Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra flytur erindi á aðalfundi Félags-
ins Island-Palestína, en honum á hægri hönd situr Sveinn Rúnar Hauks-
son, formaður félagsins.
Formlegt stjórn-
málasamband
við Palestínu
ÍSLENSK yfirvöld hafa tekið upp
samskipti við Frelsissamtök Pal-
estínu, PLO, sem talin eru jafn-
gilda formlegu stjórnmálasam-
bandi við Palestínu. Þetta kom
fram í erindi Halldórs Asgríms-
sonar utanríkisráðherra sem
hann hélt á aðalfundi Félagsins
Island-Palestína á sunnudaginn.
Hann sagði að íslensk yfirvöld
myndu virða sjálfsákvörðunarrétt
Palestínumanna og að Islending-
ar myndu fylgja hinum Norður-
landaþjóðunum í afstöðu sinni til
Palestínu.
Formleg samskipti tókust þeg-
ar sendiherra PLO í Ósló var ný-
lega viðurkenndur af íslenskum
stjórnvöldum sem yflrmaður aðal-
sendinefndar í Palestínu á Islandi
með aðsetur í Noregi. Halldór
sagði fslendinga hafa átt góð
samskipti við heimstjórn PLO á
Vesturbakkanum og Gaza-svæð-
inu undanfarin ár og taldi að þau
samskipti ættu eftir að eflast
frekar. Hann tók sem dæmi að
íslensk yfirvöld hefðu stutt skóla-
starf í Palestínu í samvinnu við
Sameinuðu þjóðirnar. Þó að lóð
Islendinga vægju ekki þungt
sagðist Halldór líta þannig á að
þau væru engu að síður mikilvæg
aðstoð í baráttu Palestínumanna
fyrir sjálfstæði þjóðarinnar.
FRÉTTIR
Útreikningar S A á aðalkröfugerð VMSÍ
40% hækkun algengra
launa í fiskvinnslu
Algeng launakjör í fiskvinnslu og kröfur VMSÍ:
Aðalkröfur VMSÍ Launakjör nú Kröfur Hækkun
Launakerfi (7 ára taxti) 73.709 kr. 79.257 kr. +7,5%
Hækkun mánaðarlauna 15.000 kr. +20,4%
Hámarksorlof 11,59% 14,54%
Lífeyrissjóður 6,00% 11,50%
Fræðslusjóður 0,30%
Desemberuppbót 27.100 kr. 50.000 kr. 84,5%
Orlofsuppbót 9.000 kr. 15.000 kr. 66,7%
Veikindi barna 0,20%
Lauslegt mat Samtaka Atvinnulífsins:
Kostnaðarauki fiskvinnsli i x skv. kr Krafa VMSÍ Mán.laun öfum VMSÍ |
I Algeng laun nú (7 ára taxti) | HÆKKUN |
Einingar Verð Mán.laun Krónur Hlutf.
Dagvinna 173,3 425,25 73.709 94.257 20.548 27,9%
Bónus 149,1 170,00 25.341 32.405 7.065 27,9%
Yfirvinna 13,0 765,45 9.951 12.725 2.774 27,9%
Regluleg laun samtals: 109.001 139.387 30.387 89,9%
Hámarksorlof 12.633 20.267 7.634 60,4%
Lífeyrissjóður 6.540 16.030 9.490 145,1%
Fræðslusjóður 0 Desemberuppb. á mán. 2.258 418 4.167 418 1.908 84,5%
Orlofsuppbót á mán. 750 1.250 500 66,7%
Launatengdir liðir samt.: 22.181 42.132 19.950 89,9%
Launakostnaður samt.: 131.181 181.519 50.337 38,4%
SAMTOK atvinnulífsins birtu um
helgina lauslegt mat sitt á kostnað;
aráhrifum aðalkröfugerðar VMSÍ
fyrir fiskvinnslu. Er byggt á dæmi
um algengan taxta í fiskvinnslu,
bónus sem nemur 170 kr. á bónus-
tíma og þremur yfirvinnustundum
á viku. Niðurstaða samtakanna er
sú að launakostnaður skv. kröfu-
gerð VMSÍ hækki um tæp 40% eða
um 50 þúsund kr. á mánuði í þessu
tiltekna dæmi.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu sl. laugardag tók SA. saman
áhrif kröfugerðar VMSÍ á laun
verkafólks í mjölverksmiðjum.
