Morgunblaðið - 21.03.2000, Side 43

Morgunblaðið - 21.03.2000, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Enn um jtannleysi Islendinga FRÁ ÞVÍ grein mín um gei’vitannasmíði birtist í Morgunblað- inu hafa allnokkrir haft samband við mig einkum varðandi tvö atriði sem ég nefndi í greininni. Er mér bæði ljúft og skylt að svara, og kemur mér skemmtilega á óvart sá áhugi sem fólk sýn- ir þessu málefni. Röntgen- myndataka Fyrst hafa menn spurt sig um tilgang þess að taka röntgen- myndir af tannlausum einstakling- um. Það kann að hljóma einkenni- lega, en góðar og gildar ástæður eru fyrir því. Þó svo munnhol virð- ist tannlaust og slímhúð heilbrigð, geta leynst tannbrot, belgmein ýmiss konar og fleira sjúklegt í kjálkabeininu án þess að á yfir- borði sjáist. Einnig er mjög mikil- vægt að meta kjálkabein með tilliti til tannplanta, en þeir eru bylting fyrir tannlausa einstaklinga. Þar er einnig nauðsynlegt að meta legu taugarinnar (n. mandibular- is). Er það nú svo að stundum duga ekki þær röntgenmyndir sem teknar eru á tannlæknastofu, held- ur er sjúklingi vísað í sneiðmynda- töku til að fá enn betri sýn. Eg vil ítreka nauðsyn þess að tannlausir einstaklingar fái vitneskju um tannplanta, en þeir hafa oft gert gæfumuninn fyrir þá sem eiga erf- itt með að nota gervitennur. Með tannplöntum skapast sá möguleiki að festa gervitennur niður með sérstökum festingum, í stað þess að gervitennurnar liggi lausar á slímhúð einstaklingsins. Máttakan mikilvæga Annað atriði sem menn fýsir að vita meira um er máttakan sjálf. I fyrri grein minni vildi ég ekki þreyta lesendur með lýsingum af síðari máttökunni, en greinilegt er að margir vilja vita meira. Mun ég reyna að vera stuttorð og einfalda málið eins og hægt er, en vil ég þó taka fram að máttaka fyrir gervi- tönnum er síður en svo einfalt mál. Raunar tel ég að máttakan sé mik- ilvægasta en jafnframt það erfið- asta skref sem í gervitannasmíð- inni er stigið. Máttaka fyrir gervitönnum fer í stórum dráttum fram á eftirfarandi hátt: Fyrst er tekið svokallað primert mát, eða fyrsta mát. Þá er verksmiðjufra- mleidd mátskeið fyllt af mátefni (kvoðu), sem gefur hæfilega mikið eftir. Primer máttöku er ágætlega lýst í skýringum með frumvarpi iðnaðarráðherra. Eftir þessa mát- töku, er gifsi steypt í mátið og lát- ið harðna. Þá hefur myndast af- steypa sem sýnir grófa mynd af tannlausa svæði sjúklingsins. Þá er sérsmíðuð mátskeið sem notuð er í seinni máttökuna. Mátskeiðin er aðeins notuð einu sinni, fyrir viðkomandi einstakling. Þegar búið er að ganga úr skugga um að mátskeiðin passi, eru brúnirnar mótaðar. Það er gert með ýmsum efnum, en algengast mun vera að nota svokallað compound. Kann ég ekki íslenskt orð yfir efni þetta og biðst ég afsökunar á því. Efni þetta er hitað og lagt á mátskeið- ina. Mátskeiðin er því næst sett í munn og sjúklingur beðinn að gera ákveðnar hreyfingar. Þannig fæst mjög nákvæm eftirmynd hvers vöðvahóps fyrir sig. Aðeins er sett lítið í einu á afmörkuðu svæði. Það ákvarðast m.a. af vöðvum munn- holsins og er gert eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Sem dæmi má nefna að móta þarf sérstaklega svæði vegna vararhafts. Sé það ekki gert, munu gervitennurnar alltaf hreyfast með varar- haftinu. Þannig er hvert svæðið tekið á fætur öðru og brún- irnar mótaðar þannig að nýju tennurnar sitji sem best og hreyfist sem minnst. Þegar búið er að móta allar brúnir gómsins, er að lokum tekið mát í mátskeiðina með mátefni sem er mun nákvæmara en það sem notað er í fyrri máttökunni. Gómurinn er svo smíðaður á af- steypuna sem búin er til eftir því máti. Sé máttakan ekki gerð á þennan hátt, passa gervitennurnar ekki einstaklingnum. Gervitennur, sem ekki eru smíðaðar samkvæmt Tannlækningar Vona