Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.03.2000, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Námstefna um nytsamlegar ábendingar fyrir alla stjórnendur 5x5 STJÓRNUN ENN BETRIYFIRSÝN Tími: Miðvikudaginn, 5. apríl, kl. 9:00-12:30 Staður: Hótel Saga, þingstofa A jp Nú haldið ý í fjúrða sinn Samkeppnishæfni fyrirtækja byggist að miklu leytí á þekkingu stjórnenda, viðhorfi þeirra til starfsfólks, yfirsýn og viðbragðsflýti. Á þessari námstefnu fá stofnar árangursríkrar stjómunar nýja nálgun, sem ber með sér mikilvæga stjómunarreynslu verkfræðings og markaðsmanns. Úr verður „5x5“ stjórnun, sem þarf að vera Ijós hverjum yfirstjómanda og millistjómanda. Yfirsýnin verður skýrari. Hugmyndir að lausnum verða fleiri. Á 4 klst. verður fjallað um 5 atríði sem eru: 1. Framtíðin - og hvernig fyrirtækið er búið undir breytingarnar sem eru framundan. 2. Ferlar - í öllum fyrirtækjum skipta vinnuferlamir miklu máli - en allt of fáir gera sér grein fyrir því að ferlamir eru samkeppnistæki sem verða að vera í lagi, skráð á blað og undir eftirliti. 3. Frammistaða - Árangursstjórnun er mest umtalaða stjómunaraðferð nútimans... Mælingframmistööu er lykilatriðið. 4. Fyrirtækið - Dagleg stjórnun þarf að vera jafnvægi milli agaðra vinnubragða og uppörvandi samskipta. Aðaleign fyrirtækisins þegar öllu er á botninn hvolft er fólgin í þekkingu, ímynd og stjórnunar„kúltur“. 5. Fólk - er það sem allt snýst um. Þekkir starfsmaðurinn markmið fyrirtækisins, forgangsraðar hann sínum verkefnum rétt, skipuleggur hann tíma sinn þannig að hámarksárangur næst? Þessi námstefna er fyrir stjómendur sem vilja ná enn betri árangri, vilja fá betri yfirsýn yfir stefnur og strauma í stjómun eða vilja endurhæfa þætti í stjómun sinni! Markmiðið er að þátttakendur fái staðfestingu á því sem vel er gert og tugi hugmynda til að breyta stjórnun og starfsháttum í fyrirtækjum/stofnunum sínum. Um 2000 manns hafa hlýtt á stjómunarefni Thomasar Möller, sem hann hefur stöðugt unnið við að þróa og er hér í fyrsta sinn tekið saman í heildstæða nálgun um aðalatriði í umhverfi stjómandans. Enginn stjórnandi lætur þessar fjórar stundir fram hjá sér fara. Höfundur og leiðbeinandi er Thomas Möller, hagverkfræðingur. Hann hefur 18 ára stjómunarreynslu. Thomas erframkvæmdastjóri markaðssviðs þjónustustöðva OLÍS og var áður í stjómunarstörfum hjá EIMSKIP. Hann er höfundur metsölubókar um sljómun og hefur verið eftirsóttur fyrirlesari í fyrirtækjaumhverfi. Skráning og nánari uplýsingar í síma: 533 4567 og www.stjornun.is LISTIR Brekkukotsannáll kemur út í Bandaríkjunum VAKA-HELGAFELL hefur geng- ið frá samningum við bókaforlag- ið Harvill Press um að gefa Brekku- kotsannál eftir Halldór Lax- ness út í Banda- ríkjunum. Áður hafði forlagið tryggt sér út- gáfuréttinn á Brekkukots- annál og Sjálf- stæðu fólki í Englandi og í um 50 löndum öðrum utan Norð- ur-Ameríku. Sjálfstætt fólk var sem kunnugt er gefið út í Banda- ríkjunum af Random House en nú hefur Harvill Press tryggt sér út- gáfuréttinn á Brekkukotsannál þar í landi ásamt Kanada. Skáldsagan Brekkukotsannáll kom út á enskri tungu í þýðingu Magnúsar Magnússonar á sjöunda árat ugnum, í Bretlandi 1966 og Bandaríkjunum 1967. Þýðing Magnúsar er lögð til grundvallar nú. Brekkukotsannáll, sem fyrst kom út árið 1957, hefur birst les- endum i 16 löndum í 35 útgáfum en auk þess var myndaflokkur fyrir sjónvarp byggður á bókinni gerður árið 1972. Bókin er vænt- anleg á markað í Bretlandi á þessu ári hjá Harvill Press. Að sögn Péturs Más Ólafssonar hjá Vöku-Helgafelli má segja að Sjálfstætt fólk hafi þannig brotið verkum Halldórs Laxness leið inn á Bandaríkjamarkað á ný. Þegar Random House gaf bókina út snemma árs 1997 hafði verk eftir Halldór ekki komið út hjá stóru forlagi þar í landi í hálfa öld. Sjálfstætt fólk hefur margsinnis verið endurprentað í Banda- rikjunum undanfarin misseri og fengið lofsamlega dóma. Washington Post fagnaði þess- ari nýju útgáfu, sagði að Halldór Laxness væri mikill rithöfundur frá litlu landi og þetta væru gleðilegir endurfundir. Þá sagði gagnrýnandi blaðsins: „Sjálfstætt fólk hefur i raun allt sem ein skáldsaga getur boðið upp á.