Gefn - 01.07.1871, Side 69

Gefn - 01.07.1871, Side 69
71 sem tré lífsins og ýmist sem straumur farsældarinnar: það er allt ein og hin sama hugmyndin. — En að halda að sagan um Sampo sé mynduð úr sögunni um Grotta, eins og Castrén og Simrock halda, það álít eg alveg rángt, eins og það heldur ekki mun vera rétt að bera saman orðin Sampo og stampur (C. p. 272). Castrén segir raunar (p. 270) að sagan um Sampo sé frá seinni öldum, eptir að Finnar hafi greinst frá hinum öðrum frændum sínum, en hann sannar þetta ekki með neinu; þvert á móti sýnir það sem hann segir strax á eptir um Móngolana, að þeir kalli Búddakyrkj- una »Sampo«, að Sampo-sagan á sér rót í elstu fornöld lengst inni í Asíu'), því það má ætíð gánga að því visu, að slíkar sögur eru æfar-gamlar. Að Sampo sé sama sem Jómali eða Jómala-líkneski, eins og Lönnrot heldur, álít eg fráleitt. Sú hin beiska lind, sem Herodotus talar um, get- ur verið hafið, sem Sampo sökk í; Grikkir sögðu ncxpd &áÁaa<ja og ncxpd áÁprj — eg segi hér raunar það sem mér nú dettur í hug, án þess að halda að ekkert geti fundist betra; og eg enda þessa skoðan með þeirri athugasemd, að stundum verðum vér að taka á burtu þann skáldlega eða hugmyndarlega hjúp sagnanna til þess að gera þær histor- iskar; en stundum verðum vér líka að rýma á burtu þeim búníngi þeirra sem sýnist gera þær að historiskum sögum og vér verðum að gera þær óhistoriskar, til þess að komast inn í anda þjóðanna. Exampaeus og Sampo eru sannleikur, en skáldlegur sannleikur, enginn historiskur eða líkamlegur hlutur. Að Herodotus lætur Exampaeus verahjá Hypanis*), er eins og þegar Grotti sekkur á Petlandsfirði eða Beigaður sáir gullinu á Fýrisvöllum: það er ekkert historiskt factum fyrir það, þó alkunnir staðir á jörðunni sé margnefndir, ') Sömul. J. Grimm, DM 1229. s) Hér sjálí'sagt = Bug eða Bog; annars var og önnur Hypanis, sem nú heitir Kúban.

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.