Kom þar fram það mat SA að
fjarri lagi væri að kröfur VMSI
takmarkist við 15 þúsund kr.
hækkun á ári. Nær væri að tala um
36% hækkun á fyrsta ári, að við-
bættum ýmsum kröfum, t.d. um
lengingu orlofs og hækkað fram-
lags í lífeyrissjóð, en þær kröfur
einar hækkuðu kostnaðinn um tæp
9% til viðbótar, eins og sagði í út-
reikningum SA.
Betra dæmi og almennara
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, segir að það dæmi hafi verið
gagnrýnt vegna sérstaks eðlis
starfa í slíkum vinnslum og því hafi
verið fundið dæmi sem telja megi
betra og almennara og nái til fleiri
félagsmanna VMSI.
Björn Grétar Sveinsson, formað-
ur VMSI, gagnrýndi Ara og SA
harðlega í Morgunblaðinu sl.
sunnudag fyrir mjölvinnsluút-
reikningana og sagði þá jaðra við
að vera atlögu að vinnulöggjöfinni.
„Það var nú aldrei ætlun mín að
hafa óviðurkvæmileg afskipti af
innra starfi stéttarfélaga," segir
Ari, aðspurður um gagnrýni
Björns Grétars. „Hins vegar er
jafnljóst að ég hlýt að áskilja mér
allan rétt að leggja saman þær töl-
ur sem felast í kröfugerð VMSÍ og
leggja út af þeim fyrir einstakar
greinar. Dæmi af algengum laun-
um í fiskvinnslu, sem er nú ansi
fyrirferðarmikil utan höfuðborgar-
svæðisins, sýnir vel hversu langt
kröfur Verkamannasambandsins
ganga út fyrir þann ramma sem
við getum með nokkru móti geng-
ist við,“ sagði Ari.
I
Atlanta
semur við
FFF
SAMNINGAR hafa tekist um
kaup og kjör íslenskra flug-
manna og nokkurra erlendra
sem eru í starfi hjá Atlanta-
flugfélaginu. Um er að ræða
samning til þriggja ára og nem-
ur grunnkaupshækkunin 13%.
Samningurinn var gerður við
Frjálsa flugmannafélagið
(FFF), en í því eru svo til allir
íslenskir flugmenn Atlanta og
nokkrir erlendir sem búsetu
hafa hér á landi.
Alls nær samningurinn til
milli 60 og 65 flugmanna.
Þjónusta gagnasafns Morgunblaðsins bætt með tilkomu nýrrar leitarvélar
Hægt að fá blaðagreinar
sendar með tölvupdsti
GAGNASAFN Morgunblaðsins hef-
ur verið betrumbætt og þjónusta þess
aukin verulega með tilkomu nýrrar
leitarvélar sem tekin verður í notkun í
dag. Leitarvélin, sem byggist á svo-
kölluðu gervigreindarkerfi, eykur
skilvirkni safnsins, sem þýðir að not-
endur þess munu eiga mun hægara
um vik við að finna blaðagreinar sem
þeir vilja og hafa áhuga á að lesa.
Þjónusta númer eittS
Til sölu VW Passat 1800,
4 dyra Sedan 4x4, nýskráður
30.06.1999, ekinn 20.000 km,
topplúga, viðarklæðning, 17“
álfelgur. Ásett verð 2.520.000.
Nánarí upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu, sími 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. I2-I6
BÍLAÞINGflEKLU
Nóryi&r eiff f nofv^vm írílvmf
Laugavegi I74,105 Reykjavlk, slmi 569-5500
\vww,t>ilothiHf|,us * wvvw.hilathincjJs • www.hilathinn iiv
Jakob Þorsteinsson, sölustjóri Morg-
unblaðsins, sagði að með nýju leitar-
vélinni gætu áskrifendur einnig feng-
ið sendar, með tölvupósti, greinar
sem þeir hefðu sérstakan áhuga á.