ég heitt og inni- lega að þingmenn þessir verði aldrei tannlausir og þurfi því ekki að ótt- ast þau örlög að hljóta gervitennur, segir Kristín Heimisdóttir, sem smíðaðar eru sam- kvæmt frumvarpi því sem nú liggur frammi fyrir hinu háa Alþingi. þessari forskrift, hreyfast og velt- ast í hvert sinn sem einstakling- urinn gerir hina minnstu hreyf- ingu með vöðvum munnhols. Það á við um kyngingu, bros, tal og margt, margt fleira. Setjið ykkur í spor einstaklings sem ekki getur hlegið, brosað, borðað, talað og svo framvegis án þess að hafa sífellt áhyggjur (og ekki alltaf að ástæðu- lausu) af því að tennurnar hrein- lega detti úr munninum. Þekkingarskortur eða hvað? Hljóta lesendur að sjá að nauð- synlegt er að búa yfir góðri þekk- ingu á líffærafræði, meinafræði, lífeðlisfræði og fleiri grunnfögum tannlæknisfræðinnar til að fram- kvæma slíka máttöku svo vel til takist. Formfræði tanna mun þó ekki koma að gagni við máttökuna, þó gagnlegt grunnfag sé. Seinni máttakan er forsenda þess að vel til takist. Aldrei hef ég séð vel lukkaðar gervitennur sem eru smíðaðar eftir primer máti. Þær gervitennur eru oftast nær geymd- ar ofan í skúffu hjá viðkomandi einstaklingum og ónothæfar með öllu. Því er leitt til þess að hugsa að ákveðnir þingmenn skuli telja það nægilegt að taka eitt mát til að smíða nothæfar gervitennur. Hlýtur þar að vera um vanþekk- ingu að ræða, því ekki getur verið að viðkomandi séu það illviljaðir í garð tannlauss fólks, að vilja því slíkan gjörning. Vona ég heitt og innilega að þingmenn þessir verði aldrei tannlausir og þurfi því ekki að óttast þau örlög að hljóta gervi- tennur sem smíðaðar eru sam- kvæmt frumvarpi því sem nú ligg- ur frammi fyrir hinu háa Alþingi. Reyndar óska ég engum svo ills. Höfundur er Umnlæknir. Kristín Heimisdóttir ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 43 Annar í búðir og hinn á fjöll... Mercedes Bens E-240, Elegance, árg. 1998. Ekinn 26 þús. Blásvart sanseraður, leðurinnréttingar, topplúga, 17" felgur, Zenon Ijós, MB-GSM, rafdrifin sæti, 10 diska CD-magasín og margt fleira. Einstaklega vel búinn bíll í sérflokki. Verð 4.450.000. Tilboð 3.990.000. Jeep Cherokee Grand Limited 4.0 árg. 1993. 36" DC dekk, CB, GPS, leðurinnrétting, loftdæla, læstur að framan og aftan, loftkútur og margt fleira. Gullfallegur — . og skemmtilegur fjallabíll. 'úT** Verð 2.490.000. Bildshofða 12, sími 567 3131 - fax 587 0889 Yfir 100 snjósleðar á söluskrá A miðjii iclancbrn íslenskra stjórnmála Fjöbkytda Afví AKUREyRI - 22.mars Fiðlarirm, Akureyri, kl. 20.30 • HalldórÁsgrímsson • Ingibjörg Pólmadóttir • Póll Pétursson HAFNARFJORÐUR - 23. mars Hraunholt, Dalshrauni 15, Hafnarfirði, kl. 20.30 • Siv FriSleifsdóttir • Ingibjörg Pólmadóttir • Hjólmar Árnason • Kristinn H. Gunnarsson HORNAFJÖRÐUR - 28. mars Hátel Höfn, Hornafirði, kl. 20.30 • Valgerður Sverrisdóttir • Ingibjörg Pólmadóttir • Siv Friðleifsdóttir • Jónína Bjartmarz AKRANES- 30. mars Opnirfundir þingmanna Framsóknarflokksins HÓLMAVÍK- 13. apríl Salur verkalýðsfélaganna Akranesi, kl. 20.30 • HalldórÁsgrímsson • Ingibjörg Pólmadóttir • Jón Kristjónsson GRINDAVÍK - 6. opríl Sjómannastofan Vör, Grindavík, kl. 20.30 • Hjólmar Arnason • Valgerður Sverrisdóttir • Olafur Örn Haraldsson HUSAVÍK - 6. apríl Hótel Húsavík, Húsavík, kl. 20.30 • Kristinn H. Gunnarsson, • jón Kristjónsson • ísólfur Gylfi Pdlmason • Jónína Bjartmarz CaféRiis, Hótmavík, kl. 20.30 • Kristinn H. Gunnarsson • Pdll Pétursson • Guðni Ágústsson • isólfur Gylfi Pólmason AUSTUR-HÉRAÐ - 13. apríl Hótel Hérað,£gilsstöðum, kl. 20.30 • Valgerður Sverrisdóttir • Jón Kristjdnsson • HjólmarÁrnason • OlafurÖrn Haraldsson FRAMS0KNARFL0KKURINN Með fólk í fyrirrúmi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.