Morgunblaðið - 21.03.2000, Side 57

Morgunblaðið - 21.03.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 57 MINNINGAR + Margrét P. Ein- arsdóttir fæddist að Þórustöðum í Bitrufirði á Strönd- um 2. júní 1909. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 10. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Einar Ólafsson, bóndi að Þórustöðum í Bitrufirði, og kona hans, Ingunn Helga Gísladóttir húsfreyja. Systkini Margrétar voru: Ólafur Einars- son bóndi, látinn, Kristjana Einarsdótt- ir húsfreyja, látin og eftirlifandi systir er Guðrún Þ. Einarsdóttir húsfrú. Margrét giftist í október 1935 Eyþóri Ámasyni, f. 18.4. 1892, d. 24.10.1970, sjómanni, verkamanni og siðast næturverði við Lands- banka íslands. Foreldrar hans: Árni Jónsson, bóndi í Pétursey í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu, og Þómnn Sigurðar- dóttir. Börn Margrétar og Eyþórs: 1) Birgir Eyþórsson, f. 18.10. 1935, bifreiðastjóri í Kópavogi, kvæntur Þóru Sigurjónsdótt- ur og eiga þau fjögur börn: Siguijón, Ey- þór, Guðlaug og Birgir. 2) Þórarinn Eyþórsson, f. 23.3. 1937, bankamaður i Reykjavík, kvæntur Sigríði Eiríksdóttur og eiga þau þrjú böm: Björg, Erna og Hrefna. 3) Steinþór Eyþórsson, f. 6.8. 1948, veggfóðrarameistari í Garðabæ, kvæntur Eiríku Hara- ldsdóttur og eiga þau þijú börn: Margrét, Þórarinn og Eiríkur. Langömmuböm hennar era nú átj- án og langalangömmubömin þrjú. Útfor Margrétar fer fram í Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fyrir þig hvenær ég myndi eignast barn og þú varðst nú heldur betur glöð þegar þú fréttir að ég væri ófrísk. Eg man þegar ég skírði Stein- þór hvað þú varst ánægð með nafnið og hversu veik sem þú varst, lifnaði alltaf yfir þér þegar ég kom með Steinþór Örn í heimsókn til þín. Þú hefur verið hjá okkur á jólun- um eins lengi og ég man eftir, ég get ekki einu sinni hugsað um það hvað næstu jól eiga eftir að verða tómleg án þín. En ég þakka þér fyrir það að þó þú hafir verið orðin mikið veik þá fékk ég samt að hafa þig hjá mér á síðustu jólunum þínum. Núleggégaugunaftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mínverivömínótt Æ virst mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt (Þýð. S. Egilsson.) Elsku amma mín, takk fyrir að hafa verið til, takk fyrir að gefa mér allar þessar yndislegu stundir sem við áttum saman og takk fyrir að leyfa mér að eiga allar þessar góðu minningar um þig. Góður guð geymi ömmu mína og afa og láti þeim líða vel saman þar sem þau em núna. Þín nafna Margrét. MARGRÉT P. EINARSDÓTTIR Elsku besta amma mín. Ég veit að nú líður þér vel, nú ert þú loksins búin að hitta afa aftur og búin að fá þá hvfld og frið sem þú áttir skilið. Samt finnst mér mjög erfitt og skrít- ið að hugsa til þess að amma sem alltaf var á sínum stað er þar ekki lengur. Ég get þó huggað mig við það að minningarnar um þig eru ennþá á sínum stað og verða alltaf - í hjarta mínu. Og veit ég get alltaf leit- að í þær því þar ert þú. Ég var mikið hjá þér þegar ég var lítil og við nöfnurnar höfum brallað mikið saman í gegnum árin. Það var oft sem ég tók strætó - leið fimm til ömmu og ég man eftir því að þú sett- ir alltaf stóla bak við rúmið þitt svo við gætum sofið saman í rúminu þínu. Við fengum okkur alltaf göngu- túr út í Guðmundarbúð og oftar en ekki var komið við hjá Gunnu systur og Gústa. Einnig áttum við það til að baka saman vínarbrauð eða ástar- punga því það var nú einu sinni þín sérgrein. Éinu á ég aldrei eftir að gleyma. En það var þegar þú varst að fara inn á Hrafnistu og ég fór með pabba og Bigga frænda til að tala við forstöðukonuna, þegar við löbbuðum eftir ganginum hver heldur þú að hafi setið þar í mestu makindum, enginn önnur en þú amma. Þér datt allt í einu í hug að líta á aðstæður ein- mitt á sama tíma og við vorum þama. Ég man að við fengum öll algjört hláturskast því á þessu áttum við ekki von. Amma, þú hefur alltaf ver- ið svo mikill prakkari í þér. Eftir að ég fékk bflprófið þótti okkur alltaf svo gaman að fara niður í bæ, kíkja í lífstykkjabúðina og fá okkur ís. Ég man eftir því að þú varst oft hrædd hjá mér í bflnum og ég get ekki annað en brosað þegar ég hugsa um okkur tvær skröltandi í litla bflnum mínum. Það var alltaf svo mikil kyrrð í kringum þig og gott var að sitja með þér í litla herberginu þínu á Hrafnistu og prjóna. Ég er viss um að sumir hafi stundum ekki vitað hvor okkar væri í rauninni á Hrafnistu. Það