koma eftirstöðvar
námsmannafrádráttar til frá-
dráttar fyrir þá sem nýlega
hafa lokið- námi? Samkvæmt
fyrri reglum þá var ákveðin
upphæð frádráttarbær í fimm
ár.
Svar: Sá frádráttur sem
heimilaður var vegna ónýttra
eftirstöðva námsfrádráttar
vegna skólanáms, sem stundað
var eftir 20 ára aldur, var felld-
ur niður við upgtöku stað-
greiðslukerfisins. Úrskurðaður
slíkur frádráttur heldur þó gildi
sínu samkvæmt ákvæðum við-
komandi úrskurðar.
Margét Steingrímsdóttir
spyr:
Ég er í fullu starfi á sumrin
en hálfu á veturna. Getur mað-
urinn minn nýtt persónuafslátt
minn hluta af árinu?
Svar: Já, hann getur það.
Aðili sem hefur það lágar tekjur
að hann nýtir ekki persónuaf-
slátt sinn að fullu getur farið
með skattkort sitt til skattstjóra
og fengið afslættinum dreift á
fleiri kort. Aukaskattkort sem
aðili notar ekki getur hann af-
hent maka sínum eða sambúð-
araðila sem notar það ásamt
sínu eigin korti.
Snorri Gissurarson spyr:
Er það rétt skilið að ellilífeyr-
ir sé ekki undanskilinn útsvari
eins og verið hefur? Gengur
ónýttur persónuafsláttur ekki
upp í eignarskatt eftir nýja
skattkerfinu?
Svar: Staðgreiðsla, sem hefur
að geyma tekjuskatt til ríkisins
og útsvar til sveitarfélaga, er
tekin af ellilífeyri á sama hátt
og af öðmm tekjum. Við endan-
lega álagningu gjalda getur
sveitarstjóm lækkað, fellt niður
eða endurgreitt álagt útsvar
þeirra sem nutu ellilífeyris frá
almannatryggingum. Sá hluti
persónuafsláttar, sem ekki
verður ráðstafað á móti álögð-
um tekjuskatti og útsvari,
gengur ekki upp í álagðan eign-
arskatt, heldur fellur niður.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
spyr:
I sambandi við skilagrein á
staðgreiðslu opinberra gjalda.
Er nóg að skila inn skilagrein-
inni einni sér, þarf ekki að skila
inn sundurliðun á staðgreiðslu
einstakra launamanna?
Svar: Fyrstu þrjá mánuði
1988 verður ekki gerð sú krafa
að launagreiðendur sundurliði
staðgreiðslu á einstaka launa-
menn. Frá og með skilum fyrir
mars, sem fram fara í byrjun
apríl, verður gerð krafa um
slíka sundurliðun.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Starfsmenn þingsins, Jón Agnar Eggertsson fyrir miðju. 1 ræðustól
erAsmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands, sem var
sérstakur gestur þingsins.
Alþýðusamband Vest-
urlands lagt niður
Stofnun fulltrúaráðs átta verka-
lýðsfélaga af 11 í undirbúningi
Borgarnesi.
STRAX eftir að aukaþing Alþýðusambands Vesturlands, sem haldið
var í Hótel Borgarnesi fyrir skömmu, hafði samþykkt með 25 atkvæð-
um gegn 15 að leggja sambandið, boðaði Jón Agnar Eggertsson,
formaður Verkalýðsfélags Borgarness og fráfarandi forseti Alþýðu-
sambands Vesturlands, þá fulltrúa, sem áhuga hefðu, til fundar um
stofnun fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna á Vesturlandi. A þeim fundi
samþykktu fulltrúar 8 verkalýðsfélaga, af 11 á Vesturlandi, að unnið
skyldi að stofnun fulltrúaráðs. Það eru verkalýðsfélögin þrjú á Akra-
nesi, sem ekki vilja taka þátt í stofnun fulltrúaráðs.
í undirbúningsnefnd verkalýðsfélag-
anna átta eru: Kristján Jóhannsson
formaður Verkalýðsafélagsins Vals
í Búðardal, Bárður Jensson fomiað-
ur Jökuls í Ólafsvík, Jón Agnar
Eggertsson formaður verkalýsfé-
lagsins í Borgarnesi og varamaðui'
er Guðrún Gísladottir formaður
verkalýðsfélagsins Aftureldingu
Hellissandi.
í nýlegu fréttabréfi Aþlþýðusam-
bands Vesturlands segir í nefndará-
liti, að frá upphafi hafi verkalýðs-
félögin á Akranesi verið andvíg
stofnun Alþýðusambands Vestur-
lands og tilurð þess, þar sem þau
hafi ekki séð, hvernig slíkt samband
þjónaði þeirra hagsmunum. Félögin
á Akranesi hafi hins vegar verið
neydd til að ganga í sambandið 1980
í krafti laga Alþýðusambands Is-
lands.
Þá segir ennfremur, að á síðasta
þingi Alþýðusambands Vesturlands,
sem var haldið á Akranesi 1983,
hafi komið berlega í ljós ágreiningur
milli Akurnesinga og annarra þing-
fulltrúa.
TKÞ.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Fulltrúar á aukaþingi Alþýðusambands Vesturlands.
marimeklcö
Kápur
marimekko
Kjólar
marimekko
Vorum aðfá nýjar sendingar • Lítið við og skoðið úrvalið
. _______!
&
Ný sending:
uuararagnr
í úrvali
GÆÐI • ÞJÓNUSTA
GJAFAVÖRUDEILD
iittala O
marimekkó
®steltan
/ Qfdenmark
é juhovo oy
y'þeeling ky
aarikka
FINLAND
J1R4RT
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF. • Laugavegi 13 • Sími 625870