Morgunblaðið - 21.03.2000, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
MINNINGAR
GUÐBJORG
SIGRÍÐUR
PETERSEN
+ Guðbjörg Sigrið-
ur Petersen
fæddist á Ökrum á
Seltjarnarnesi 29.
júlí 1933. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 12. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Stefanía E. Guð-
mundsdóttir Hansen
frá Hellissandi
(1900-1986) og Ul-
rich Hansen, blaða-
maður á Vísi ættað-
ur frá Bergen í
Noregi (1902-1938).
Systkini: Adolf bryti, f. 1922 og
Ulrich sjómaður, f. 1925 en þeir
létust báðir árið 1972; Asta, hús-
móðir, f. 1930.
Guðbjörg giftist Emil Hans
Petersen (1928) byggingameist-
ara á gamlársdag 1952. Börn
þeirra eru:l) Ásdís, kynningar-
stjóri. Barn: Guðbjörg Sigríður.
2) Adolf Hólm, kennari, kvæntur
Ásdísi Ósk Jóelsdóttur. Börn:
Hörður, Emil Hjörvar, Víðir
Smári og Bryndís
Freyja. 3) Stefán,
kennari. Kona hans
er Erla Gígja Garð-
arsdóttir. 4) Hólm-
frfður, skólasafns-
fræðingur. Hún er
gift Atla Sturlusyni.
Börn: Hans Emil og
Bryndís Freyja.
Guðbjörg gekk í
Austurbæjarskóla
og Ingimarsskóla.
Hún hóf síðan nám í
Myndlista- og hand-
íðaskólanum áður
en hún fór til New
York þar sem hún dvaldi hjá
systur sinni og starfaði m.a. við
skrifstofustörf á árunum 1951-
1952.
Eftir að hún giftist helgaði
hún sig alfarið húsmóðurhlut-
verkinu að undanteknum einum
vetri er hún starfaði við sölu ull-
arvara í Álafossversluninni.
Guðbjörg verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Mig langar til að kveðja mömmu
mína með kvæði eftir Pétur Sig-
urðsson úr bókinni: „Til móður
minnar.“ Með þökk fyrir allt.
Kvæðið heitir „Mamma“.
Hún vaknar snemma, á fætur fer
og flýtir sér til að hjálpa mér.
Með kossi vekur hún mamma mig,
og mikið leggur hún oft á sig,
þvi allan daginn hún annast þarf
sitt endalausa og mikla starf.
Ef eitthvað smávegis amar mér,
þá alltaf tekur hún mig að sér.
Hún vefur klútinn að kinnum mér
og kyssir mig, þegar út eg fer,
og þegar kaldur svo kem eg inn,
mér köldum býður hún faðminn sinn.
Já, elsku mamma, hún er svo góð,
og oft hún kennir mér falleg ljóð
um litla fugla og lömbin smá,
um ljúfu börnin, sem drottinn á
um fögru blómin og fjallaskraut,
um fossa, læki og berjalaut.
Hún kann svo mikið, og alit það er
svo ógnar skemmtilegt, þykir mér.
Eg gleymi mörgu, hún man það allt,
og mamma sér, þegar úti er kalt;
hún fmnur hlýjustu fótin mín
og fárast aldrei um sporin sín.
Gróðrarstöðin ™ f
micm
Hús blómanna
Blómaskreytingar
við öll tækifæri.
Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 2480
Jiiiiiiiiiiiiiin
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
^xxirxi iirnxrxx£
0g þegar svefninn mig sigra fer,
þá situr mamma um stund hjá mér
og les mér fegurstu ljóðin sín,
eg læri kvöldbæna versin mín.
í kringum okkur er kyrrt og rótt,
með kossi býður hún góða nótt.
Og þannig barnið hún svæfir sitt
og signir blítt yfir rúmið mitt.
Guð blessi þig.
Þín dóttir,
Hólmfríður.
Hversu margir myndu sækja um
starf sem auglýst væri á þennan
GARÐH EIMAR
BLÓMABÚÐ • STEKKJARBAKKA 6
SÍMJ 540 3320 új
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður
Utfajarstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt
verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar.
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu.
Sverrir HáhjM Baldur Bóbó
| Sverrir Olsen Einarsson wm. M Frederiksen
útfararstjóri. JP útfararstjóri. wS Æw útfararstjóri.
