Morgunblaðið - 21.03.2000, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 21.03.2000, Qupperneq 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Nú er tækifærið... til að eignast ekta pels r\ArI iwíoi IIÁr' r\rt Irllilrlriir CaiSaaa m |ýl Öðruvísi Ijós og klukkur Slðir leðurfrakkar '§M'ÍW Handunnir dúkar og rúmteppi Sófasett og þrjú borð á aðeins kr. 157.000__________ Viðskiptanetið Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545 Sigurstjama Vorvörurnar streyma inn Jakki kr. 7.900 Verðdæmi: Jakkar Pils Buxur Bolir frá kr. 4.900 frá kr. 2.900 frá kr. 1.690 frá kr. 1.500 Kvartbuxur kr. 2.500 Alltaf sama góða verðið! Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. m SPAfHSiáéUK PÍYKlAViUUa BE tiÁ&PEHNtS Verðtryggð skuldabréf Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, 1. flokkur 2000, á Verðbréfaþing Islands. Verðbréfaþing hefur ákveðið að taka skuldabréf Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis, 1. flokk 2000, á skrá þingsins. Bréfin verða skráð mánudaginn, 27. mars nk. Skuldabréfin greiðast í einu lagi 1. febrúar 2007, bera 6,00% fasta vexti og eru bundin vísitölu neysluverðs. Skráningarlýsingu er hægt að nálgast hjá Kaupþingi hf. og Spron. Hjá Kaupþingi hf. er einnig hægt að nálgast þau gögn sem vitnað er til í skráningarlýsingunni. KAUPÞING HF Ármúla 13A, 108 Reykjavík Sími 515-1500, fax 515-1509 Árið 2000 Ve I d u ^eit i n of a k ú s mánaðarins og þú gætir unnið kvöidverð fyrir tvo! Sendist til: Morgunblaðsins, merkt "Veitingahús mánaðarins", Kringlunni 1, 103 Reykjavík Veitingahús mánaðarins er: -k Nafn: Kennitala: Sími: Heimilisfanq: Umsögn: Einnig hægt að velja á icelandic-chefs.is Gildir út árið 2000. Skilist fyrir 1. hvers mánaðar. VÍSA k REVKJAV % A.l. IHD f K visa.is lcelandic-chefs.is reykjavik2000.is Veður og færð á Netinu v11}mbl.is /KLLTAf= G/TTH\SA£) A/ÝT7 ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Morgunblaðið/Kristinn Á skíðum í Oddskarði. Opið bréf til stj órnarmeðlima Oryrkjabanda- lagsins SEM meðlimur í Öryrkja- bandalaginu, lýsi ég megnri óánægju. Eg held því fram að for- maður og áður varaformað- ur bandalagsins hafi með kjafthætti sinum valdið.því að afkoma mín er verri en hún þyrfti að vera. A seinni hluta síðasta Kjörtímabils lýsti heilbrigð- isráðherra því yfir að tekju- tenging vegna tekna maka yrði afnumin í skrefum og tók fyrsta skrefið í því máli. Eg verð að segja að það var tekjuauki sem okkur hjónin munaði verulega um. Sama dag missir þáver- andi varaformaður stjórn á sér í fjölmiðlum og for- dæmir ráðherra með þeim orðaforða sem honum er einum lagið. Ráðherra hefur ekki tek- ið fleiri skref og lái henni það hver sem vill. Mér finnst það ömurlegt að heyra forsætisráðherra hella sér yfir málflutning formannsins og hafa rétt fyrir sér í þokkabót. Og að stjórnarmeðlimir leggi blessun sína yfir kjafthátt formannsins finnst mér forkastanlegt. Ég sem hélt að stjórain stefndi að bætt- um kjörum okkar öryrkja. Snorri Hansson kt. 260944-2749. Enski boltinn á skjánum ÉG var að velta því fyiár mér hvort það vær löglegt að Stöð 2 sýndi leiki á laug- ai-dögum í enska boltanum á Stöð 2, en á sama tíma er enginn leikur á Sýn. Sýnar- áskrifendur hafa kvartað yfir þessu og vilja að leikur- inn sé sýndur á sama tíma á Sýn. Þetta minnir talsvert á einokun vegna þess, að þeir sem fylgjast með enska boltanum neyðast til að hafa Stöð 2 líka. Ingi St. A. Kveikjum kertaljós KÆRU