Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
83
Oþolandi ástand í miðbænum
Kæri Velvakandi.
Mig langar til að vekja máls á
því neyðarástandi, sem ríkir hér í
miðborginni um helgar. Ég bý við
Lækjargötuna og við liggur, að ég
verði að flýja heimili mitt aðfara-
nótt laugardags og sunnudags.
Þegar ég nú er að skrifa þetta
bréf eru rúðuísetningarmenn að
setja nýja rúðu í glugga fyrirtækis
míns að föstudagsnótt liðinni. Eft-
ir því sem þeir segja voru sa. 10
rúður brotnar þessa nótt. Þetta er
ekkert einsdæmi því svona gengur
þetta fyrir sig hverja helgi. Er
ekkert hægt að gera? Er lögreglan
búin að gefast upp á löggæslunni?
Mig langar til að koma þeirri
tillögu á framfæri, að sjónvarpsvéí-
um verði komið upp á ýmsum
stöðum þar sem álagið er mest og
þær verði síðan tengdar við tæki
miðbæjarlögreglunnar. Þannig
væri hægt að koma upp um söku-
dólga en eftir því sem ég hefi
komist næst er þetta fámennur
hópur pörupilta, sem fela sig í
fjöldanum.
Ástandið fyrir íbúa miðbæjarins
er orðið óþolandi ekki síður en
verslunareigendur. Ef lögreglan
treystir sér ekki til að ráða við
þennan vanda sé ég ekki fram á
annað, en loka verði miðbænum
um nætur yfir helgar.
Nú stendur til að opna 600
manna diskótek í Nýja bíó-húsinu
á næstunni. Hvernig treysta borg-
aryfirvöld sér til að leyfa slíka
starfsemi í miðbænum, þar sem
lögreglan hefur svo til gefíst upp
á löggæslu. Lengi getur vont
versnað.
2665-3673
Yíkverji skrifar
Jónas Pálsson rektor Kenn-
araháskóla íslands ritar
grein hér í blaðið síðastliðinn
föstudag til að mælast til þess
við fjárvetingavaldið, að veitt
verði fé í því skyni að gera við
skólahús Kennaraskólans við
Laufásveg. Víkveiji er sammála
Jónasi Pálssyni; við svo búið
má ekki standa. Það er óveij-
andi að láta þetta hús grotna
niður með þeim hætti sem gert
hefur verið. Er útlit þess öllum
til skammar, sem hafa staðið í
vegi fyrir eðlilegu viðhaldi á því.
Þá vill Víkveiji vekja sérstaka
athygli á hirðuleysinu um garð
hússins. Þeir sem leggja leið sína
þangað sjá, að af garðinum hef-
ur einhvem tíma verið mikil
prýði og honum hefur verið sinnt
af alúð og natni. Nú er hann í
niðumíðslu. Ættu yfirvöld, sem
bera ábyrgð á skólahúsinu að
semja við yfirstjórn ríkisspítal-
anna um að garðyrkjumenn
þeirra tækju að sér að hirða
garðinn við skólahúsið. Á sumri
hveiju ráða ríkisspítalarnir fólk
til að annast lóðina umhverfis
Landspítalann og ætti því ekki
að verða skotaskuld úr að endur-
rækta garðinn við skólahús
Kennaraskólans við Laufásveg.
XXX
egar Víkveiji var að skrifa
þessar línur komu honum
til hugar orð kunningja síns á
dögunum, sem sagði, að sér virt-
ust stjórnmál í landi okkar helst
snúast um hús. Stjómmálamenn
væm hættir að deila um annað
en hús. Það væri engu líkara
en ágreiningur um skoðanir eða
hugmyndir væri úr sögunni.
Þessu til sönnunar benti viðmæl-
andi Víkveija á deilurnar um
ráðhús í Reykjavík, hvellinn út
af flugstöð Leifs Eiríkssonar og
nöldrið vegna Kringlunnar.
Víkveiji fellst á þessa athuga-
semd og minnir á, að deilurnar
um húsnæðismálafmmvarpið
hafa næstum hrakið Jóhönnu
Sigurðardóttur úr ráðherra-
stólnum og geta hæglega gert
á næstu dögum, ef hún stendur
við sfóm orðin og þingmenn
taka ekki tillit til þeirra tímaskil-
yrða, sem hún hefur sett.
Líklegt er að síðustu dagana
fyrir jól eigi þingmenn eftir að
ræða töluvert um fjárframlög
til nýrra húsa á vegum Alþing-
is. Hefur útliti þeirra verið
breytt frá því að þau vom fyrst
kynnt án þess að vekja mikla
hrifingu, svo að vægt sé til orða
tekið. Er ekki að efa að á þess-
um tímum húasaáhuga verður
náið fylgst með því, hve háum
fjárhæðum verður varið til hins
nýja þinghúss í fjárlögum næsta
árs og hvaða kröfur þingmenn
gera til yfirstjórnar þeirra fram-
kvæmda í ljósi harkalegra
ummæla margra þeirra um það,
hvernig staðið var að smíði flug-
stöðvar Leifs Eiríkissonar. Væri
sannarlega æskilegt, að Alþingi
sjálft hefði forgöngu um þannig
skipulag á yfirstjórn fram-
kvæmda, að óaðfinnanlegt
þætti.
XXX
A
Adögunum var Víkveiji að
koma til landsins um hina
glæsilegu, nýju flugstöð okkar.
Vélin lenti ekki fyrr en eftir
miðnætti þannig að engir aðrir
farþegar vom að sækja töskur
sínar en ferðafélagar Víkveija.
Þrátt fyrir það brá svo við að
skortur var á kerrunum, sem
farþegar nota til að aka far-
angri sínum í gegnum tollinn
og út á hlað flugstöðvarinnar.
Við eftirgrennslan hefur
Víkveija verið sagt, að Flugleið-
ir eigi sem rekstraraðili flug-
stöðvarinnar að sjá um þessar
kerrnr. Er hér með skorað á þá
að kippa þessu einfalda atriði í
liðinn.
tt KAér er íLla. vi5 o& fá sápu » augan,
ef þú parfb ■endiLc^a. a2> u
HÖGNI HREKKVlSI