Gefn - 01.07.1871, Page 48

Gefn - 01.07.1871, Page 48
50 hinn 3. með því nafni og var uppi eitthvað 1700 árum fyrir Krist. þ>að getur ekki leikið neinn efi á, að sólardýrkan hefir valdið því, að Grikkir létu Memnon vera son Tiþónus’ og Auroru eða Eos, son morgunroðans og jötunkynjaöanJ), og Memnon réði yfir Etíópíu, enu sólarljómandi brunalandi (af 'uihj); Memnon var því beinlínis sólargoð * 1 2). Hljómsagan um Memnonsmyndirnar hefir haldist við allt til vorra tima og margir hafa þókst heyra hljóminn; og svo sannfærðir hafa menn verið um þetta, að menn hafa reynt til að gera sér grein fyrir því með náttúrlegum þýðíngum, t. a. m. að líkn- eskin væri úr mjög stökkum steini sem losnaði korn eða smáfiöguraf í sólarhitanum og hevrðist þá hljómurinn. Ein- hverr ferðamaður (mig minnir Prokesch-Osten) svaf um nótt við líkneskisfótinn til þess að missa ekki af hljóöinu um sólarupprás, en hann heyrði ekkert. — J>að sögðu menn og að sól rynni í æginn og hljómaði við eins og þegar glóandi járni væri drepið í vatn3); menn ímynduðu sér þá sólina eins og eldhnött sem söktist í sjóinn og sloknaði, og því sagði Heraklitus að ný sól rynni upp á degi hverjum4). Tacitus segir — ekki sem sín orð, heldur annara — að sól renni ekki í norðurheimi meir en svo að dagur sé á lopti frá sólarlagi til sólar-uppkomu5 *) og þá heyrist hljómur og sjáist svipir guðanna og standi geislar af höfðum þeirra. Miklu meira mætti telja um það hvernig ljós og hljómur flétt- ast saman — ekki einúngis í fornum fræðum, heldur og enn í *) Eg veit ekki hvað ,, Tiíhjvrk11 merkir; Etym. magn. segir það sé = Dagur; það er líklega skylt Titan. . 1) I'að gerir ekkert til þó hann væri gerður að blámanni, því það fylgdi með sólarhrunanum í Etíópíu (cf. Straho 695, orð þeo- dektes’) og því talar Yirgilíus (Aen. L. I. 489) um „Eoasque acies et nigri Memnonis arma“. 3) Strabo 138. 4) Arist. Meteorol. L. II. c. 2. 5) Extremus cadentis solis fulgor in ortus edurat, Tacit. Germ. c. 45.

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.