Morgunblaðið - 21.03.2000, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR H. INGÓLFSSON,
sveitarstjóri
í Reykhólahreppi,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnudag-
inn 19. mars síðastliðinn.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
PÁLL SIGURÐSSON
rakarameistari,
lést sunnudaginn 19. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbeinn Pálsson,
Vigdís Pálsdóttir,
Sigurbjörg Pálsdóttir,
Brynjar Pálsson.
+
Okkar elskulegi sonur og bróðir,
ÖRLYGUR ÞÓRÐARSON,
Keldulandi 15,
lést á Landspítalanum laugardaginn 18. mars.
Guðbjörg Benediktsdóttir,
Gylfi Þórðarson.
+
Elskuleg systir mín,
GUÐRÚN ODDSDÓTTIR,
lést á Landakotsspítala föstudaginn 17. mars.
Páll B. Oddsson.
+
Elskuleg móðir mín,
ODDFRÍÐUR SÆMUNDSDÓTTIR,
frá Elliða í Staðarsveit,
andaðist á Droplaugarstöðum föstudaginn 17. mars.
Sæmundur Ingólfsson.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar okkar ástkæru
SESSELJU HRÓBJARTSDÓTTUR
frá Söndu,
Stokkseyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Kumbaravogs.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Áskell Jónsson, Guðbjörg Kristinsdóttir,
Gunnar Valur Jónsson,
Sigríður Kristfn Jónsdóttir,
Ragnhildur Jónsdóttir,
barnaböm og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARGRÉT P. EINARSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áður Kambsvegi 31,
Reykjavík,
sem andaðist föstudaginn 10. marz sl., verður
jarðsungin frá Áskirkju í dag, þriðjudaginn
21. marz, kl. 13.30.
Birgir Eyþórsson, Þóra Sigurjónsdóttir,
Þórarinn Eyþórsson, Sigríður Eiríksdóttir,
Steinþór Eyþórsson, Eiríka Haraldsdóttir.
SIGRIÐUR KRISTIN
KRISTJÁNSDÓTTIR
+ Sigríður fæddist
í Sandgerðisbót í
Glerárþorpi 3. júlí
1932. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 14.
mars síðastliðinn.
Banamein hennar
var krabbamein.
Foreldrar hennar
voru Anna Péturs-
dóttir, f. 23. júlí
1894, d. 14. desem-
ber 1954 og Kristján
Sigurjónsson, f. 24.
júlí 1895, d. 17. júlí
1981. Sigríður var
yngst átta systkina: Jóhann Bene-
dikt, f. 1922, d.1976; Sigurður
Lárus, f. 1923; Þórey Edith, f.
1924, d.1994; Anna Marín, f. 1926;
Pétur Siguijón, f. 1929; Arngrím-
ur Friðrik, f. 1930, og Kristján
Guðmundur, f. 1930, d. 1951.
Sigríður giftist 19. nóvember
1955 Halldóri Ámasyni, skósmið,
f. 19. ágúst 1932, frá Hjalteyri.
Þau áttu sex börn. Börnin eru: 1)
Anna Gréta, f. 26.8. 1950, gift Að-
alsteini Sigurgeirssyni og eru
synir þerra Sigurpáll Árni, Geir
Kristinn og Heiðar Þór. 2) Þórey
Ólöf, f. 3.7. 1954 og eru dætur
hennar Halldóra
Steinunn, Katrín
Anna, Margrét
Harpa og Sólrún
Dögg. 3) Kristþór, f.
16.6. 1956, kvæntur
Ásu Björk Þor-
steinsdóttur og eru
börn þeirra: Sigríð-
ur Kristín, Elmar
Freyr og Agnes
Þóra. 4) Oddur
Helgi, f. 24.3. 1959,
kvæntur Margréti
Hörpu Þorsteins-
dóttur og eru börn
þeirra: Helga Mjöll,
Halldór og Júlia Þóra. 5) Freydís
Ágústa, f. 12.10. 1961, gift Jó-
hanni Skírnissyni. Dætur þeirra
eru: Hjördís Elma og Oddrún
Assa. 6) Elma Dóra, f. 25.5. 1967,
gift Kristjáni Frey Jóhannssyni.
Dætur þeirra eru: Rakel Anna og
Kristín Lena. Barnabörn þeirra
eru 17 og barnabarnabörnin eru
orðin 4.
Sigríður ólst upp í Bótinni og
hefur alla tíð búið í Glerárhverfi
á Akureyri.