“ New York Times taldi söguna í hópi eitt hundrað bestu bóka sög- unnar. I öðrum blöðum var skáldsagan kölluð „meistara- verk“, „skáldleg veisla“og sögð vera „ein af þessum stóru“. Þá var mikið lof borið á pers- ónusköpun höfundarins, - hún ætti sér fáar hliðstæður. Harvill Press er meðal kunn- ustu bókaforlaga i hinum ensku- mælandi heimi og gefur út verk eftir marga af helstu höfundum samtimans, bæði austan hafs og vestan. Má þar nefna Jose Saramago sem fékk bók- menntaverðlaun Nóbels 1998, Cees Nooteboom sem hlotið hefur bókmenntaverðlaun Evrópu og danska rithöfundinn Peter Hoeg. Tyllidagsfágæti TONLIST Salurinn AFMÆLISTÓNLEIKAR 60 ára afmælistónleikar F.Í.T. Verk eftir Helga Pálsson, íslenzk þjóðlög, Piazzolla, Fryba, Haydn, Schubert, Debussy & Lamb. Eþos kvartettinn (Auður Hafsteinsdóttir, Greta Guðnadóttir, Guðmundur Kristmundsson & Bryndís Halla Gylfadóttir). Sverrir Guðjónsson kontratenór. Áshildur Haralds- dóttir, flauta & Einar Kristján Einarsson, gítar. Hávarður Tryggvason, kontrabassi. Joseph Ognibene, horn; Greta Guðnadóttir, fiðla; Bryndis Halla Gylfadóttir, selló. Miklós Dalmay & Peter Maté, píanó. Laugardaginn 18. marz kl. 20:30. FÉLAG íslenzkra tónlistarmanna fagnaði 60 ára afmæli með vönduð- um tónleikum í Salnum á laugardag- skvöldið var. Efnisskráin var óvenju fjölbreytt, og var þar margt á boð- stólum sem sjaldan getur að heyra á hérlendum hljómleikapalli. Eftir stutt ávarp Margrétar Bóas- dóttur formanns lék Eþos strengja- kvartettinn „Eigið tema með variat- íónum og fúgu“ eftir Helga Pálsson. Það eru ekki nema örfá ár síðan þetta verk, h.u.b. jafngamalt FIT, var endurheimt úr gleymsku og dái, og er því frekar til tyllidagaflutnings fallið að það verður að teljast með fá- gætari fjöðrum í hatti íslenzkrar kammertónlistarsögu, sem var varla hafin á ritunartíma þess um 1940. Maður undrast við hverja endur- heym hvað ritháttur þess er ótrú- lega fágaður og heimsmannslegur miðað við tilurðartíma þess og -stað. Eþos kvartettinn lék af samsvarandi fágun og samstillingu, svo varla væri hægt að finna að neinu nema í hæsta lagi smágerðu atriði eins og milli- raddadýnamík í lokafúgunni, þar sem mætti kannski forgangsraða svolítið meðvitaðra milli aðalstefs, kontrapunkta og aukaefnis á hverj- um stað fyrir sig. Kvartettinn hljóm- aði ekki svo afleitlega í Salnum, þó að ómtími hans sé of stuttur fyrir strokhljóðfæri. Virðist ekki með öllu óhugsandi, að núverandi veggjaplöt- ur hans og trébríkur drekki einmitt í sig þá hálfu viðbótarsekúndu sem upp á vantar til að bæta afgerandi þar um, án þess um leið að spilla fyr- irtaks píanóhljómburði salarins svo neinu nemi. Sverrir Guðjónsson laðaði magnað andrúmsloft fram í íslenzku þjóðlög- unum um Höllu kerlingu (Ljósið kemur) og Sæmund Klemenzson (Grafskrift), sem hann söng án und- irleiks á inn- og útgöngu fyrir myrkvuðum sal, er þess í milli var sveipaður hjambláum fomeskju- bjarma. Dulúðin var næsta áþreifan- leg í upphafinni túlkun Sverris, sem hann undirstrikaði enn betur með stökum höggum á rörklukku í Líka- bangar stað. Áshildur Haraldsdóttir og Einar Kristjánsson léku þamæst „Histoire du Tango“ eftir argentínska bandon- eonsnillinginn Astor Piazzolla undir þáttaheitunum „Bordel 1900“, „Café 1930“ og „Night Club 1960“. Margt var