Gefn - 01.07.1871, Page 87
89
Scatenauge o. s. fr. hjá ýmsurn fomum liöfundum1). (Eg
sleppi hér myndunum Cobandi Cogeni Teutones).
Eg get enga viðunanlega hugmvnd gert mér um nafn-
ið Svíar Svíaríki Svíþjóð, því að leiða það af sveit, eða
Sviðurr o. s. fr., hlýtur að vera ráugt2). Heldur gæti eg
ímyndað mér s hér sett fyrir framan, eins og eg opt hef
sýnt á undan, og væri Svíar þá = Yíar, Year. Svíaríki eiginlega
= Svea-ríki, Vea-ríki, og Svíþjóð = Ve-þjóð; þá væri nafnið
ekki finnskt, heldur gefið af ariskri þjóð, og vér værum þá kom-
nir lengra ofan í tímann en vér ætluðum í þessari ritgjörð.
En þetta truflast af ýmsum hlutum. »Sigtúnir« er eldgamalt
nafn; skyldi það vera skylt »Sitones« (sem Tacitus nefnir)?
Að Sigtúnir raunar sé ekki »norrænt« orð, her það sjálft
með sér; vér getum að minnsta kosti ekki leitt það af »tún« 3).
Að ímynda sér »Sigtúnir« og Sitones = sa-don (o: hinu-
megin vatnsins, o: Eystrasalts, miðað austanað), er raunar
ekki djarfara en annað4); og þá geturSvíþjóð og hin önnur
nöfn hafa myndast úr því. J>að er torvelt að segja, hvort
Suiones og Sitones sé skyld orð, eða hvort líkt hlutfall sé
á milli Suiones og Sitones eins og á milli Siculi og Sicani.
— í Svíaríki úir af finnskum nöfnum, suður eptir öllu; eg
hef áður getið um að Smálönd geti verið finnskt. Að hinn
núverandi Svíastofn hafi verið kominn þáugað á dögum Ta-
citus’, má sjá af því að hann nefnir Suiones, sem hann lýsir
sem allmenntaðri þjóð; en Pliníus nefnir þá ekki. Vér
höfum samt engar sögur af Svíþjóð fyrr en í Gautrekssögu
og um Gefjun. Gauti konúngur er líklega tilbúinn »land-
áss« eins og Danr og Norr: hann kom til Finnanna, hinnar
') P. A. Munch í AnO 1848 p. 265—266.
2) Sumir halda að Suiones hjá Tac. sé — Suevi.
3) það gerir þó N. M. Pet. (DH I, 112), en eg veit ekki til að
tún hafi nokkurn tíma haft annað kyn en það hefir enn.
4) Ekki djarfara en að álita Sigtúnir = Singidunum, eins og
sumir gera.