Útför Sigríðar fer fram frá
Glerárkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Elskuleg tengdamóðir mín, hún
Sigga amma, eins og hún var oftast
kölluð í fjölskyldunni er látin eftir
að hafa greinst með ólæknandi
sjúkdóm fyrir nokkrum vikum. Það
voru viss forréttindi að hafa fengið
að kynnast Siggu, og mér er minn-
isstætt er ég kynntist Onnu Grétu,
elstu dóttur Siggu og Dóra, þá lík-
lega 15-16 ára, hvað ég mætti mik-
illi hlýju og góðmennsku hjá þeim
frá fyrstu tíð.
Sigga var ekki gefin fyrir að flíka
tilfínningum sínum, hafði meiri
áhuga á fjölskyldunni sinni. Oft var
ég búinn að heyra er ég kom í
heimsókn: „Hvað er að frétta af
strákunum þínum, unnustum og
afastrákunum, eru ekki allir frísk-
ir?“ Mér er minnisstætt frá þessum
áratugum sem ég hef þekkt Siggu
að þegar við Anna vorum á ferða-
lagi um landið, t.d. til Reykjavíkur,
en þangað fórum við nokkuð oft
vegna fjölskyldunnar, þá var nokk-
uð öruggt að hún hringdi nokkrum
sinnum í bílinn til þess að fylgjast
með og athuga hvort allt væri í lagi.
Ég veit að ég á eftir að sakna þess-
ara símtala. Það hefur verið aðdá-
unarvert að fylgjast með Dóra skó
og bömunum í veikindum Siggu.
Þau hafa skipst á að vera hjá henni
og passað að hún væri ekki ein í
eina einustu mínútu síðan hún
veiktist. Þar fer stór og samheldin
fjölskylda. Einnig vil ég þakka
starfsfólki á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri fyrir frábæra aðstoð í
veikindum tengdamóður minnar.
Sigga mín, ég veit að nú ert þú
komin á æðra tilverustig og ég
þakka þér kynnin góðu.
Elsku Dóri, böm og aðrir ást-
vinir, góður Guð styrki ykkur á
þessum erfiðu tímamótum í lífi ykk-
ar.
Aðalsteinn Sigurgeirsson.
Elsku amma mín er látin eftir
skammvinn og erfið veikindi. Fyrir
mig var hún ekki bara amma heldur
einn af mínum bestu vinum. Ég var
svo heppinn að mamma og pabbi
bjuggu á neðri hæðinni í Miðholtinu
hjá ömmu og afa á Akureyri. Síð-
ustu daga hafa minningarnar
hrannast upp er ég hugsa til baka.
A yngri ámm var margt brallað en
alltaf þegar eitthvert slys varð leit-
aði maður til ömmu og satt að segja
man ég ekki eftir að amma hafi
nokkru sinni orðið reið; alltaf hugg-
aði hún mann og sagði: Svona kem-
ur fyrir alla unga drengi. Alltaf
meðan ég bjó á Akureyri vildi ég
eyða sem mestum tíma hjá ömmu
og afa. Þá var oftar en ekki rætt um
íþróttir, sérstaklega handbolta.
Gegnum minn íþróttaferil má segja
að amma og afi hafi fylgt mér og
tekið þátt af lífi og sál, það sanna
allar úrklippubækurnar hennar
ömmu. Á uppvaxtarárum mínum
fann ég virkilega fyrir því hvernig
öll fjölskyldan stóð saman gegnum
súrt og sætt; þannig fékk ég klapp
á bakið frá ömmu og afa og öllum
systkinum mömmu ef vel gekk á
handboltavellinum og fékk stuðning
ef illa gekk. Elsku amma, ég mun
sakna þess innilega að geta ekki
rætt við þig eins og ég hef alltaf
gert, en eftir að ég flutti til Reykja-
víkur hefur það verið meira í gegn-
um síma þó að ég hafi alltaf heim-
sótt þig þegar ég hef komið norður,
en ég veit að ég get enn leitað til
þín ef eitthvað bjátar á. Elsku
amma, ég veit að nú líður þér vel
eftir erfið veikindi og að þú munt
fylgja mér áfram en ég bið góðan
Guð að styðja afa, mömmu og
systkini hennar og alla aðstandend-
ur í þeirra sorg.
Þú varst yndisleg, amma mín,
aldrei ég mun þér gleyma,
minningin um þig aldrei dvín
meðan englar Guðs þig geyma.
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson.