landar, þið sem voruð í Kaupmannahöfn á stríðsárunum 1939-1945. í dag, 21. mars, eru 55 ár síð- an 86 skólabörn og 13 full- orðnir misstu lífið í sprengjuárás Englendinga á Shell-húsið. Heil gata var einnig lögð í rúst. Kveikjum kertaljós í kvöld í minningu barnanna og þeirra sem fórust þennan dag. Með kærri kveðju. Sigríður Johnsen. Bflaspítalinn í Hafnarfirði og Fjarðarkaup ÉG lenti í vandræðum með bílinn minn og var búinn að hafa samband við fullt af verkstæðum, en það var alls staðar fullt. Mér var bent á að hafa samband við Bflaspítalann í Hafnarfirði, en þeir væru sérfræðingar í Audi. Ég mætti með bflinn minn kl. 8 um morguninn og hann var tilbúinn kl. 11. Þeir gerðu meira við en beðið var um. Þegar ég fékk reikninginn var hann miklu lægri en ég hafði ímyndað mér. Mig iangar að senda þeim mínar bestu þakkir og ég mun koma til þeirra aftur. Einnig langar mig að senda þakkir til verslunar- innar Fjarðarkaup í Hafn- arfirði. Ég bý efst í Breið- holti en fer allar helgar að versla þar. Ég verð léttur í lund þegar ég kem þarna, því þarna er þægilegt and- rúmsloft og einstaklega broshýrt starsfólk og ég fæ allt sem mig vantar. Hafliði Helgason. Forseti vor og virðing MÉR finnst í meira lagi óviðeigandi hvað skemmti- kraftar hafa leyft sér und- anfarið. Forseti okkar og vinkona hans eru skotspón- ar þessa fólks á mjög óvið- eigandi hátt. Eigum við að apa eftir Bandaríkjamönn- um hvernig þeir hafa rakk- að niður í svaðið forseta sína lifandi og dauða? Við auglýsum okkur sem menningarþjóð. Þetta er ekki sæmandi að láta slíka vansæmd viðgangast. For- seti okkar er okkur alls staðar til sóma og þjóðinni ber að virða hann og emb- ættið. Stefanía Pálsdóttir. Innheimta áskriftar HOLBERG hafði samband við Veivakanda og vildi lýsa yfir óánægju sinni með nýja rukkunarkerfið hjá Morgunblaðinu. Það eru ekki allir með greiðslukort eða debet-kort. Finnst hon- um gamla kerfið miklu betra. Einnig finnst honum óviðeigandi að segja konur og menn, þegar við getum notað orðin karlmenn og kvenfólk. Tapað/fundid LítiII blár poki týndist LÍTILL blár poki, merktur snyrtivöruversluninni Libra, týndist við Hring- braut 29 í Hafnarfirði eða við Jófríðarstaðaveg 10 í Hafnarfirði laugardag- skvöldið 11. mars sl. I pok- anum var gullhringur, Win- ston sígarettur, kort merkt Þórunn og fleira. Allt dýr- mætar gjafir. Skilvís finn- andi er vinsamlega beðinn að hafa samband við Þóru í síma 555-2908 eða 697- 7470. Fundarlaun. Bfllykill í óskilum BÍLLYKILL með fjarstýr- ingu (þjófavörn) fannst fyr- ir framan veitingastaðinn Lækjarbrekku nýlega. Upplýsingar gefur Arnar í síma 562-9119. Gleraugu í óskilum GLERAUGU fundust í Ár- múla miðvikudaginn 15. mars sl. Upplýsingar í síma 557-6177. Dýrahald Orðsending til kattaeigenda ÞEIR kattaeigendur sem tapað hafa kisum sínum eru beðnir að hafa samband við Kattholt. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa fangað ketti í Artúnsholti og Grafarvogi. Enn eru margir kettir ósóttir og vilja þeir komast heim. Víkveiji skrifar... ÓTT Víkverji hafi ekki lent í al- varlegum hremmingum í óveð- urshryðjunum undanfarnar vikur var hann feginn að komast í stutt frí til útlanda, þó ekki væri nema til Kaupmannahafnar, og vonaðist til að fá þar forsmekk af vorinu. Því var nú ekki aldeilis að heilsa. Það var frekar kalt í ríki Dana og einn morguninn var snjór á götum borg- arinnar. Það mun vera fremur sjald- gæft að snjó festi þar, hvað þá