Morgunblaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
félk í
fréttum
ÞYRLUFLU GM ANN SPRÓF
Sarah skákar
bónda sínum
Sarah Ferguson er ekki kunn
að öðru en að standa við það
sem hún lofar. Það kom því fáum
á óvart þegar hún efndi heit það
sem hún vann að kvöldi brúð-
kaupsdags síns að hún skyldi læra
að fljúga. Á mánudag hlaut hún
flugmannspróf sitt og er þar með
fyrsti meðlimur bresku konungs-
fjölskyldunnar til að verða einka
- þyrluflugmaður en aðrir flug-
menn í fjölskyldunni eru herflug-
menn. Sarah stóð sig með stakri
prýði og lauk prófinu á helmingi
skemmri tíma en eiginmaður
hennar. Hann er afar stoltur af
konu sinni og segir engan vafa
leika á því hver muni fljúga þyrl-
unni ef þau hjónin langi til að
skreppa í örstutt útsýnisflug. En
Sarah sjálf er ekki síður ánægð
með frammistöðu eiginmannsins
sem fór með í prófflugið, „hann
stóð sig eins og hetja og þurfti
ekki einu sinni á uppsöluskjóðu
að halda.“
:>$: ALE
1
CAREFULLADY
DRIVER
CONTACT
AfR HANSON
Örvæntingarfull tilraun
Söru til að hylja skiltið
þar sem þyrlan er aug-
lýst til sölu fer út um
þúfur.
Andrew prins nælir
þyrluvængjunum í eigin-
konu sína sem heldur
sem fastast í nýfengið
skírteinið.
Reuter
BLESSUÐ JÓLIN
Reuter
Hamborgari eða jólasveinn?
Þessi bráðlaglegi og nýstárlegi jólasveinn prýðir götur Hamborgar
nú á jólaföstunni og hefur hann vakið allnokkra athygli vegfa-
renda. Hefur þeim orðið starsýnt á hina líflegu sitjandi sömbu sem
hann dansar og hafa gárungamir sagt galsaskapinn stafa af ungum
aldri jólasveinsins, en eins og sjá má er skegg hans enn ekki orðið
hvítt. Það er aftur á móti nokkru síðara en menn eiga að venjast og
hefur því sveinki brugðið á það ráð að vefja þvi um háls sér. Hann
verður vart kvefaður um þessi jól, blessaður.
Brúðhjónin ungu horfast ásthrifin i augu.
Reuter
GIFTING
Indversk hjónasæla
að telst ævinlega til tíðinda
þegar hefðarfólk lætur pússa
sig saman og því er ekki nema sjálf-
sagt að greina frá því að krónprins-
inn af Kasmír, Vikramadikya
Singh, hefur loks siglt inn í lygna
höfn hjónabaridsins. Sú lukkutega
er pinsessan fagra, Chitrangada
Raje Scindia, dóttir Maharajahsins
af Gwalior. Fór Athöfnin fram um
helgina í Jai Vilas höllinni í Gwalior
borg á Indlandi að viðstöddu fjöl-
menni.
TOM CRUISE
Hrist en ekki hrærð hanastél
Tom Cruise er metnaðarfullur
ungur leikari og leggur stundum
býsna hart að sér til að öðlast innsýn
í þau hlutverk sem hann tekur að
sér. í sinni nýjustu mynd „Hanastél"
leikur hann barþjón og til að skilja
tilfínningar mannsins á bak við bar-
borðið sem best, tók hann sér stöðu
á bak við það, klæddur í þjónsgall-
ann. Þar hristi hann hanastél ásamt
meðleikara sínum, hinum ástralska
Bryan Brown (Þyrnifuglarnir). Bry-
an sagði Tom vera „skolli góðan
feikara sem veit vel hvað hann er
að gera þrátt fyrir ungan aldur.“
Fyrsta hanastél Toms var ekki
ómerkari drykkur en þurr martíní
„hristur en ekki hrærður" að hætti
James Bond og tókst Tom býsna vel
upp með tilbúninginn. Hann gladdist
vitanlega yfir ágætri frammistöðu
sinni og sagði: „I þetta sinn hef ég
að minnsta kosti lært eitthvað nýti-
legt. Þetta getur komið sér vel ef
ég verð einhvem tíma hlutverka-
laus.“
Ekki alls fyrir löngu var vininum Tom neitað um afgreiðslu
á áfengu öli sökum ungæðislegs útlits. Tom hefur nú snúið á
alla illgjarna barþjóna með því að gerast sjálfur barþjónn.
Um stundarsakir.