Morgunblaðið - 21.03.2000, Page 67

Morgunblaðið - 21.03.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 67 I DAG BRIDS Um.sjón (iiiðniiindiir l'áll Arnarson NS eiga átta spaða á milli handanna og fjórir spaðar er þægilegur samningur, sem oftast vinnst. En norð- ur ákvað að þegja yfir fimmta spaðanum og treysta makker sínum fyi’ir þremur gröndum. Suður gefur; allir á vör * KD1094 » 654 ♦ K103 * 42 Suður *G63 VÁK3 ♦ D92 *ÁKD3 hættu. Vestur Norður Austur Suður - _ _ 1 lauf Pass 1 spaði Pass 2grönd Pass 3grönd Allir pass Vestur kom út með smátt lauf og suður tók gosa aust- urs með drottningu. Hann fór strax í spaðann, en vest- ur reyndist hafa byrjað með ásinn þriðja og dúkk- aði auðvitað tvisvar til að slíta samganginn. Síðan spilaði vestur lauftíu og austur fylgdi lit. Hvernig er nú hægt að tryggja níu slagi? Við borðið fór sagnhafi þá leið að spiia fyrst tígli á tíuna og síðan að kóngin- um. En því miður átti aust- ur bæði ás og gosa, svo samningu^im^tapaðist: * KD1094 v 654 ♦ K103 + 42 Vcstur +Á52 vD108 ♦ 65 +109765 Austur +87 vG972 ♦ ÁG874 +G8 Suður +G63 VÁK3 ♦ D92 +ÁKD3 Sagnhafi komst aldrei inn í borð til að ná í fríslag- ina á spaða og fékk því að- eins átta slagi: tvo á spaða, tvo á hjarta, einn á tígul og þrjá á lauf. Suður missti af fallegri leið. Hann átti að spila tíg- ulníunni og láta hana rúlia yfir til austurs. Ef austur tekur þann slag verður hægt að brjóta sér leið inn á blindan síðar, en ef austur dúkkar sækir sagnhafi ann- an tígulslag, sem dugir honum til vinnings. SKAK IJm.sjóii Ilclgi Áss Grctarsson Svartur á leik. í JANÚAR síðastliðnum var haidið sterkt opið al- þjóðlegt mót í Linares á Spáni og er meðfylgjandi staða þaðan. Svart hefur al- þjóðlegi meistarinn Levon Aronian (2587) frá Armeníu, en andstæðingur hans var alþjóðlegi meistarinn Olli Salmensuu (2418) frá Finn- landi. 32...Hxb3!! 33.axb3 Bxh4! 34.Dxh4 Aðrir leikir gátu ekki bjargað hvitu stöðunni þar sem eftir t.d. 34.Dd2 er 34...Bg5 banvænt. 34....a2 35.c3 35.Kd2 Dc3 og hvítur verður mát í næsta leik. 35....al=D+ 36.Bbl Dcxc3+ og hvítur gafst upp þar sem eftir 37.Hc2 er hann mát eftir 37...Dxc2. Arnað heilla Ljósm./Ástvaldur Jóhannesson BRÚÐKAUP. Gefín voru saman 13. nóvember sl. í Bústaðakirkju af sr. Gunn- ari Matthíassyni Eygló Ólöf Birgisdóttir og Hilmar Björnsson. Ljósmyndastofan Nærmynd. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 21. ágúst sl. í Háteig- skirkju af sr. Jóni Helga Þórarinssyni Ingibjörg Heiðarsddttir og Guðmund- ur Jónasson. Heimili þeirra er að Alfheimum 27. Hlutavelta ÞESSIR duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu kr. 7.576 til styrktar Rauða krossi íslands. Þau heita: Heiðrún Svala Aronsdóttir, Ágústa Ósk Aronsdóttir, Hrefna Björk Aronsdóttir, Þrúður Kristjánsdóttir, Arnar Benjamín Kristjánsson, fris Sigurjónsdóttir, Þórdís Lísa Valdimarsdóttir og Kristín Tryggvadóttir. Med morgunkaffinu Ast er... 2-16 ... að fínna sterkt fyrir nærveru hans. Ég hélt að ég hefði kennt þér að SÆKJA blaðið. LJOÐABROT STORMUR Ég elska þig, stormur, sem geisar um grund og gleðiþyt vekur í blaðstyrkum lund, en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur og bjarkirnar treystir, um leið og þú þýtur. Þú skefur burt fannir af foldu og hól, þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól, og neistann upp blæs þú og bálar upp loga og bryddir með glitskrúði úthöf og voga. Hannes Hafstein. STJ ÖRNUSPA eftir Franees Urakc HRUTUR Afmælisbarn dagsins: Pú missir ekki svo a uð- veldlega sjónará takmarki þínu og ert þviþekktur af þvíað koma hlutunum í verk. Hrútur (21. mars -19. apríl) Hlustaðu á það sem líkami þinn er að segja þér og láttu það ekki sem vind