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
hátt: „Kona óskast í nokkra áratugi
til þess að þvo þvotta, útbúa heitan
mat tvisvar á dag, sjá um fjármál,
menntamál, prjónaskap, sauma-
skap, uppeldi fjögurra barna og að-
stoð við sölu fasteigna?“ Þessa
stöðu valdi móðir mín þegar hún
gekk að eiga föður minn á gamlárs-
dag árið 1952. Á hverjum morgni
var gengið til verka með sama
áhuganum og dugnaðinum. Alltaf
var jafn gaman að setja ýsuna í
pottinn á virkum dögum og lamba-
kjötið í ofninn á sunnudögum. Allt-
af var jafn gaman að fá vinkonurn-
ar í morgunkaffi og hlæja dátt og
lengi í eldhúskróknum. Alltaf var
jafn gaman að fylgjast með því
hvernig nýju prjónamynstrin
kæmu út. Alltaf var jafn gaman að
sauma fatnað upp úr gömlum flík-
um. Alltaf var jafn gaman að halda
afmælisboð. Alltaf var jafn gaman
að spá í bolla fyrir vinkonur og vini
barnanna. Félagslífið var á heimil-
inu. Þessir svokölluðu fjórir veggir
heimilisins voru hennar líf og yndi,
Sogavegur 72 var hennar heimur.
Þangað flutti hún sem frumbyggi
með föður mínum í desember árið
1954. Bandið í þeirra hjónabandi
var sterkt. Þau höfðu gaman að því
að ferðast bæði innanlands og utan.
Síðustu áratugi fóru þau nær ár-
lega á uppáhaldsstaðinn sinn, Kan-
aríeyjar. Vegabréfið var endurnýj-
að hinn 12. mars í fyrra. Ferðin var
ekki farin vegna veikinda. En 12.
mars síðastliðinn lagði hún af stað,
ferðbúin eftir erfið veikindi. Sjúk-
dómurinn MND fór að segja til sín
fyrir tæpum þremur árum. Allt í
einu gat hún ekki lengur talað. Allt
í einu gat hún ekki lengur hlegið.
Af öllu því sem þessum sjúkdómi
fylgdi þótti henni verst að geta ekki
tjáð sig almennilega við ástvini sína
og barnabörn. En henni tókst að
halda reisn sinni og standa á eigin
fótum til síðustu stundar. Með
hjálp eiginmanns, sem lagði allt í
sölurnar fyrir hana og vakti yfir
henni dag og nótt tókst að teygja
lopann eins og hægt var. Eftir tæp-
lega þriggja vikna sjúkrahúsvist
langaði hana mest að sjá heimili
sitt aftur, komast heim. Það tókst
daginn áður en hún dó. Yndisleg
eftirmiðdagsstund, sem seint mun
gleymast. Ollu því fagfólki sem hún
kynntist á ýmsum tímabilum í sjúk-
dómsstríði sínu skulu færðar bestu
þakkir fyrir þeirra skerf í að gera
henni lífið léttara. Sjálf á ég henni
mikið að þakka, ekki síst fyrir að
vera dóttur minni sem önnur móð-
ir. Hvíl í friði, elsku mamma mín.
Ásdís.
Mig langar til þess að kveðja
ömmu mína í hinsta sinn með sálm-
inum sem hún kenndi mér:
Astarfaðir himinhæða,
heyr þú bama þinna kvak,
enn í dag og alla daga
í þinn náðarfaðm mig tak.
(Þýð. Stgr. Thorst.)
Þú kenndir mér svo margt sem
ég mun aldrei gleyma og ég á eftir
að sakna þín meir en orð fá lýst.
Takk fyrir allt og ég veit að við sjá-
umst seinna.
Þín nafna,
Guðbjörg Sigríður Petersen.
Hlátur, blíðlyndi, ákveðni, glæsi-
leiki og reisn.
Þetta er sú mynd sem ég hef í
huga mér af Guðbjörgu Sigríði.
Eg þakka henni alla góðvild í
minn garð og fjölskyldu minnar í
gegnum árin.
Guð blessi minningu Guðbjargar
Sigríðar.
Jónína Kárdal.