heillandi í ömggri meðferð þeirra Áshildar á „stílsögu“ tangós- ins, þrátt fyrir ívið of sterka flautu, jafnt í iðandi 3-3-2 hrynjandi útþátta og í hinum íhugula milonga-mið- þætti. Fyrir aðra en hörðustu piazzollista var tónlistin aftur á móti í einfaldara og endurtekningarsam- ara lagi fyrir heilar 20 mínútur. Hlutfallsleg ómþurrð Salarins fór sæmilega með flaututóninn, en gerði fjarska lítið fyrir óuppmagnaðan spænska gítarinn, sem átti fyrir í vök að verjast í viðureigninni við sin- fóníska hljóðfæri Böhms, og hefði Piazzolla ugglaust náð betra jafn- vægi með barokk-tréflautu. Hávarður Tryggvason kontra- bassaleiðari SÍ lék skondna litla ein- leikssvítu eftir Hans nokkurn Fryba; eftir verkinu að dæma einn þeirra kontrabassaleikara sem eftir beztu getu hafa lagt heldur fátæk- legum einleiksbassabókmenntum lið, án þess að hafa hlotið náðar- neista Sesselju í vöggugjöf. Svítan var samt ágætlega leikin og virtist liggja nokkuð vel fyrir hljóðfærið, þó að töluverðar tæknikröfur hennar stæðu tæplega í hlutfalli við fremur rýrt inntakið. Þrátt fyrir hreinræktað skemmti- hlutverk Divertimentos Haydns „a tre“ íyrir fiðlu, selló og horn, sem Joseph Ognibene, Greta Guðnadótt- ir og Bryndís Halla Gylfadóttir léku næst á eftir, bar tónsmíðin af „Kap- ellspieler“-verki Frybas sem gull af eiri. Flutningur þrímenninganna var hress, jafn og þéttur, og homröddin, sem trauðla hefur verið samin fyrir neinn meðalhornleikara, glampaði og skein í höndum Josephs, er hafði nákvæmlega ekkert fyrir því að vinda sér á milli hæsta clarino-sviðs og dýpstu pedaltóna í sitt hvorum enda á risatónsviði valdhornsins - því stærsta sem þekkist í lúðraheimi. Aðfluttu píanóljónin okkar frá Balkanlöndum, Peter Máté og Mik- lós Dalmay, settu fjörugan loka- punkt á afmælistónleikana með því að leika fjórhent þrjú lög, Mars nr. 1 úr Marches Militaires Op. 51 eftir Schubert, En Bateau úr „Pétite Sui- te“ Debussys og Champagne Rag eftir samtímalanda bandaríska slitruhöfundarins Scott Joplins (og ekki ómerkari), Joseph Lamb. Sú fyrrum útbreidda heimilis- tóngrein, fjórhenda píanóið, er ekki öll þar sem hún er séð. Það þarf nefnilega þrotlausa samæfingu til að skila 100% hrynrænnni nákvæmni á hljóðfæri, þar sem míkrósekúndu ósamræmi kemur miskunnarlaust fram, hvað þá sannfærandi hend- ingamótun. Þess hlaut stundum að gæta í flutningi þeirra félaga framan af, þótt hvor um sig væri vitaskuld mílum ofar allri áhugamennsku. Engu að síður höfðu áheyrendur gaman að spilamennskunni, og létt- ist brúnin á mörgum í Kampavíns- slitrunni, sem leikin var með bobl- andi kolsýrutrukki eins og vera bar. Ríkarður Ö. Pálsson Nýjar bækur • Græna skyggnishúfan hefur að geyma ferðaljóð eftir Sigurlaug Elíasson. í fréttatilkynningu segir: „Þar vitjar hann staða, kunnra sem ókunnra, sem tala til hans hver með sínu móti. í krafti ljóðræns ímyndunarafls og næmrar skynj- unar skáldsins kviknar liðinn tími á ný og lesandi er færður nær horfnu mannlífi. Þessi heildstæði ferðaljóðabálkur Sigurlaugs einkennist jafnframt af hlýju og virðingu fyrir nátt- úrunni sjálfri sem ávallt er í forgrunni." Sigurlaugur Elíasson er fæddur á Borgarfirði eystra árið 1957. Að loknu stúd- entsprófi nam hann við mál- aradeild Myndlista- og handíðaskóla Islands 1979- 83 og síðar kennslufræði við Há- skóla íslands. Sigurlaugur hefur Sigurlaugur Élíasson búið á Sauðárkróki frá 1984 og fengist við mynd- list auk ritstarfa. Græna skyggnishúfan er sjöunda ljóðabók hans. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er er 79 bls., unnin í Prentsmið- junni Grafík h.f. Málverk á kápu er eftir höfundinn sem hannaði kápuna ásamt Margréti E. Laxness. Verð 2.980 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.