Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1905, Page 60

Skírnir - 01.12.1905, Page 60
348 Einar Benediktsson. Fossinn verður sýnileg ímynd þeirra krafta, þeirra ónumdu auðæfa, sem liggja bundin mitt. í fátækt landsins: Þú straunmr auðs við eyðibakkann svarta, sem á ei strá, ei koru í fuglsins muuu. Og jafnframt sér hann dagsbrún þess tíma, þegar andans öti verða af æðri þekking notuð eins og nota má náttúru- öflin nú, »og mustarðskorn af vilja björgin brýtur«. Þá er kvæðið »Haugaeldur« (A sigling um Borgar- fjörð). Það er í þremur köflum. I. lýsir siglingunni inn fjörðinn og héraðinu þangað til inn er komið — yndisleg náttúrulýsing, og endar svona: Nú blasir við stærsta jörðin. En neðan við kjölinn er knálega synt. Þar kastar sér lax, eftir eðlinu blint! Tómt silfur og gull, eins og mynt við mynt, í málmdysjaeldi glitrar öll hjörðin. Þessi málmdysjaeldur er forboði endurminninganna um Kveldúlf og ætt hans, sem unni gullinu — en gróf þaðr því um það er II. kaflinn: Enn kennist sú vík, þar sem kneri til hlunna róð Kvöldúlfs lík. Undir heldúksins flík frá hömrum til unna nam höfðinginu óðulin rík. Hans kyn óx hór vel bæði að krafti og þótta, með hjartnæmt þel, undir harðgjörðri skel, vann hatur og ótta og ástsæld — sem eldur og él. Bragarhátturinn á vel við, hann minnir á runhendu,. uppáhaldsbragarhátt Mýramanna og lýsingin er stuttorð- og gagnorð. — Ulfsniðjar grófu gull sitt, en yfir því sjást enn þá eldar brenna, og í III. kaflanum talar skáldið um

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.