í Davíðssálmum standa þessar
ljóðlínur:
Drottinn er vörður þinn,
Drottinn skýlir þér,
hann er þér til hægri handar.
Um daga mun sólarhitinn eigi vinna
þér mein,
né heldur tunglið um nætur.
Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu,
hann mun vernda sál þína.
Drottinn mun varðveita útgöngu þína
og inngöngu
héðan í frá og að eilífu.
Þessi orð úr Davíðssálminum
gefa okkur huggun og kraft, en um-
fram allt öryggi. Þau taka burt alla
óvissu, sem að okkur þyrmir, þegar
líf okkar tekur breytingum. Drott-
inn stendur staðfastlega við hlið
okkar, hvað sem á dynur. Hann er
vörður í lífi okkar, bæði í blíðu og
stríðu. Það er dýrmætt að fá slíkt
fyrirheit, þegar okkur finnst lífið
hafa verið svipt allri sinni dýpt og
allri sinni gleði. Það er dýrmætt að
fá lifandi orð frá Guði, sem elskar
okkur, þegar við stöndum frammi
fyrir dauðanum og sorginni. Það er
dýrmætara en orð fá lýst að finna
að það er tilgangur með lífinu öllu,
þegar okkur finnst lífið hafa verið
svipt tilgangi sínum við missi góðr-
ar eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu, systur, frænku og vinkonu,
sem gaf lífinu það innihald, sem er
meira virði en önnur verðmæti lífs-
ins.
Þegar sorgin sækir okkur heim
er gott að geta hafið augu sín til
fjallanna og spurt Guð hvaðan okk-
ur berst hjálp. Því að um leið og við
berum upp þá spurningu finnum
við svarið frá Guði. Hjálp okkar
kemur frá Drottni, skapara himins
og jarðar. Við finnum það einmitt
aldrei eins sterkt og þegar við
stöndum máttvana frammi fyrir
andstæðum lífs og dauða, andstæð-
um þeim, sem skilja að þær víddir
tilverunnar, sem við skiljum og
þær, sem við skiljum ekki. Sú vídd
tilverunnar, sem við nú stöndum
frammi fyrir og skiljum aldrei til
hlítar er dauðinn, þessi óafturkall-
anlega staðreynd, sem blasir við
okkur svo miskunnarlaust, en samt
sem áður svo sönn.
Líf vinkonu minnar Baukýar eða
Guðbjargar Sigríðar eins og hún
hét fullu nafni var gott og sérlega
fagurt. Hún var einstaklega vel af
Guði gerð, hún var falleg og svo
glæsileg að eftir var tekið. Hún var
mjög vel greind og skemmtileg,
orðheppin og frábærlega fljót að
svara fyrir sig. Bauký var ákaflega
viljasterk, sjálfstæð og andlega
sterk. Hún var rólynd og bjartsýn,
traust og raungóð og einstaklega
góð manneskja. Hún var öguð í
framkomu, mjög minnug, reglusöm
og hafði gaman af því að fá til sín
gesti. Hún vildi ævinlega hafa allt
fínt í kringum sig. Hún var allt í
senn sönn heimsdama og hefðar-
dama sem hafði víðan sjóndeildar-
hring. Hún hafði ferðast vítt og
breitt um heiminn ásamt eigin-
manni sínum og fjölskyldu. Við
Bauký höfum þekkst frá unga aldri,
því mæður okkar voru vinkonur.
Vinskapur okkar hófst þó ekki af
þroska og alvöru fyrr en við vorum
báðar giftar og búnar að byggja
okkur hús í nágrenni hvor annarrar
í smáíbúðahverfinu. Við áttum báð-
ar börn á líkum aldri og þau léku
sér saman eða gættu hvort annars.
Við bökuðum oft saman bæði fyrir
jól og fyrir önnur hátíðleg tæki-
færi. Mér er mjög í fersku minni
afmælisdagur hennar Baukýar síð-
asta sumar. Þetta var einstaklega
fallegur sumardagur. Bauký tók á
móti mér af sama hlýleik og alltaf,
hún var svo höfðingleg og naut þess
að hafa gesti sína hjá sér. Mjög
kært samband skapaðist milli
hennar og elsta barnabarns hennar
Guðbjargar Sigríðar.