Nú veit ég hve sár söknuðurinn
getur verið. Elsku amma mín, þú
ert nú farin að sinna þínum skyldu-
störfum á æðri stað. Það sem við
hin stöndum eftir með eru sannanir
þess hve vel þú sinntir þínum störf-
um á þessari storð. Sú samheldna
fjölskylda sem ég tilheyri á þér og
afa svo margt að þakka. Hve aðdá-
unarvert það er, að alveg er sama
hvað ég eða aðrir tóku sér fyrir
hendur í leik eða starfi, alltaf vissir
þú hvernig gekk. Enda ekki nema
von. Þú linntir aldrei látum fyrr en
þú hafðir fengið að vita hvernig
gekk, sama hve lítilsvert verkefnið
var. Væntumþykja er eitthvað sem
alltaf hefur verið gegnumgangandi
hjá þér og afa og vona ég innilega
að ég muni erfa þennan eiginleika
líkt og mamma erfði hann frá ykk-
ur.
Orð fá ekki lýst hve mikið ég
mun sakna þess að heyra glaðlega
rödd þína segja: „Halló, Geirsi
minn, hvað er nú að frétta af ykk-
ur?“ En nú ert þú komin í heiðurs-
sæti og ég veit að þú munt halda
áfram vaktinni yfir þessari stóru
fjölskyldu sem þú annst svo heitt.
Eftir stend ég, svo stoltur af því
að bera nafn þitt og að hafa átt þig
fyrir ömmu og að eiga Dóra afa
enn, til að ræða allt á milli himins
og jarðar. Sá styrkur sem þú og afi
hafið sýnt í þessum erfiðu veikind-
um þínum munu aldrei renna mér
úr minni og ykkur mun ég taka mér
til fyrirmyndar í mínum framtíðar-
störfum.
Guð styrki afa og aðra ástvini við
þennan mikla missi. Bless, elsku
amma, ég veit að ég mun heyra frá
þér.
Þinn
Geir Kristinn Aðalsteinsson.
Elsku amma mín.
Nú ertu farin, og ég veit að þér
líður vel þar sem þú ert núna.
Þó skyggi yfir skuggar stórir
og skapi i bili kvöl og tár
eins og tvisvar tveir eru fjórir
tíminn læknar öll þau sár.
(Ben. Ing.)
Ég mun sakna þín sárt. Hvíl í
friði, elsku amma.
Heiðar Þór Aðalsteinsson.
Mikill söknuður fyllti hug okkar
þegar við fréttum af andláti Siggu
hans Dóra skó. Allt frá því að við
leiguðum hjá þeim á neðri hæðinni í
Langholtinu hefur okkur hjónunum
þótt svo innilega vænt um þau þótt
við höfum éf til vill ekki haft nógu
mikið samband undanfarin ár. Ung
að aldri fluttum við í húsið til þeirra
og bjuggum þar fyrstu árin. Viðmót
þeirra hjóna gagnvart okkur var
einstakt - svo góð voru þau og um-
hyggjusöm. Þau tóku þessum
krökkum sem voru nýfamir að búa
eins vel og hægt er að hugsa sér og
hreinlega báru okkur á höndum sér.
Sigga var einstök kona. Það kom
ekki til mála annað en við notuðum
þvottavélina hennar, notuðum sím-
ann hennar - það var allt sjálfsagt
mál í hennar augum. Þeir voru ófáir
morgnarnir sem hún kallaði hvort
ég vildi ekki fá mér kaffisopa og ég
sat í eldhúsinu hjá henni, drakk
kaffi og við ræddum mál líðandi
stundar. Alltaf létti það lund að tala
við hana Siggu því hún var aldrei
öðruvísi en hlæjandi og sá broslegu
hliðina á málunum - lífið var ein-
hvern veginn ekkert mál þegar
maður var búinn að tala við hana.
Við erum óumræðilega þakklát fyr-
ir að hafa fengið að kynnast þessari
konu sem gaf okkur svo mikla gleði
í amstri og striti fyrstu búskaparár-
anna. En nú er hún farin og aldrei
heyrist aftur þessi rómur og aldrei
hlær hún með okkur aftur. Það er
þó víst að minningin um hana lifir
björt í huga okkar um ókomin ár og
enginn getur hana frá okkur tekið
þótt leiðir skilji nú um stundarsak-
ir.
Elsku Dóri, Anna, Agnes, Þórey,
Kristþór, Oddur, Freydís, Elma og
fjölskyldur ykkar allra. Við biðjum
góðan Guð að vemda ykkur öll og
gefa ykkur styrk í þessari miklu
sorg og vonum að góðar minningar
megi hjálpa ykkur að lifa við þenn-
an missi um ókomin ár.
Kær kveðja.
Aðalbjörg og Páll
(Adda og Palli).
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verld var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku Sigga, hafðu þökk fyrir
allt. Minning þín lifir að eilífu. Hvíl í
Guðs friði.
Linda og Jason Orri.