Gefn - 01.07.1871, Síða 49
51
dag hjá öllum skáldum: það verður ósjálfrátt, án þess menn
hugsi um það eða geri það með vilja.
En þó menn nú geti álitið allar þessar sögur um hljóm
og saung og gleði og dansleik sem náttúrusögur, þá lúta
allar skoðanir og rannsóknir að því að norðurheimsþjóðir
haíi dýrkað sólina, ljósgjafann og lífgjafann; já hvað meira
er, vér vitum fyrir víst, að sólarljóminn er uppspretta allrar
trúar, hverju nafni sem hún heitir. Allar þjóðir hafa tilbeðið
sólina og trúað að hún væri guð1); frá ennra elstu tímum
gánga sögurnar um sólardýrkunina í öllum löndumq) og það
var sú fyrsta guðsdýrkan sem kviknaði í mannlegri sálu,
sem von er, því menn finna ósjálfrátt að sólin vinnur allt
sem framfer á jörðunni, andlegt sem líkamlegt: lífið vaknar
þegar hún rís og sofnar þegar hún hverfur; og svo rík var
þessi tilfinníng á lífgjafans og ljósgjafans guðdómlega veldi,
að jafnvel Ólafur helgi sagði við bændur þegar hann var að
hoða þeim kristni: »lítið þér nú í austur, þar fer nú guð
vor með ljósi miklu« — þá rann sólin upp (Fornm. S. IV.
') Sólar-hugmyndin er í sínu upprunalega og rétta eðli karlkyns,
og svo er í sanskrit, grisku og latínu; en hjá okkur.hefir
kvnið spillst.
a) pað var Baals-dýrkunin hjá austurlanda-þjóðum, sem svo opt
er nefnd í biblíunni og gyðíngar hneigðust mjög til. Baal var
dýrkaður semphallus ogþessimynd fluttist og til Norðurlanda
og varð þar Freys-dýrkun; hœði Baal og Freyr voru sólargoð
og phallus-myndin táknaði gróðann og frjóvganina. Eptir sögn
Adams frá Brimum var Freyr dýrkaður í Svíþjóð „ingenti pri-
apo“: það ersama sem „volsi“ í sögunni afÁsmundi fiagðagæfu
og í Volsa-þætti. I líkíngu við þessa mynd voru líkneskin og
musterin gerð, pyramídar og obeliskar á Egiptalandi, Belus-
musterið í Babílon, Topi, Stupa og Pagodur Hindáanna (Iupiter
Belus var í Indíatrú, Cic. ND. III. 16), Ashera í Salomons
musteri og tréstaurarnir í lundunum og á hæðunum voru allt
saman slíkar myndir: það var upprunalega saklaus náttúru-
dýrkan,' en spilltist eins og margt annað.
4*