Hún er horfin okkur hún Bauký
og við sjáum hana ekki framar, en
um leið er okkur gefið þetta und-
ursamlega fyrirheit, um að hún lifi
hjá Guði í hans kærleiksríka faðmi
og í raun og veru geti ekkert að-
skilið hana frá okkur ef við lifum í
samfélagi því, sem Jesús Kristur
bauð okkur að lifa, - lífi í trú á sig.
Megi algóður Guð opna hjörtu Em-
ils eiginmanns hennar, Ásdísar,
Adólfs, Stefáns, Hólmfríðar,
tengdabarna, barnabarna og
Guðbjargar Sigríðar fyrir þeim
fagnaðarboðskap, sem kemur eins
og ljúf hönd inní sorgina og sökn-
uðinn. Megi algóður Guð gefa okk-
ur kjark og kraft til að hefja augu
okkar til fjallanna og sjá að frá
Drottni frelsara okkar berst okkur
sú hjálp, sem við þurfum á að
halda. Því Jesús sagði: „Ég lifi og
þér munuð lifa.“
Þín vinkona,
Sesselja (Sella).
Elsku Bauký systir.
Eg minnist þess
er mér var sagt
að á hafi úti
stæði klettur
settur ótal
litbrigðum
geislandi af
. fegurð
hefði að geyma
ótal leyndardóma
um lífið.
Straumþungi hafsins
ágangur sjávarbrimsins
hvínandi stormar
styrktu hann
einungis í sessi.
Ylur sólarljóssins
mjúk hafgolan
tregafullt mánaskinið
hjúpuðu hann
töfrum.
Mér var einnig sagt
að menn
leituðu þar náða
á erfiðum stundum
jafnt sem á
tímum
friðar og gleði.
Reynsla hans
og hlýja
veitti mönnum
styrk.
Glaðværð hans
og birta
færði mönnum
ró.
Seigla hans
og þróttur
gæfi mönnum
von.
(Höf: Anna María Jónsdóttir.)
Elsku Bauký systir, hugur minn
segir þannig minnist ég þín.
Þín,
Ásta.
Erfiðri sjúkdómsbaráttu Bauký-
ar frænku er lokið. Stórglæsileg og
góð kona er gengin á vit Guðs. Nú
þegar komið er að kveðjustundu vil
ég þakka þér fyrir alla umhyggju
og ræktarsemi sem þú sýndir mér
og fjölskyldu minni alla tíð, sér-
staklega þegar foreldrar mínir og
systkini bjuggu erlendis til margra
ára. Þær eru ógleymanlegar stund-
irnar í eldhúsinu á Sogaveginum,
það var alltaf mikið hlegið og marg-
ar uppákomurnar, þú hafðir alveg
sérstaklega smitandi hlátur og
snerir þér í hálfhring þegar hlátur-
inn náði hámarki. Þú varst börnum
mínum Vilhelm og Katrínu besta
ömmusystir og lést allt eftir þeim
þegar á Sogaveginn var komið. Þú
sýndir þeim mikla upphefð, talaðir
alltaf til þeirra sem þau væru full-
orðið fólk þó þau næðu ekki upp að
borðröndinni. Þú skildir svo vel
hvað það er börnum mikilvægt að
taka þeim strax sem fullorðnum.
Allar afmælisgjafir frá þér voru
líka valdar svo sérstaklega fyrir
viðkomandi. Lífsstarf þitt snerist
um fjölskylduna þína og vini. Því
miður eru breyttir tímar og ílestar
húsmæður eru útivinnandi og upp-
eldisstarfið hefur færst allt of mikið
yfir á skóla, tölvur eða sjónvarpið.
Elsku Bauký mín, þú varst aldrei
í vafa um hvað var mikilvægast fyr-
ir fjölskyldu þína. Þú varst alltaf til
staðar og hafðir tíma fyrir alla sem
til þín komu. Þú varst mjög falleg
kona og hafðir mjög tignarlega
framkomu sem tekið var eftir alls
staðar þar sem þú komst. Þín verð-
ur sárt saknað. Ég var stolt af því
að eiga þig sem móðursystur mína.
Ég votta Emil, Ásdísi, Adolf, Stef-
áni, Hólmfríði og fjölskyldum, mína
dýpstu samúð. Guð blessi ykkur öll
og varðveiti.
Þín frænka,
Ásta Denise og fjölskylda.