Gefn - 01.07.1871, Page 78

Gefn - 01.07.1871, Page 78
80 = Norðvegr, Norðrvegr; en væri Noregr Norvegr komið af »norðr«, þá hefði ð varla fallið úr, og ekki þ<5 norð sé = nira með ð sem afleiðíngarstaf; og þetta ð finnst aldrei i þessu nafni ritað, þó það svnist að eiga að vera einn aðal- stafur, ef nafnið væri komið af »norðr«. Sjaldan er ritað »norðrænn«, heldur optast »norrænn« (og »norænn« hjá Ara). Ari ritar »Noregr« alls einusinni, en annars ætíð »Norvegr«, en eg marka Ara ekki í því, því ritsháttur hans er víðar rángur eu þar. í Landnámu held eg allstaðar sé ritað »Noregr«; annars nenni jeg ekki að telja þetta í öllum bókum; en myndin »Norvegr« er sjálfsagt komin upp seinna, og er ein af ótal etymologiskum orðabreytíngum, með því menn vildu fá meiníngu inn í nafn sem menn ekki skildu; og þetta hófst þegar á dögum Haralds hárfagra eða fyrr, og af því held eg v eða u sé komið á legstein Gorms; en ia (í Nurviag) sé hrein finnska, en ekki = i eða e (eins og iak = ek, ias = es). — þjóöarnafnið Norðmenn North- manni er miklu ýngra, og er ekki fremur upp fundið af Noregsmönnum heldur er nokkur þjóð finnur upp á að nefna sig eptir áttum, því það gerir engin þjóð *): norðrið erekki í Noregi, heldur fyrir norðan Noreg; öll lönd og allir menn þykjast vera í miðju heimsins og miða allt út frá sér. Noregsmenn áttu sér sjálfir í öndverðu ekkert sameiginlegt þjóðarnafn, en þar nefndust menn eptir héruðum: þrændir filir Firðar Sygnir Háleygir o. s. fr., en allir þessir þjóð- flokkar eða héraðamenn voru kallaðir »Norðmenn« af þeim sem bygðu fvrir sunnan þá, eins og þeir sjálfir kölluðu Skota og fra Yestmenn og Islendíngar kölluðu Norðmenn »Austmenn«. þar að auki á »Norðmenn« ekkert skylt við ‘) Polijola merkir raunar Norðurland, en það land lá sjálfsagt fyrir norðan þá menn sem gáfu þetta nafn; það var = Lappland, sem liggur fyrir norðan Finnland, hvort semvér nú látumþessi nöfn svara til landanna sem nú eru, eða ekki.

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.