í margar klukkustundir. Víkverji sá þá mjög eftir því að hafa skilið eftir heima þykku vetrarúlpuna, ullar- húfuna og vettlingana en þetta eru öryggistæki sem hann skilur helst ekki við sig allan veturinn. Tré og annar gróður var farinn að taka vel við sér í Kaupmannahöfn og sáust litskrúðug blóm stinga krón- um sínum upp úr þunnu snjólagi. Og viti menn, snjóruðningar mynduð- ust meðfram götunum, þótt ekki sé hægt að líkja þeim við ruðningana í Breiðholti síðustu vikur eða skafl- ana á Norður- og Austurlandi. xxx EKKI voru Danir þó að tala um veðrið þessa daga, eins og ís- lendinga er siður. Atkvæðagreiðslan um evruna í haust var ofarlega á baugi svo og vandamál vegna inn- flytjenda. xxx SEM kunnugt er hefur verið mik- ill munur á vöruverði á íslandi og í nágrannalöndunum, ekki síst matvörum. Af óvísindalegum athug- unum í búðum og samtölum við Dani má ráða að heldur hafi dregið úr þessum mun og er það vel. Vík- verji keypti sér soðna og reykta skinku til að taka með heim. Hún kostaði 500 krónur kílóið á tilboðs- verði í góðum stórmarkaði sem er með slátrun á eigin vegum. Það er áreiðanlega ekki nema brot af verði góðrar skinku hér á landi. Víkverji tók eftir því að í sömu verslun kost- uðu 6 flöskur af Tuborg-bjór tæpar 300 krónur. Rétt er að taka fram að hér er tilgreint verð á heilli kippu en ekki einni flösku! Það er svo sem ekki sanngjarnt að taka þessar vörutegundir út úr og bera saman verð á milli landanna því Víkverji vissi fyrirfram að hann gæti fengið þær á góðu verði þarna úti. Munur- inn er líklega mun minni á flestum öðrum vörum. XXX ÝLEGA var tekin í notkun glæsileg sundhöll í nýrri íþróttamiðstöð, Vandkulturhuset í DGI byen á Vesturbrú í Kaup- mannahöfn. Víkverji brá sér þang- að. Með í för var Dani sem kemur til íslands einu sinni eða tvisvar á ári og fer þá helst á hverjum degi í sund í Reykjavík. Hann hafði ekki farið í nýju sundhöllina í Kaupmannahöfn en hlakkaði mjög til þess að sýna vinum sínum frá Islandi þessa róm- uðu aðstöðu. Hann varð hins vegar fyrir miklum vonbrigðum og hafði á orði að þangað færi hann aldrei aft- ur. Húsið er vissulega stórt og glæsilegt en sundhöllin er illa hönn- uð. Búningsaðstaða er þröng, of fáar sturtur og engir rekkar til að geyma handklæðin. Laugin er hringlaug, aðeins tvær brautir og erfitt að komast áfram fyrir hægsyndu fólki og fólki sem þvælist fyrir. Umferð- arreglurnar vantar. Mikil og góð aðstaða er fyrir börnin en sá galli er á gjöf Njarðar að eini heiti, eða rétt- ara sagt volgi, potturinn í húsinu er í miðjum skarkalanum, auk þess sem aldrei er hægt að komast í hann vegna stöðugrar hreinsunar. Loks má geta þess að aðgangur að dýrð- inni kostaði 400 krónur og er því hægt að fara tvisvar sinnum í mun betri sundlaugar í Reykjavík fyrir eitt skipti á Vesturbrú. XXX Keflavíkurflugvöllur komst á dögunum á blað á hálfkæringssíðu Anders Lund Mad- sen í Extra bladet. Völlurinn fékk eina stjörnu með þeim ummælum að hægt væri að gera hlutina á einfald- an hátt: Tvær malbikaðar rákir og fríhöfn með ullarpeysum. Kastrup ætti að skoða þetta fyrirbæri og læra af. Keflavíkurvöllur fékk ekki eins margar stjörnur og David Lett- erman eða A1 Gore, en var þó rétt- um megin í lífinu. Það getur þó verið að grínistinn hafi haft rangar for- sendur fyrir umfjöllun sinni, að minnsta kosti var birt mynd af gömlu flugstöðinni, þeirri sem löngu er aflögð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.