Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1905, Page 9

Skírnir - 01.12.1905, Page 9
Trú og sannanir. 297 færður um, að allur þorri manna, líka allur þorri krist- inna manna, gerir alt of litið úr þeim sönnunum. Eg geng að því vísu, að þar sé um óendanlega mikilvægan og dýrmætan sanninda-auð að tefla, hvenær sem það djúp verður verulega kannað. Og þar hefi eg á mínu máli ágætustu sálarfræðinga nútímans. En auk þess, sem það er nokkurum vafa bundið, hvort verulegar hugrænar kristindómssannanir geta náð til allra manna, þó að hvorki viljinn né ályktanir skynseminnar séu því til fyrirstöðu, þá liggur það i hlutarins eðli, að þær gilda ekki andspænis þeim mönnum, sem eru fráhverflr kristinni trú. Eg á þess engan kost að grannskoða það, sem hvergi fer fram nema í sál einhvers annars manns. En því síður er þess nokkur kostur að færa mér órækar sannanir fyrir því, að það, sem þar hefir gerst, og hvergi annarstaðar, sé ger- samlega andstætt öllum þeim liugmyndum, sem eg geri mér um tilveruna. Fullyrði maður, sem eg annars tek trúanlegan, að eitthvað það hafi gerst í sál sinni, sem eg kannast við og samrýmist hugmyndum mínum um tilver- una, þá getur reynsla hans verið mikilsverð fyrir mig. Annars ekki. Mig vantar þá öll skilyrði til að gera mér grein fyrir henni. Fyrir þvi verður kristin kirkja að taka til alt annarra sannana, þegar hún snýr sér að þeim mönnum, sem eru trúarbrögðunum fráhverfir. Hún verður að leggja alt aðra undirstöðu. Og sú undirstaða er sögulegs eðlis. Kirkjan verður að sanna, að viðburðir hafi gerst, sem beri þess vitni, að trúarhrögðin séu alt annað en heilaspuni. Eg geng að því vísu, að menn verði mér sammála um, að þungamiðja þeirra sannana sé upprisa Jesú Krists frá dauðum. »Sé Kristur ekki upprisinn, er trú yðar ónýt«,. sagði Páll postuli. Og hið sama segir kristin kirkja yfir- leitt enn í dag. Þvi verður nú naumast neitað, að væri upprisa Krists einhver algengur viðburður eða samsvaraði hún öðrum stórviðburðum mannkynssögunnar, þá mundu sannanirnar fyrir henni teknar , gildar. Postularnir, mennirnir, sem

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.