um eyru þjóta heldur leitaðu þér að- stoðar tii að fá bót meina þinna. Naut (20. apríl - 20. maí) Augun eru spegill sálarínnar svo þú skalt ekki líta framhjá því sem þau segja. Vendu þig á að líta á björtu hliðarnar því þannig hefur lifið mest gildi. Tvtburar (21. maí - 20. júní) AA Aðrir geta ekki lesið það sem þú hugsar svo þú verður að segja hvað þú vilt og verður þá að gæta þess að bjóða ekki upp á neinn misskilning. Krabbi (21.júní-22.júlí) Það er alltaf gott að hugsa svolítið fram í tímann jafnvel um hluti sem lítið virðist liggja á. Því fyrr sem þú ákveður þig, þeim mun betra fyrir alla aðila. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Láttu ekki löngunina í einskis verða hluti leiða þig út á hála braut í fjármálum. Leggðu frekar fyrir það sem þú mögulega getur hverju sinni. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) Gefðu þér góðan tíma til þess að lesa smáa letrið því það eru einmitt oft smáatriðin sem hafa mestar afleiðing- arnar hvort heldur er til hins betra eða verra. (23. sept. - 22. október) A 4* Það er allt á ferð og fiugi í kringum þig svo þú þarft eig- inlega að draga þig í hlé svo þú fáir lokið þeim verkefnum sem þú þarft að skila í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Þú hefur verla mátt vera að því að líta upp að undanförnu en þú þegar færi gefst skaltu bæta vinum og vandamönn- um upp fjarvistir þínar. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) AO Það væri ákaflega misráðið af þér að byrja á nýju verkefni áður en þú hefur lokið við það sem þú vinnur að nú. Lofaðu aldrei upp í ermina á þér. Steingeit (22. des. -19. janúar) « Það er sjálfsagt að taka nýj- ustu samskiptatækni í þjón- ustu sína og láta hana hjálpa þér við að halda nauðsynlegu sambandi við ættingja og vini. Vatnsberi , . (20. jan.r -18. febr.) Engan hlut skyldi dæma eftir útlitinu einu saman. Gefðu þér því tíma til þess að kanna innihaldið áður en þú gerir endanlega upp hug þinn. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú stendur frammi fyrir ákaflega áhugaverðu verk- efni sem þú skalt einhenda þér í, jafnvel þótt það krefjist bæði mikils tíma og mikillar orku. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. EVO-STIK | EVO-StÍÍT TJ0RUB0ND ARVIK ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 *TTs7> ^ ARVIK ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 SJALFSSTYRKING MEÐ SJÁLFSDÁLEIÐSLL Námskeið/einkatímar sími 694 5494 Ný námskeið hcfjast 28. niars og 12. apríl Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Hringdu núna Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur. % Handmáluð brúðhjónaglös Ný sending af antik-húsgögnum Opið kl. 10-18 mánud. til föstud., laugardag frá kl. 10-14. (|hítífc&NÝTj) Ármúla 7 rr " ^ \y / XX AÍIur er varinn góður! Húðkrabbamein er vaxandi vandamál. Þú getur varið þig og þína. Sólarljós og sólbekkir eru helstu orsakavaldar húðkrabbameins. Stundaðu sólböð í hófi. Forðastu hádegissólina þegar geislarnir eru sterkastir. Sólbruni er sársaukafullur og getur leitt til húðkrabbameins. Notaðu sólarvörn, ekki undir styrkleika 15. Hatt í mikilli sól. Sólgler- augu til að vernda augun. Ljósar og léttar flíkur sem verja hörundið. Hugsaðu vel um börnin þín, þeirra húð er sérlega viðkvæm. Varastu endurkast af snjó, ám og vötnum. AAundu, sólin getur valdið sama skaða á íslandi og í sólarlöndunum. Leitaðu til læknis ef þú tekur eftir húðblettum sem eru stækkandi, hreistrandi, blæðandi eða eru að breytast í lögun eða lit. Landlæknisembættið Nánari upplýsingará www.landlaeknir.is Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu www.landlaeknir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.