Gefn - 01.07.1871, Page 19

Gefn - 01.07.1871, Page 19
21 reiknar eptir myndanarlögum hnattarins að 35,000 ár sé sá minnsti tími sem mannkyn hafi lifað, og steind mannabein vitna um að menn hafi uppi verið líklega laungu fyrr: níu milíónir ár eru tiltekin sem sá lengsti tími sem mannkynið hafi getað verið til híngað til, og sá tími nær frá myndan steinkola-laganna. f>að má nærri geta, að petta er fyrir framan allt tímatal, því vér þekkjum enga þá atburði sem hafa orðið í þessu forna mannfélagi — líklega hefir ekkert skeð framanaf, því mennirnir hafa verið sem dýr að mestu leyti; þaa steinvopn og aðrar fornleifar sem finnast frá elstu tímum, gefa grun um að líf mannanna hafi allstaðar verið eins, litarlaust og sögulaust (í þreugra skilníngi), eins og líf þjóðanna á suðurhafseyjunum, þar sem öldúngis eins vopn eru enn brúkuð af villiþjóðum sem sjálfsagt eru líkar því sem allt mannkynið var annarstaðar á þeim tímum sem það neytti steinvopnanna. Steinvopn eru sjálfsagt elst allra forn- leifa; það lá beinna fyrir að nota stein en málm, því málm- smíði heimtar meiri umhugsun og meiri fyrirhöfn og er því merki upp á framför. Fornfræðíngarnir skipta æfi mannkyns- ins eptir þeim efnum sem helst voru notuð á hverju tíma- bili, og eru tímabilin þrjú og nefnast steinöld, eiröld og járnöld. Svo sýnist sem ráða megi af ýmsum hlutum, að nokkur menntau hafi átt sér stað þegar á steinöldinni, þó hún hafi sjálfsagt verið undarleg, eptir vorum skoðunum. þessar aldir gánga ójafnt yfir mannkynið; þannig var stein- öld á Norðurlöndum á meðan eiröld var austur í Asíu og laungu eptir að járnöld var á Grikklandi. Tröllasögurnar benda á allar þessar aldir: þær nefna hæði stein, eir og járn. Á Norðurlöndum hafa steinaldar- menn verið lengifram eptir ogbúið í hellrum og á fjöllum uppi ‘) og þeir eldu grátt silfur við járnaldarmennina eða ) þaraf leiðir ekki að Hilleviones og Hellusii eigi að leiðast af hella eða hellir; eg held engin þjóð hafi á norrænu máliverið

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.