Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1905, Page 8

Skírnir - 01.12.1905, Page 8
296 Trú ,og sannanir. indunum. Og áhrifin eru mismunandi á einstaklingana. Suma fælir kirkjan frá sér. Suma draga vísindin frá henni — vafalaust miklu fleiri menn en þá, er gera sér- nokkura vísindalega grein fyrir lífsskoðun sinni. En ekkf virðist mér neinn vafi geta á því leikiö, að afstaða vís- indanna til trúarbragðanna hafi haft margfalt ríkari áhrif á gáfaða og þroskaða menn yfirleitt en yfirsjónir og ófull- komleikar kirkjunnar. Og gáfuðu og þroskuðu mennirnir eru það, sem ráða sannfæring fjöldans, þegar til lengdar lætur. Eg er alveg sannfærður um, að allur þorri þeirra al- vörugefinna gáfumanna, sem horfið hafa frá trúarbrögð- unum, hefir svipaða sögu að segja, eins og prófessor Georg Brandes segir af sér í æfisögu sinni í »Det ny Aarhundrede«- Hann brýtur heilann fram og aftur um trúarbrögðin á stúdentaárum sínum. Og í lengstu lög heldur hann dauða- haldi í ódauðleika-vonina. Ekki getur hann með nokkuru móti hugsað sér eða sætt sig við, að öllu sé lokið með andláti líkamans. Hitt finst honum sennilegt og vonandi, að andlátið sé eins og nokkurs konar fæðing inn í nýjan og óendanlega æðri heim. Hann leggur þessar hugsanir og vonir fyrir kennara sinn, prófessor Bröchner. Og kenn- arinn sýnir honum fram á, að menn viti ekki um neitt,. sem á það bendi, að einstaklingurinn lialdi áfram lífi sínu eftir andlátið, svo að þessar vonir hans séu á engu bygð- ar. Brandes getur ekki annað en fallist á það. Og eftir er hann hefir lært að líta á trúarbrögðin frá því sjónar- miði, verða þau að reyk i huga hans. Eg hygg, að hér séum vér komnir að aðalorsök trúar- fráhvarfsins. Um Darwin er sagt, að einu sinni hafi hann verið spurður, hvernig á því stæði, að hann væri ekki kristinn maður. Hann svaraði: » Af því að kristindóminn vantar sannanir«. Mentaður heimur tekur nú yfirleitt ekki gildar sannanirnar fyrir kristindóminum. Því fer mjög fjarri, að eg vilji gera lítið úr hugræn- um (»innri«) sönnunum kristindómsins, trúarreynslu krist- inna manna á öllum öldum — svo fjarri, að eg er sann-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.