var mikið umhugsunarefni SIGURÞÓRA SIGURÞÓRSDÓTTIR Elsku amma. Mig langar til að kveðja þig með vögguvísunni sem þú söngst svo oft fyrir mig þegar ég var lítil. Þær minningar eru mér svo kær- ar: Rokkamir eru þagnaðir og rökkrið orðið hljótt. Signdu þig nú, bamið mitt, og sofnaðu fljótt, Því bráðum kemur heldimm hávetramótt. Signdu þig og láttu aftur litlu augun þín, svo vetrarmyrkrið geti ekki villtþérsýn. Lullu lullu bía, litla bamið mitt! Bráðum kemur dagurinn með blessað ljósið sitt. Kemurdagurinn með birtu og stundarfrið; þáskalmammasyngja um sólskinið. (Davíð Stefánsson.) Elsku amma, ég veit að þér líður vel núna, þessi síðasti svefn var þér kærkominn. Guð geymi þig Þín sonardóttir, Guðlaug Birgisdóttir. fertugsafmælinu þínu sem ég fæddist en leiðir okkar lágu ekki saman fyrr en ég var að nálg- ast tíu ára aldurinn, þá kom ég í sveitina til þín og Astþórs og dvaldi þar eitt eða tvö sumur og fyrir það vil ég þakka ykkur báðum, því það var yndislegur tími. Ég sakna þín meira en nokkurn grunar, elsku Þóra mín, og ég veit að þú hefur það gott þar sem þú dvelur úna. í lokin langar mig að segja: Til amingju með daginn. Þín Rósa María. + Sigurþóra Sigur- þórsdóttir fædd- ist á Rauðafelli III í Austur-Eyjafjöllum 21.'uiars 1940. Hún lést á heimili sinu á Rauðafelli I 18. febr- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Eyvindarhóla- kirkju 27. febrúar. Elsku Þóra mín. í dag, 21. mars, hefðir þú orðið 60 ára ef þú værir enn hér hjá okkur en þess í stað fbgnum við stórafmæii okkar hvor á sínum staðnum. Þú sextugsaftnælinu þínu og ég tvítugs- afmælinu mínu. Því það var einmitt á LEGSTEINAR í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla, Verið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. ÍS S.HELGAS0N HF I STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410 Elsku amma okkar, nú ert þú búin að fá hvfldina sem þú varst farin að þrá. Við hefðum viljað þekkja þig þegar þú varst yngri, en þökkum fyr- ir þann tíma sem við höfðum með þér. Að fá tækifæri til að fara með þér á níræðisaldri heim til æsku- stöðva þinna þar sem þú sagðir okk- ur frá sveitinni þinni geymum við í minningu okkar um þig. Megir þú hvfla í friði og Guð vaka yfir þér. Hrefna og Erna. Blómastofa Fríðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. + Elskulegur sonur okkar, faðir, vinur og afi, STURLA EINARSSON húsgagna- og húsasmíðameistari, Klyfjaseli 2, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 18. mars. Útförin auglýst síðar. Unnur D. Haraldsdóttir, Einar Sturluson, Arnhildur Reynis, Guðlaug J. Sturludóttir, Áki Jóhannsson, Einar Sturluson, Atli Sturluson, Hólmfríður B. Petersen, Sigurjón Ernir Sturluson, Guðmann Geir Sturluson, Bára M. Eiríksdóttir og barnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSA BJÖRNSDÓTTIR, Krummahólum 8, lést á Landakotsspítala föstudaginn 17. mars. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 27. mars kl. 13.30. Guðrún Pálsdóttir, Guðbjörn Jensson, Björn M. Pálsson, Kristjana Karlsdóttir, Stella Pálsdóttir, Sigmundur Hermundsson, Alda Pálsdóttir, Ólafur Atlason, Hólmar Á. Pálsson, Gunnhildur Ágústsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabamabamabarn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÖRN INGÓLFSSON prentsmiðjustjórí, Merkurgötu 9a, Hafnarfirði, lést föstudaginn 17. mars. Hallgerður Jónsdóttir, Jón Arnarson, Ingólfur Arnarson, Friðrikka Sigfúsdóttir, Anna Vala Arnardóttir, Sigurjón Friðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET SÓLVEIG HARÐARDÓTTIR, Stórholti 28, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 17. mars. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 24. mars kl. 13.30. Elfa Björk Sigurjónsdóttir, Jóhanna Friðbjörg Sigurjónsdóttir, Magnús Gunnarsson, Katrín María Andrésdóttir, Rúnar Gíslason, Matthías Rúnarsson, + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR SIGURÐUR ÓLAFSSON rafmagnsverkfræðingur, Háaleitisbraut 111, Reykjavík, sem lést á heimili sínu laugardaginn 18. mars sl., verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstu- daginn 24. mars kl. 13.30. Hjördís Unnur Guðiaugsdóttir, Kristín Sverrisdóttir, Steinar Harðarson, Sverrir Jóhann Sverrisson, Inga Rut Hlöðversdóttir, Pia Rakel Sverrisdóttir, Guðlaugur Erlingsson, Jarþrúður Ólafsdóttir, Helga Erlingsdóttir, Kristmundur Hákonarson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.