Skírnir - 01.12.1905, Síða 11
Trú og sannanir.
299
Matteusar guðspjall segir, að tvær konur hafi farið að
sjá legstaðinn, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar. Þá
hafi orðið mikill landskjálfti, engill liafi komið frá himnl,
velt steininum frá gröfinni og sezt á hann. Við þessa
sýn hafi varðmennirnir orðið svo hræddir, að þeir hafi
verið sem örendir. Engillinn hafi þá yrt á konurnar og
sagt þeim meðal annars, að Kristur mundi fara á undan
lærisveinum sínum til Galíleu, og þar mundu þeir sjá
hann. Konurnar hafi svo hlaupið burt, til þess að flytja
lærisveinunum þessa fregn. En á leiðinni til lærisvein-
anna hafi Jesús komið á móti þeim og sagt hið sama sem
engillinn hafði sagt, að í Galíleu skyldu »bræður« hans
fá að sjá hann. Lærisveinarnir hafi því næst farið til
Oalíleu og hitt Jesúm þar. Af Matteusi verður ekki ráð-
ið, að hann hafi birzt neinum í Jerúsalem, öðrum en þess-
um konum. Hafi hann birzt lærisveinum sínum í Jerúsalem,
verður ekki annað sagt, en að frásögn Matteusar sé mjög
ónákvæm og beinlínis villandi.
Markúsar guðspjall segir, að konurnar hafi verið þrjár.
Það getur ekkert um landskjálftann né felmt varðmann-
anna. Konurnar eru að tala um það, hver muni velta
fyrir þær steininum frá gröfinni, svo að þær geti smurt
líkið. En þegar þær litu þangað, sáu þær, að steininum
hafði verið velt burt, gengu þá inn í gröfina og sáu engil-
inn sitja inni í henni. Hann segir þeim, eins og í Matte-
usar guðspjalli, að lærisveinarnir muni fá að sjá Jesúm í
Galileu. Konurnar segja engum frá þessu; þær eru svo
hræddar. Þá lætur Jesús eina þeirra sjá sig, Maríu frá
Magdölum, en ekki fleiri konur, að því er séð verður.
Þvi næst birtist hann, »í annarlegri mynd«, tveimur læri-
sveinum sínum, sem voru á gangi, »og ætluðu út á lands-
bygðina«. Síðan lét hann 11 lærisveinana sjá sig, þegar
þeir sátu undir borðum. Ekki er getið um, hvar það hafi
verið; en af því, sem á undan er komið, orðum engilsins,
virðist mega ráða, að það hafi verið í Galileu. Þegar
Jesús hafði lokið tali sínu við þá, varð hann uppnuminn
til himins.