„Það býður enginn annar fjölmiðill
upp á þjónustu í líkingu við þetta,“
sagði Jakob. „Með þessari þjónustu
gefst hinum almenna notanda kostur
á sníða kerfið að sínum þörfum. Menn
geta t.d. fengið sendar greinar sem
tengjast tómstundum þeirra og fyrir-
tæki geta fylgst með allri umfjöllun
um þann markað sem þau eru á.“
Leitarvélin sem tekin verður í
notkun í Gagnasafninu í dag kemur
frá breska fyrirtækinu Autonomy
Systems Ltd. og er t.d. notuð af BBC,
Reuters, Associated Press og San
Francisco Chronicle.
Hægt að nota venjulegt
málfar við leit,
Hingað til hefur gagnasafnið að-
eins boðið upp á orðaleit sem þýðir að
menn hafa getað slegið inn einstök
orð og fengið birtar greinar þar sem
þau orð koma fyrir. Orðaleitin verður
áfram til staðar en bætt verður við
mun fúllkomnari leitarvél sem gefur
fólki kost á því að nota venjulegt mál-
far við leit á efni. Notendur geta sleg-
ið inn heilar setningar t.d. væri hægt
að slá inn eftirfarandi: „Verðbréfa-
markaðurinn og Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins.“ Þegar þessar upplýs-
ingar hafa verið slegnar inn birtir
leitarvélin þær greinar sem innihalda
upplýsingar tengdar setningunni sem
notuð var við leitina og fá greinamar
ákveðið vægi eftir því hversu tengdar
ÁJ
fiTU V»9t(iirt AjStívj P I
íi»«sw»*t«mS»kkwi tssUase*i((«aixfc(iB«W>:
* iwtew PFwwMa* Ik
þær eru setningunni sem slegin var
inn.
Leitarvélin gefur notandanum kost
á því að þrengja leitina enn frekar
með því að stilla vægið sjálfur og
ákveða sjálfur hvað hann vill sjá
margar greinar. Ef notandinn slær
inn setningu og stillir vægið á 30% sér
hann ekki þær greinar sem leitarvélin
skilgreinir undir 30%. Notandinn get-
ur líka ákveðið hvað hann vill sjá
margar greinar.
Það að áskrifendur geti fengið
sendar með tölvupósti greinar sem
þeir hafa sérstakan áhuga a
er e.t.v. það byltingarkennd-
asta við þessa breytinguna á
gagnasafninu. Áskrifendur
gagnasafnsins geta nýtt sér
að kostnaðarlausu svonefnd-
an Vaka, sem í raun hefur
það hlutverk að vakta gagna-
safnið íyrir notandann. Til
þess að nýta sér þessa þjón-
ustu þurfa notendur að setja
upp Vaka, en aðferðin við
það er mjög einfóld og er út-
skýrð nákvæmlega á heima-
síðu gagnasafnsins.
í grófum dráttum þá nota
menn Vakann á svipaðan
hátt og þeir nota nýju leitar-
vélina nema hvað þeir geta
þjálfað hann sem þýðir ein-
faldlega það að þeir geta
skilgreint mjög nákvæmlega
hvers konar greinar þeir
vilja fá sendar. Ef ákveðinn
notandi hefur áhuga að fá
sendar allar blaðagreinai’
um ákveðið fyrirtæki sem birtast í
Morgunblaðinu fær hann þær sendar.
Notandinn getur síðan stofnað marga
Vaka þar sem efnisleitin er skilgi’eind
á mismunandi hátt. Þannig gæti sarm
notandi einnig fengið sendar allar
greinar um fjarskipti.
Þess bera að geta að með öllum
blaðagreinum í gagnasafninu fylgjR
sömu myndir, kort og gröf og birtust í
sjálfu blaðinu. Áskriftargjald að
gagnasafránu er fr’á 2.000 krónum á
mánuði og einnig er hægt að kaupa
greinar í lausasölu.